Frjáls verslun - 01.07.1977, Page 77
Veitingastofan Árberg t.v. og
til hægri.
byggingavöruverzlunin Nýborg
tannsmið og tannlæknastofu
Ríkarðs Pálssonar. Það er synd
ef menn þurfa að fá tannpínu
til að uppgötva jafn skemmti-
legan arkitektúr og snyrtilega
umgengni og er í þessu húsi.
Bílaumboð og bílaviðgerðir
setja sterkan svip á Armúlann.
Toyota-umboðið vekur óneitan-
lega athygli á sér með stórum
stöfum og eldrauðum depli á
húsgaflinum. Uppi í húsasund-
um er hvert bifreiðaverkstæð-
ið af öðru, ekkert sérlega yndis-
leg mörg hver en þarfir þjón-
ustuaðilar. Og innarlega í göt-
unni. í Ármúla 36, er Jón Há-
kon Magnússon fyrrverandi
fréttamaður sjónvarpsins á þön-
um en hann er nú fram-
kvæmdastjóri fyrir bílaumboð-
ið Vökull h.f., sem einmitt var
framhjá. Þarna voru langir og
skrautlegir Dodge-fólksbílar og
fyrir ofan og siðan koma ísfoss,
Carby-umboðið og G.T.-búðin,
sem hefur á boðstólum alls
kyns útbúnað fyrir bíla, senni-
lega misjafnlega nauðsynlega
en þeim mun meira spennandi
og eftirsóknarverða fyrir þá,
sem fengið hafa snert af bíla-
dellu. Hvert gluggaskiltið tekur
við af öðru. Haga-bólstrun, G.S.
varahlutir. Gabriel-umboðið,
Storð hf. með kúpldiska og
pre'rsur og Fjöliðjan, sem selur
mjög snyrtileg húsgögn í bað-
herbergi.
Húsin
innarlega
við
Ármúla.
ÚRVAL AF
BYGGINGAVÖRUM
Það er annars athyglisvert,
hvernig fyrirtæki í byggingar-
vöru- og húsbúnaðargreinum
hafa sett sig niður í nágrenni
hvert við annað á þessum slóð-
um. Þegar betur er að gáð kem-
ur í ljós. að þessar verzlanir
selja ekki svo mjög sömu vörur
heldur bjóða sameiginlega mik-
ið og fjölbreytt úrval fyrir hús-
byggjendur og húseigendur al-
mennt. Ef eitthvað vantar í
húsið er það næstum örugglega
að finna í Ármúlanum.
Vatnsvirkinn, sem er vinstra
megin í götunni, hefur allt fyr-
ir pípulagningamanninn, síðan
fást hreinlætistækin og vegg-
eða gólfflísarnar í Nýborg, sem
er nokkuð innar og ef farið er
enn lengra er komið að verzlun
þess mæta sjentilmanns Páls
Þorgeirssonar, sem selur spóna-
plötur og þilplötur á veggi af
ýmsum gerðum. Og úr því að
við fórum yfir götuna er kom-
inn tími til að setjast niður og
hvila lúin bein. Staðurinn til
þess er veitingastofan Árberg,
sem er einkar snotur veitinga-
staður í þessu hverfi mikilla
umsvifa.
SKRÚÐGARÐUR
INNANHÚSS
Ármúli 26 er dálítið sérstætt
hús. Þegar gengið er upp á efri
hæð þess er komið inn í eins
konar forgarð. Anddyri er stórt
og gluggar á þakinu. Til hliðar
eru svo gluggar hjá einstök-
um fyrirtækjum, eins og rak-
arastofu, arkitektaþjónustu,
nokkrir Simca-sendiferðabílar,
sem vélamiðstöð Reykjavíkur-
borgar var að fá afhenta.
VERNDAÐUR
VINNUSTAÐUR
Þótt við höfum nú greikkað
sporið dálítið hefur okkur samt
ekki sézt yfir fyrirtæki eins og
Nýju blikksmiðjuna, sem er
hægra megin við götuna, í hús-
inu númer 30. í gluggaauglýs-
ingu segir, að hún hafi ávallt
fyrirliggjandi póstkassa, loft-
ræstingakerfi, þakrennur og
þakglugga. Og yfir þessari fjöl-
breytilegu framleiðslustarfsemi
koma læknastúdentar saman til
að nema sín fræði í leiguhús-
næði Háskólans. í næstu hús-
að taka á móti splunkunýjum
bílum, þegar við áttum leið
FV 7 1977
77