Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1977, Page 67

Frjáls verslun - 01.07.1977, Page 67
Bílaleiga Akureyrar IMú geta menn skilað bíla- leigubílnum á Akureyri eða í Reykjavík 100 bílar af 11 gerðum til leigu Ævintýrið byrjaði með þremur notuðium bílaleigubílum. — Hvaða ævintýri, kynnu menn að spyrja? — Jú, ævintýrið um Bílaleigu Akureyrar, sem á aðeins ííu árum hefur þróast í það að verða stærsta bílaleiga landsins. Eigendur fyrirtækisins eru fimm bræður, sem oft ganga undir nafninu Ágústssynir eða þá „Kennedy-bræðumir“. En fullum nöfnium heita þeir Birgir, Skúli, Vilhelm, Baldur og Eyjólfur. Bílaleigan byrjaði sem auka- starf með þrem notuðum bíl- um eins og áður segir, en starf- semin jókst hröðum skrefum og árið 1974 var svo komið að ekki var lengur hægt að sinna þessu í frístundum. Það sama ár var Bílaleiga Akureyrar formlega stofnuð og þá gat fyr- irtækið leigt út 38 bíla, en nú getur Bilaleiga Akureyrar leigt út 100 bíla af 11 gerðum, og þar af eru fjórar gerðir af jepp- um. REYKJAVÍKURÚTIBÚ OPNAÐ í VOR Bílaleiga Akureyrar er til húsa að Tryggvagötu 14 á Ak- ureyri, en útibú bilaleigunnar er í Síðumúla 33 í Reykjavík. Útibúið var opnað í mars sl. og er tilgangur þess tvíþættur. í fyrsta lagi það að fá betri nýtingu á bílakosti fyrirtækis- ins, sérstaklega á veturna þeg- ar færð hamlar akstri norðan- lands og í öðru lagi að gefa mönnum kost á því að taka bíl á leigu í Reykjavík og skila honum á Akureyri eða öfugt. En það er ekki tekið út með sældinni einni saman að reka bilaleigu af þessari stærð. Starfið er krefjandi og það má með sanni segja að þeir bræður þurfi að vera að öllum stund- um ef vel á að ganga. Það hafa þeir líka gert, enda eru þeir þekktir af öðru á Akureyri en leti. Þeir eru áreiðanlega marg- ir þar nyrðra sem halda að bræðurnir séu að allan sólar- hringinn og þurfi aldrei á hvíld að halda. VAXANDI EFTIRSPURN En einhvern tíma hlýtur svona ævintýri að taka enda, skyldi maður ætla. Ekki eru bræðurnir fimm á því. Þeir segjast búast við áframhaldandi og vaxandi eftirspurn eftir bílaleigubílum og með því að kappkosta að veita öllum við- skiptavinum sínum æ sem lipr- asta þjónustu væri ástæða til að ætla að framhald verði í vexti Bílaleigu Akureyrar, sem þegar er orðin stærsta bílaleiga landsins eins og áður segir. Þá má geta þess að það er ekki aðeins bílaleigan sem þeir eru með í takinu. Bræðurnir reka einnig bílaþjónustu, hjól- barðaverkstæði sem opið er alla daga og kvöld, verslun og þrjú Esso Nesti, en hjá þessum fyr- irtækjum starfa samtals um 70 manns í sumar. FV 7 1977 67

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.