Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1977, Side 24

Frjáls verslun - 01.07.1977, Side 24
Grcinar og wiélBI * Agrip af prófritgerö: Fjölskyldufyrirtæki og kynslóðaskipti — eftir Skúla Kjartansson, viðskiptafræðing Árið 1962 tóku gildi hérlendis ný heildarlög um erfðir. Hefur þar verið safnað á einn stað flestum þeim ákvæðum, sem standa í nánum tengslum við erfðir. Leysa þa,u af hólmi eldri erfða- lög frá 1949, auk þess að ákvæði úr öðrum eldri tengdum löggjöfum hafa verið innlimuð, svo sem um setu í óskiptu búi frá 1923. Þessum nýju lögum fylgdu nokkrar breytingar, svo sem takmörk- un skyldleikaerfða og rýmkun á erfðahlut maka. Það eru þó fleiri reglur en þær sem eru í erfða- lög.um, sem skipta máli við uppgjör erfða, og auka við svið þeirra. Lög um réttindi og skyldur hjóna frá 1923 segja til um skiptingu hjúskapareignar þeg- ar annað hjóna deyr. Það eftir- lifandi á rétt á helmingi hjú- skapareignar, áður en til skipta kemur samkvæmt erfðalögum. Breyting frá árinu 1962 veitir því eftirlifandi einnig heimild til þess að taka af hjúskapar- eign beggja búsgögn, verkfæri og aðra lausa muni, sem nauð- synlegir eru til þess að það geti haldið áfram atvinnu sinni, þó svo að verð greindra muna fari fram úr hluta þess í hjúskap- areignum og eru munir þessir ekki taldir með við ákvörðun bús og erfðahluta. Samkvæmt skiptalögum frá 1878 er meginreglan sú, að dánarbú sæti opinberum skipt- um, en heimila má einkaskipti séu skilyrði til þess fyrir hendi. f framkvæmd er þetta þannig, að sjaldgæft er að dánarbú komi til opinberra skipta, og einungis ef erfingjar eru ekki sammála. eða þeir vilji ekki gangast við skuldum hins látna. Eigi eftirlifandi maki rétt á setu í óskiptu búi og notfærir sér hann, kemur auðvitað ekki Höfundur, Skúli Kjartansson lauk prófi í viðskiptafræði í vor. Hér eru birtir tveir kaflar úr ritgerð hans ium erfðir og erfðaskatt. til skipta. Sérhver erfingi getur krafist opinberra skipta og neitað að gangast við skuldum búsins, og eru þá eignir búsins seldar. Hver erfingi á heimt- ingu á að arfshluti hans sé lagð- ur honum út eftir virðingu og gengur eftirlifandi maki þá fyrir og á rétt á að fá eignar- hlut sinn, erfðahlut og eftir at- vikum búið allt, eftir virðingu, sé ekki um skuldafrágöngubú að ræða, en þá er skipt með hagsmuni lánadrottna í huga, þar til þeir hafa fengið sinn hluta greiddan. Ríkið krefur skatts af öllum arfi samkvæmt lögum um erfðafjárskatt frá 1921. Skatt- urinn er mishár eftir því hve hár arfshlutur er og eftir skyld- leika erfingja við hinn látna. Greiða nánustu erfingjar innan við 10% í skatt af arfshluta sínum en fjarskyldari erfingj- ar allt að 50%. f þessum kafla ætla ég að fjalla nokkuð nánar um þessi mál. # (Jm lögarf — Lögerfingjatengsl geta byggst á þrenns konar atvikum, það er frændsemi, hjúskap og ættleiðingu. Lögerfingjum er skipað í þrjá erfðaflokka. Samkvæmt I. erfð, taka niðjar arfleifanda og maki arf og nefnast þessir erfingjar skyldu- 24 FV 7 1977

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.