Frjáls verslun - 01.12.1976, Page 87
AUGLÝSING
Páll Þorgeirsson & Co.:
Flytur inn harðvið, krossvið,
viðarþiljur o.fl. frá Danmörku
Danska fyrirtækið Dalhoff
Larsen og Horneman A/S flyt-
ur inn og selur harðvið, spón,
oregon pine og fleiri viðar-
tegundir, krossvið viðarþilj-
ur og panelkrossvið. Höfuð-
stöðvar fyrirtækisins eru í
Glostrup rétt fyrir utan Kaup-
mannahöfn en Páll Þorgeirs-
son og Co. flytur inn vörur frá
þessu fyrirtæki, sem er eitt
stærsta fyrirtæki á þessu sviði
í Danmörku.
DLH selur harðvið og oregon
pine, en flytur einnig inn ýms-
ar aðrar vörur s.s. krossvið og
panelkrossvið auk 'þess sem
DLH selur danskar vörur s.s.
beyki og fleiri vörutegundir.
Vörur og hráefni er m.a. flutt
inn frá Bandaríkjunum, Kan-
ada, Afríku, Thailandi, Japan
og Kóreu. DLH hefur sínar eig-
in sögunarverksmiðjur og er
eigin framleiðsla stór þáttur í
rekstri fyrirtækisins.
Páll Þorgeirsson og Co. hef-
ur notið góðs af viðskiptasam-
bandi við DLH sem kemur
fram í árlega auknum viðskipt-
um. Umsetning danska fyrir-
tækisins er mjög mikil og því
hægt að ná mjög hagstæðum
innkaupum, sem kemur fram í
lágu verði.
DLH, sem stofnað var árið
1908 hefur nú alls um 500
starfsmenn í þjónustu sinni
bæði í Danmörku og utan
hennar.
Páll Þorgeirsson og Co. hef-
ur einnig umboð fyrir þekkt
dönsk fyrirtæki s.s. Gyproc
A/S, sem framleiðir gifsplötur
til veggklæðningar, Dansk
Silkopal A/S sem framleiðir
plasthúðaðar spónaplötur til
klæðningar á eldhúsinnrétt-
ingum m.a. Boulstrup rnaskin
fabrik, sem framleiðir mjög
fjölbreytt úrval af festingajárn-
um fyrir byggingaiðnaðinn og
Kristian Sterk A/S, sem fram-
leitt hefur vörur s.s. krossvið
o.fl. í algjörum sérflokki.
Isleifur Jónsson hf.:
Grundfos miðstöðvar- og
djúpvatnsdælur
Grundfos A/S í Bjerringbro
á Jótlandi framleiðir centri-
fugadælur fyrir heitt og kalt
vatn þ.e.a.s. djúpvatns- og mið-
stöðvardælur. Fyrirtæki þetta
er eitt stærsta fyrirtæki á sínu
sviði í Evrópu og hefur haslað
sér völl í Austurlöndum nær
og Japan, þar sem gífurlega
mikið hefur selst af Grundfos
dælum. ísleifur Jónsson hf. Bol-
holti 4 er umboðsaðili danska
fyrirtækisins hér.
Stofnandi fyrirtækisins P.
Due Jensen, sem enn er einn
aðalforstjóri þess byrjaði á því
árið 1945 að framleiða dælur
heima í kjallaranum hjá sér.
Vegur fyrirtækisins hefur vax-
ið ótrúlega síðan. Alls starfa
nú hjá Grundfos um 1500
manns og verksmiðjur eru
starfræktar í Þýskalandi og í
Englandi. Einnig hefur fyrir-
tækið nýhafið framleiðslu í
Kaliforníu í Bandaríkjunum,
þar sem Grundfos ætlar að
keppa við aðra framleiðendur á
bandarískum markaði í fram-
leiðslu á miðstöðvar- og djúp-
vatnsdælum. Sölu- og umboðs-
fyrirtæki eru ein,nig starfandi
um allan heim.
Grundfos A/S hefur hlotið
sérstaka viðurkenningu fyrir
framleiðslu sína á alþjóðlegri
sýningu í Leipzig í A-Þýska-
landi. Þegar samdráttur var hjá
mörgum fyrirtækjum meðan
olíukreppan var í algleymingi
1974, stækkaði Grundfos við
sig og var þá m.a. farið að
framleiða mótora við dælurnar.
Gæði þessara vara hafa
reynst með ágætum og óhætt
er að fullyrða, að engin önnur
dælutegund hefur tekið sama
sess og Grundfos dælurnar hafa
gert hér á landi, að sögn for-
ráðamanna ísleifs Jónssonar hf.
FV 12 1976
87