Frjáls verslun - 01.07.1977, Síða 13
gJSt'r^
í krónutölu
jókst hagn-
aður mest
í matvöru-
verzlun,
um 150,3
milljónir
króna.
undan en þó ekki eins góð og á
tímabilinu 1971—1973, ef litið
er á hagnað sem hlutfall af
vergum tekjum, tekjuvirði.
Vergur hagnaður fyrir skatta
nam 3,8% af vergum tekjum,
tekjuvirði, árið 1975 en 3,6%
árið 1974. í krónutölu jókst
hagnaðurinn um 763,5 m. kr.
á milli áranna 1974 og 1975 eða
um rúmlega 46%.
Eins og áður segir var hagur
heildverzlunar í heild eilítið
betri árið 1975 en 1974, jafnvel
þótt afkomuhlutfall þriggja
heildverzlunargreina af fjórum
hafi lækkað. Þessu veldur mikil
aukning vergs hagnaðar hjá
olíuverzlun (atv.gr. 613), er
nam 434,4 m.kr. eða 143,5% frá
1974. Til samanburðar nam
aukning vergs hagnaðar milli
áranna 1973 og 1974 í sömu
grein 34,9 m. kr. eða um 13%.
Hið lága afkomuhlutfall í olíu-
verzlun árið 1974 má að nokkru
leyti rekja til aukinna birgða-
afskrifta vegna hinna miklu
birgða í árslok, sem hafði áhrif
til hækkunar á vörunotkun og
þar með til lækkunar á meðal-
álagningu og hagnað.
Hagur bílaverzlunar versnaði
lítið eitt árið 1975, en athyglis-
verðari er þó hinn mikli sam-
dráttur í veltu árið 1975 eða um
24,5% frá árinu 1974 og einnig
hækkun meðalálagningar, sem
var 21,6% árið 1975 en 13,4%
1974. Skýringin er sú, að veltu-
samsetningin á árinu 1975 er
allt önnur en 1974, þ.e. vara-
hlutir eru hlutfallslega stærri
hluti af veltu en árið á undan.
Árið 1974 voru fluttir inn
10.400 bílar en aðeins 3.500 ár-
ið 1975. Hins vegar má líka
benda á, að gengisbreytingar
eiga einhvern þátt í hinu lága
afkomuhlutfalli árið 1974. Þeg-
ar á heildina er litið hefur af-
koma bílaverzlunar farið versn-
andi síðastliðin þrjú ár en var
góð árin þar á undan.
Afkoma byggingavöruverzl-
unar hefur versnað frá árinu
1973, en þá var hún sérlega góð.
Stafar þetta af því, að heildar-
kostnaður hefur aukizt meira
en tekjur. Aukning kostnaðar
án vörunotkunar var rúmlega
61% árið 1975 en tekjuaukning
var 41%.
Afkoma almennrar heild-
verzlunar hefur verið góð en þó
eilítið lakari tvö síðustu ár en
árin þar á undan. Hið lága af-
komuhlutfall árið 1975 stafar
m.a. af tæpega 14% lækkun
meðalálagningar í heildsölu ár-
ið 1975 úr 18,8% árið 1974 í
16,5% að meðaltali árið 1975,
enda var þeirri reglu beitt við
útreikning nýrrar álagningar í
kjölfar gengisbreytinga árin
1974 og 1975, að einungis 30%
sérhverrar verðhækkunar af
völdum gengislækkananna
skyldi lögð til grundvallar
hinni nýju álagningu.
Smásöluverzlunargreinar
Afkoma smásöluverzlunar var
litið eitt betri á árinu 1975 held-
ur en árið 1974, en svipuð eða
nokkuð lakari ef miðað er við
tímabilið 1971—1973 og er þá
litið á hagnað sem hlutfall af
vergum tekjum, tekjuvirði.
Vergur hagnaður fyrir skatta
jókst í krónutölu um 480,1 m.kr.
milli áranna 1974 og 1975 eða
um rúmlega 62%. Aftur á móti
var hækkunin milli áranna
1973 og 1974 aðeins tæp 19%.
Sem hlutfall af vergum tekj-
um, tekjuvirði nam vergur
hagnaður fyrir skatta 2,3% ár-
ið 1975 í stað 2,1% árið 1974.
Hlutfall vergs hagnaðar fyr-
ir skatta af vergum tekjum,
tekjuvirði, hefur hækkað í 7
greinum af 13 í smásöluverzl-
un árið 1975. Hæsta hlutfallið
í atvinnugrein 626, sem er smá-
sala úra, skartvöru, ljósmynda-
vöru og sjóntækja eða 15,5%
af vergum tekjum, tekjuvirði,
en vergur hagnaður hækkaði
um tæplega 51% milli áranna
1974 og 1975. Næsthæst er af-
komuhlutfall lyfjaverzlunar, at-
vinnugrein 624, eða 9,3%, en
vergur hagnaður hækkaði í
þessari grein um 84% milli ára.
í krónutöu jókst hagnaður mest
í matvöruverzlun eða um 150,3
m.kr., sem er 163,5% aukning
milli ára. Einnig má benda á
batnandi afkomu í atvinnugrein
623, bókaverzlun.
Hins vegar hefur afkoman
slaknað töluvert í nokkrum
greinum smásöluverzlunar. í
fiskverzlun, atvinnugrein 617,
var hagnaðarhlutfall árið 1975
0,6%, en 7,1% árið 1974. Þó er
afkoman verst í snyrti- og
hreinlætisverzlun, atvinnugrein
617, en þar nemur tapið 2,6%
af vergum tekjum, tekjuvirði,
áður en tekið er tillit til skatta
og afskrifta. En þegar á heild-
ina er litið var afkoma smá-
söluverzlunar lítið eitt betri á
árinu 1975 en næsta ár á und-
an, eins og áður kom fram.
FV 7 1977
13