Frjáls verslun - 01.07.1977, Page 50
verzlun og er,u innkaup heild-
sölufyrirtækjanna yfirleitt
langt frá því að vera nógu hag-
kvæm?
Jón: — Þessi verðsamanburð-
ur og umræður, sem af honum
leiddi, er meira og minna á
misskilningi byggt. Það var
horft framhjá því, að í Bret-
landi hefur ríkt verðstöðvun
um langt skeið og fyrirtækjum
hefur verið bættur skaðinn með
háu útflutningsverði. Við erum
heldur ekki að kaupa sömu
vöruna og seld er í verzlunum
í Bretlandi. Umbúðir eru allt
aðrar fyrir útflutning. t. d.
þykkara blikk í dósum og þetta
sést mönnum yfir, þegar sam-
anburðurinn er gerður.
Enda þótt heildverzluninni
hér á landi sé refsað fyrir að
gera hagstæð innkaup eru þessi
fyrirtæki þó sífellt að þrýsta
niður innkaupsverðinu. Ýmsar
getgátur hafa verið uppi um að
lækka mætti vöruverð hér
heima með stærri innkaupum.
Þarna er talað af ókunnug-
leika og óraunsæi því að mun-
urinn á útflutningsverði eftir
innkaupsmagni er oftast ekki
meira en 5%. Við gerum okk-
ar pantanir og samninga til níu
mánaða eða eins árs og reyn-
um þannig að ná upp magni.
Af þessu tilefni má benda á
innkaup Sambands íslenzkra
samvinnufélaga, sem ætla má
að séu að magni til með því
mesta, sem um getur á íslenzk-
um markaði. Sambandið, sem
stendur í slíkum stórkaupum,
fær ekkert betra verð en við
í einkaverzluninni.
F.V.: — Með hvaða rökum
vill heildverzlunin sanna til-
verurétt sinn við nútímaað-
stæður í verzlun og viðskipt-
um?
Jón: — Ef heildverzlun væri
ekki nauðsynleg og daglegur
þáttur í lífi þjóðarinnar, væri
hún fyrir löngu gufuð upp. I
verzluninni á sér stað glögg og
eðlileg verkaskipting. Það eru
aðeins fáeinir smásalar, sem
eru þannig í stakk búnir að
þeir gætu stundað sjálfstæðan
ihnflutning og þá fyrir stór-
markaði. Umboðs- og heild-
verzlun er því alveg jafn
nauðsynleg og áður. En þess
er líka að gæta, að til þess að
stórmarkaðurinn geti hafið
innflutning þarf hann meira
fjármagn og fleira starfsfólk
með sérhæfingu í að stunda
viðskiptasambönd við erlenda
Samstarf okkar við Hagkaup
hefur verið í alla staði sérstak-
lega gott. En um Bretann er
það að segja, að hann hafði
ekki skilning á íslenzkum að-
stæðum. Hann gat ekki tekið
samanburð af brezkum stór-
markaði, sem kaupir inn allar
sínar vörur frá þarlena-
aðila og getu til að annast öll
dagleg viðskipti við banka og
tollyfirvöld. Þennan þátt máls-
ins annars heildverzlunin nú
sem fyrr.
F.V.: — Fyrir nokkru var
hér á ferðinni brezkur rekstrar-
ráðgjafi, sem hélt því fram, að
heildverzlun væri orðin óþörf
og að stærri verzlanir ættu að
gera öll innkaup beint.
Jón: — Já. þessi Breti var
ráðgjafaraðili hjá Hagkaupum.
um framleiðslufyrirtækjum, í
mörgum tilfellum framleiðend-
um í næsta húsi. Þetta gerir
líka íslenzki kaupmaðurinn
þegar hann kaupir kex frá
Kexverksmiðjunni Frón. Hann
kaupir beint og án milliliða.
Allt önnur lögmál gilda í inn-
flutningsverzlun, viðskiptum
milli landa.
F.V.: — Breytingar á verð-
lagslöggjöf eru eitt af þessum
eilífðarmálium, sem hér eru á
döfinni. Telur þú einhverra úr-
50
FV 7 1977