Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1977, Page 61

Frjáls verslun - 01.07.1977, Page 61
mjólkurstöðina liði. Hann sagði að það verk gengi hægt þrátt fyrir mikið fé sem þangað rynni. Upphaflega var byrjað að vinna við byggingu stöðvar- innar árið 1965 en ári síðar var ákveðið að láta verkið bíða og það var ekki fyrr en árið 1973 að byrjað var á nýjan leik við það. SÉRHÆFÐ í OSTAGERÐ — Ætlunin er, sagði Arn- grímur, að mjólkurstöðin sér- hæfi sig í ostagerð. Við seljum aðeins 20% af þvi mjólkur- magni. sem okkur berst, sem ferskmjólk. Hitt fer allt til vinnslu. Og þar sem ljóst er að innanlandsmarkaðurinn getur ekki tekið við öllu því magni af unnum mjólkurvörum sem við getum framleitt er hug- myndin að stefna að útflutningi á ostum aðallega. Óðalsosturinn er þar ofarlega á blaði en sú ostategund hefur aflað sér vin- sælda os við höfum góðar von- ir um að þessi tegund gæti orð- ið vinsæl t.d. á Bandaríkja- markaði. Þegar nýja mjólkurstöðin kemst í gagnið, sem er ráðgert að verði árið 1980, þá er ætlun- in að brauðgerð KEA flytji í núverandi húsnæði mjólkur- samlagsins í Kauuvangsstræti. Brauðgerðin er nú í húsnæði, sem ætlunin er að leggja und- ir hótel KEA og er löngu orð- ið of lítið fyrir brauðgerðina. Sagði Arngrímur að húsnæði gamla mjólkursamlagsins væri að vísu of stórt fyrir brauð- gerðina, en ljóst væri að eng- inn vandi væri að nýta það hús- nláss sem afgangs verður, því KEA væri í stöðugum húsnæð- isvandræðum með ýmsa þætti starfsemi sinnar. ÚTIBÚ Á ÓLAFSFIRÐI En það er ekki bara á Akur- eyri, sem KEA stendur í stór- ræðum. Arngrímur sagði að ekki alls fyrir löngu hefði kom- ið beiðni frá Kaupfélagi Ólafs- fjarðar um að KEA yfirtæki rekstur þess. Kaupfélag Ólafsfjarðar var stofnað 1949 og þá sem sérstakt sjálfstætt kaupfélag. í Ólafs- firði hefur verið mjög hörð samkeppni milli einstaklinga og kaupfélagsins og rekstur kaup- félagsins gengið heldur erfið- lega. Það er erfitt fyrir litlar einingar að veita góða þjónustu og því fór kaupfélagið þess á leit við okkur að við tækjum yfir verslunina til þess að geta bætt þjónustuna við viðskipta- vinina. Við tókum við þessu um s.l. áramót og í sumar var versl- unin formlega opnuð, sem úti- bú KEA. Þetta er svipað og gerðist á Siglufirði. Þar hóf KEA rekstur kaupfélagsins árið 1972 samkvæmt ósk heima- manna og árið 1976 var versl- unin gerð að sjálfstæðu útibúi. Þetta hefur gefið góða raun og gerir okkur bjartsýna á að kaupfélagið í Ólafsfirði nái sér einnig á strik, sagði Arngrim- ur. SAMA VERÐ Á ÖLLU SVÆÐINU Með þessari yfirtöku á Siglu- firði og Ólafsfirði, er nú svo komið að KEA rekur útibú á öllum þéttbýlissvæðunum í görnlu Eyjaf jarðarsýslunni. Sagði Arngrímur að KEA legði metnað sinn í það að selja all- ar dagvörur, eins og þær væru kallaðar. á sama verði á öllu svæðinu. Félagsheildin bæri kostnað af flutningi á vörunni cg gilti það um allar vörur nema þungavörur. Á þær væri lagt í samræmi við sannanleg- an kostnað vegna flutninganna. Að lokum var Arngrímur snurður að því hvort hann teldi að æskilegt væri að hafa félags- einingar iafn stórar og KEA er orðið í dag. Hann sasðist telia að stór félög eins og KEA ættu fullan rétt á sér. Stór fé- lög gætu veitt miklu betri þiónustu en litlar einingar gætu nokkurn tíman veitt og það eitt nægði til þess að réttlæta tilvist KEA í þeirri mynd sem félagið er í. IMýjungar frá verk- smiðjum KEA Efnaverksmiðjan Sjöfn hefur nýlega sent frá sér tvær nýjar framleiðsluvörur á markaðinn. Alfa Beta er lágfreiðandi þvottaefni til notkunar fyrir mjaltakerfi, mjólkurtanka, mjólkurvinnsluvélar, vinnslu- vélar fyrir frystihús, kjöt- vinnslur og annan matvælaiðn- að, auk uppþvottavéla á mat- sölustöðum. Alfa-Beta inniheld- ur m.a. lágfreiðandi yfirborðs- virkt efni, sem leysir vel upp fitu og auk þess inniheldur það klórsambönd til sótthreinsun- ar, fosföt sem hindra myndun á mjólkursteini og kalksteini og silikat sem kemur i veg fyr- ir tæringu vissra málmtegunda. Rex 33 er vatnshelt trélím með herði til límingar á hlut- um, sem þurfa að þola langvar- andi veru í raka eða vatni. Rex 33 er sérstaklega ætlað til lím- inga á gluggum, útihurðum, garðhúsgögnum og í baðher- bergi. svo og í skipaiðnaði og víðar. Kjötiðnaðarstöð KEA hóf ný- lega vinnslu á vörum úr hrossa- kjöti og þ.á.m. hrossabjúgum. Hrossabiúgun eru ríflega 20% ódýrari en kindabjúgu. Þá hef- ur einnig nýlega verið hafin framleiðsla á saltkjötsfarsi, sem hefur þegar orðið vinsælt. Salt- kjötfarsið er selt í plastgörnum og fryst. Á sl. ári tók Kjötiðn- aðarstöðin alls á móti 704 tonn- um af kjöti auk 130 tcnna af ýmis konar grænmeti. Sölu- aukning Kjötiðnaðarstöðvarinn- ar árið 1976 nam 53,6% eða árs- salan alls kr. 472.517.873.00. FV 7 1977 61

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.