Frjáls verslun - 01.12.1976, Page 97
1( lí IC~
— Ég sagði að þú værir sterk-
ari en pabbi hans. Hvernig átti
ég að vita, að mamma hans færi
að slást við þig?
Hjá lækninum:
— Ég get bara alls ekki sofn-
að á kvöldin, ekki einu sinni þó
ég taki tvær svefnpillur.
— Þá get ég ekki ráðlagt yð-
ur annað en að þér fáið yður
væna lögg af viskíi áður en þér
háttið.
— Er öruggt að ég sofni þá?
— Nei, alls ekki. Það verður
bara miklu skemmtilegra að
vaka þannig.
— • —
Skotasaga:
— Og skiptu þessu nú á milli
ykkar systkinanna, sagði Skot-
inn um leið og hann rétt syni
sínum eina blöðru.
— Á flugfreyjunámskeiðinu:
— Ef þið viljið komast frá
starfinu vandræðalaust, sagði
kennarinn þá skuluð þið hafa
fyrir reglu að segja: „Já, skal
gert“ við flugstjórann, þegar
þið eruð á flugi, en „Nei, takk“,
þegar þið eruð lent.
— Þú ert fyrsta stúlkan, sem
ég hef elskað, hvíslaði hann
blíðlcga í eyra hennar.
— Hvert þó í logandi. Ég
lendi alltaf á byrjendum.
— Heyrið þér læknir. Ef ég
þarf að láta bólusetja mig vildi
ég gjarnan að það yrði gert á
stað, sem ekki sést, — ekki einu
sinni ef ég er í bikini.
— Sjálfsagt, en þá verð ég
að biðja yður að borga fyrir-
fram.
— Því þá það?
— Jú, sjáið þér til. Siðast
þegar kvenmaður fór fram á
þetta við mig, var ég svo upp-
tekinn af viðfangsefninu að ég
gleymdi að rukka hana.
— • —
Síminn hringdi í flugskólan-
um og einn nemandinn bað um
að fá að tala við kennarann
sinn:
Hann hafði nauðlent á túni
við bæ nokkurn ekki fjarri
flugvellinum. Kennarinn fór í
loftið á annarri vél og flaug
nokkra hringi yfir túninu, þar
sem nemandinn stóð við
kennsluvélina. — Þetta verður
strembið, sagði kennarinn við
sjálfan sig. Það er ekki hægt
að nota nema 20—30 mctra af
túninu. En fjandinn hafi það, úr
því að strákurinn gat þetta, get
ég það líka. Og kennarinn bjó
sig til lendingar og skreið
skömmu seinna út úr brakinu
hálfvankaður.
— Hvernig í ósköpunum
fórstu að þcssu, drengur! Þetta
hefur verið hreint glópalán hjá
þér.
— Ég lenti nú ekki hérna á
þessari spildu. Það er nokkur
hundruð metra braut þarna
neðar á túninu en til að þú
fengir nóg pláss bað ég bónd-
ann að setja vélina aftan í
traktorinn og draga liana hing-
að.
— Ég sver það. Ég er bara
venjulegur innbrotsþjófur.
— Hafið þér nokkuð á móti
því, ungfrú góð, að við vippum
okkur í rúmið saman?
— Herra minn, ég hef aldrei
— Aldrei sofið fyrr hjá karl-
manni?
— Grípið ekki frammí fyrir
mér. Ég hef aldrei hafnað svo-
leiðis boði.
— Svo lofaði þjálfarinn okkur sérstökum bónus fyrir sigurinn.
FV 12 1976
97