Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1977, Qupperneq 25

Frjáls verslun - 01.07.1977, Qupperneq 25
Eftir lát annars' hjóna á hitt rétt á að sitja í óskiptu búi með ófjárráða niðjum beggja nema hið látna hafi mælt svo fyrir í erfðaskrá að skipti fari fram. erfingjar. Samkvæmt II. erfð taka maki arfleifanda. foreldr- ar hans og niðjar þeirra, óstýft, arf og samkvæmt III. erfð föð- ur- og móðurforeldrar arfleif- anda og börn þeirra, en ekki aðrir niðjar. í eldri erfðalögum var erfð samkvæmt II. erfð stýfð við systkinabörn, en því var þreytt í lögunum 1962 til samræmis við erfðalög á hin- um Norðurlöndunum. Arfskipti samkvæmt II. erfð koma ein- ungis til ef arfleifandi á enga niðja á lífi og samkvæmt III. erfð aðeins ef ekki er til að dreifa neinum erfingja sam- kvæmt I. og II. erfð. Innan hvers erfðaflokks koma foreldr- ar á undan börnum sínum, og sé einn erfingjanna látinn koma erfingjar hans í hans stað. Óskilgetið barn erfir föður og föðurfrændur og þeir það ef það er feðrað með þeim hætti, sem segir í löggjöf um óskilget- in börn. Kjörbarn og niðjar þess, þar á meðal kjörniðjar, erfa kjörforeldra og ættingja þeirra og gagnkvæmt. Lög- niðjar erfa kjörforeldra og ættingja þeirra og gagnkvæmt. Lögerfðatengsl milli kjörbarns og ættingja þess falla niður við ættleiðingu. # Erfðaréttur maka — Ef arfleifandi á niðja á lífi. erfir maki % hluta á móti þeim, en annars % hluta á móti foreldrum arfleifanda og niðjum þeirra. Eigi arfleifandi hvorki niðja né foreldra á lífi, tekur maki allan arf, en skiptir ekki arfi með systkinum hins látna, né heldur niðjum þeirra. Meðan skylduerfingjar eru á lífi hefur arfleifandi heimild til þess að ráðstafa allt að % hluta eigna sinna, með erfða- skrá, og skiptist þá það sem eftir er milli lögerfingja í fyrr- greindum hlutföllum. Eftir lát annars hjóna á hitt rétt á að sitja í óskiptu búi með ófjárráða niðjum beggja, nema hið látna hafi mælt svo fyrir í erfðaskrá, að skipti skyldu fara fram. Eigi eftirlif- andi maki ófjárráða stjúpniðja' þarf þó leyfi skiptaráðanda til. FV 7 1977 # Erfðir samkvæmt erfðaskrá — Erfðaskrá verður að vera skrifleg og frá henni gengið á ákveðinn hátt, annars hefur hún ekkert gildi. Þegar skylduerfingjar taka arf er arfleifanda óheimilt að ráðstafa meira en V3 hluta eigna sinna með erfðaskrá, en annars öllum eigum sínum. Hinir % hlutarnir eru skyldu- arfur maka og niðja. þar með kjörniðja. Arfleifandi getur mælt svo fyrir í erfðaskrá, að tiltekinn skylduerfingi hans skuli fá í sinn hlut ákveðna muni úr séreign hans eða hjú- skapareign, enda fari verð þess- ara muna ekki fram úr skyldu- erfðahluta erfingjans að við- bættum þeim hluta, sem arf- leifanda er heimilt að ráðstafa samkvæmt áðursögðu. Þetta byggist á því, að heppilegt get- ur talist fyrir arfleifanda og erfingja hans, að arfleifandi mæli fyrir um það, hvernig fara skuli um einstakar eignir hans, svo sem fyrirtæki. Þetta er rýmkun frá eldri lögum, og rýmri ákvæði en gilda á hinum Norðurlöndunum. Arfleifanda er óheimilt að setja erfingja fyrirmæli um meðferð á skylduarfi, nema að lög styðji það, samanber lög um rétt til erfðaábúðar frá 1962, ákvæði um erfð að höfundarréttindum í lögum frá 1972 og ákvæði um kvaðaarf í erfðalögunum. Maki. sem situr í óskiptu búi, getur aðeins ráðið yfir sín- um hluta úr búinu með erfða- skrá. Honum er heimilt að ráð- stafa einstökum munum innan þessara eignarmarka, ef það gengur ekki í berhögg við fyr- irmæli hins látna maka, sem áð- ur er getið. Þannig getur maki sem situr í óskiptu búi ráðstaf- að 2/9 hluta eignanna með erfðaskrá. 25 1
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.