Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1977, Page 20

Frjáls verslun - 01.07.1977, Page 20
Wrigley’s fyrirtækið Tyggjó-kóngar sem byggðu stórveldi sitt á sápusölu Starfsmenn 4000 og árssalan yfir 250 milljónir dollara Það er dæmigerður vordagur í Chicago. Hinn 82 ára gamli Philip K. Wrigley situr við skrif- borð sitt á 16. hæð Wrigley-skýjakljúfsins og flettir í gegn um hverja bréfamöppuna af annarri úr stórum hlaða á borðinu. Hann skrifar nafn sitt undir eitt og annað, setur athugasemdir hér og þar ásamt fyrirmælum til annarra stjómenda stórfyrirtækisins William Wrigley, Jr. Company, framleiðanda Wrigley’s Spearmint, Doublemint, Jucy Fmit, Big Red og P.K. tyggigúms. Hann lýkur ekki við eitt skjalið en byrjar að fylgjast með sjónvarpsskermi í einu horninu um leið og þulurinn byrjar að telja upp úrslit hornaboltakeppleikjanna (base- ball). Gamli maðurinn lifnar allur við, en þó má sjá að sum úrslitanna eru honum ekki að skapi. Það er heldur ekki að furða því að hann hefur fjár- fest rúmlega 12 miljónir dala í hornaboltaíþróttinni á síðast- liðnum árum af einskærum á- huga á íþróttinni, því aldrei hefur komið svo mikið sem eitt grænt cent til baka. # 300 milljón dala virfti En þó að þetta sé mikið fé er varla von til þess að Philip K. Wrigley kippi sér upp við það því tyggigúmsveldi hans er nú talið vera minnst 300 milj- ón dala virði og þetta gríðarlega fyrirtæki aflar honum einum 10 þúsund dala á dag. P. K. Wrigley ólst ekki upp í neinni fátækt, heldur tók við stórfyrirtæki föður síns að hon- um látnum. Sem stjórnarfor- maður og eigandi yfir 115 þús- und hluta félagsins réð hann yfir viðskiptalegu stórveldi sem árlega selur framleiðslu sína fyrir um og yfir 250 miljónir dala. Starfsfólk var 1970 um 4000 og dreifðist á hinar ýmsu verksmiðjur allt frá Gaines- Philip K. Wrigley, tók við stórfyrir- f'æki af föð- ur sínum. Hann hef- ur alla tíð haft fleiri áhugamál en að fram- leiða tyggjó. ville í Georgíu til Melbourne í Ástralíu. Eignir hans eru mikl- ar, allt frá stórum landsvæðum í Wisconsin, eyju suður af Kaliforníu og upp í heilu í- þróttaleikvangana eins og þeir 20 FV 7 1977

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.