Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1977, Side 85

Frjáls verslun - 01.07.1977, Side 85
Eyvindur Mohr frá Færeyjum. Þann 18. sept. mun sænski leikarinn Ernst Hugo Járegárd lesa upp úr verkum sínum og nokkru seinna mun Sviinn Jan Mortenson flytja fyrirlestur um bókmenntir í Svíþjóð um þess- ar mundir og mun hann einnig lesa upp úr pigin verkum. ERRÓ MEÐ GRAFIKERUM Á KJARVALSSTÖÐUM Á Kjarvalsstöðum opnaði Myndkynning sýningu 27. ág- úst, en á þeirri sýningu eru grafikmyndir eftir þýzka og ís- lenzka listamenn og einnig 20 olíumálverk eftir færeyska list- málarann Eyvind Mohr. Alls eru um 60 grafikmyndir á sýn- ingunni, en þar eru 20 myndir eftir ERRO, Guðmund Guð- mundsson, og þrjár þeirra gerði hann sérstaklega fyrir þessa sýningu. ERRO hefur sem kunnugt er vinnustofu í París og Thailandi, en hann hefur getið sér orð víða um heim fyrir sérstæða list sína. Á næsta ári mun verða sérstök ERRO sýning á Kjarvalsstöðum á Listahátíðinni. Dagana 7.—27. sept. verður bandaríski málarinn A1 Copley með stóra yfirlitssýningu á verkum sínum á Kjarvalsstöð- um. A1 Copley er ef til vill kunnastur hérlendis fyrir að hafa verið eiginmaður Nínu heitinnar Tryggvadóttur lista- manns, en auk þess að vera víð- frægur blóðsjúkdómafræðingur er Copley kunnur málari í Bandarí'kjunum síðan 1940. Sýning hans á Kjarvalsstöðum er viðamesta sýning hans til þessa og sendi hann hingað 300 verk sem valið verður úr til að hengja upp. AUGA GEGN AUGA Á Kjarvalsstöðum verður einnig norræn samsýning dag- ana 7.—27. sept. Heitir sýning- in Auga gegn auga og er hún valin af einum manni til sýn- inga á öllum Norðurlöndunum. Þar eru sýnd alls konar verk frá Norðurlöndunum, málverk, höggmyndir, grafik, vefnaður og fleira og fleira. HAUSTSÝNING FÍM Þá er á dagskrá Kjarvals- staða haustsýning Félags ís- lenzkra myndlistarmanna og opnar hún 28. sept. n.k. en ó- ráðið er um fjölda verka og sýningaraðila. ERRÓ sem er líklega þekktasti íslenzki myndlistarmaðurinn á alþjóðavettvangi í dag. 30 ÞÚS. SÁU KJARVAL í ágústlok lauk Kjarvalssýn- ingunni sem hefur verið opin í sumar, en samikvæmt upplýs- ingum Alfreðs Guðmundssonar forstöðumanns Kjarvalsstaða sáu um 30 þús. manns þessa sýningu á Kjarval og þar af var mikill fjöldi erlendra gesta. Sandblástur og málmhúðun s.f. Iljalteyrargötu, Akureyri. Allskonar sandblástur og málmhúðun. Ennfremur heit galanhúðun ®___________ Framleiðsla á ljósa- staurum stellverk, grindamöstur ,svo eitthvað sé nefnt. • __________ Önnumst einnig alla aðra járnsmíði. Allar nánari upplýsingar í síma 96-22122. FV 7 1977 85

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.