Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1989, Qupperneq 25

Frjáls verslun - 01.07.1989, Qupperneq 25
 n l...‘ ilD 1' '%ilr ''ýjfíil Hf —\ 1 jglj Bræðurnir Garðar, Jón og Gunnar Jóhannssynir meirihluta hlutafjár í Fóðurblöndunni hf. og eiga nú um 99% af fyrirtækinu. Þá hafði Holtabúinu verið breytt í hlutafélag og framleiðslunni breytt í eggja- og kjúklinga- framleiðslu. Svínabúið seldu þeir. „Við keyptum Fóður- blönduna með það fyrir augum að að byggja fyrirtækið upp, fjárfesta í nýjungum og fara inn á fleiri svið fram- leiðslu. Við sáum að vaxtarbroddur yrði í framleiðslu á fiskeldisfóðri. Og til að ráða við þá framleiðslu leituðum við eftir samstarfi við erlenda aðila og til varð fyrirtækið Ewos hf., sem framleiðir fóður fyrir fískeldisstöðvar. Á svipuð- um tíma fórum við síðan út í samstarf við erlenda aðila um stofnun á hveitimyllu og fyrirtækið Kornax hf. varð að veruleika. Einnig eigum við Komhlöðuna með öðrum aðil- um. VERKASKIPTINGIN Við bræðurnir höfum auðvitað skipt með okkur verk- um. Ég er stjórnarformaður allra þessara fyrirtækja og hef frá upphafi séð um fjármál og frekari útþenslu. Garðar er framkvæmdastjóri Kornax en Jón er búsettur fyrir austan og er framkvæmdastjóri Holtabúsins. Allir eigum við jafn- an hlut í þessum fyrirtækjum og það má segja að fundir okkar þriggja séu nokkurs konar stjórnarfundir." Að framansögðu er ljóst að þeir Jón, Gunnar og Garðar virðast vel í stakk búnir til að reka fjölskyldufyrirtæki með sóma og hefur það form í raun og veru lagt grunninn að velgengni þeirra. En hvað verður um þessi fyrirtæki þegar dagar þeirra eru taldir? Er þeim bræðrum umhugað um að halda fyrirtækjunum og rekstrinum innan fjölskyldunnar eða vilja þeir breyta rekstrarfyrirkomulaginu? „Við erum ungir ennþá en höfum vissulega hugsað þetta mál út frá ýmsum hliðum. Núna eigum við samtals níu afkomendur og það er mjög ólíklegt að samtarf svona margra aðila geti orðið eins gott og samstarf okkar þriggja. Það eru því ýmsir hnútar í þessu sem þarf að leysa. En hvort við reynum að leysa þá sjálfir eða látum afkomendur okkar um að leysa þá er óljóst ennþá. MYNDIKANNSKIVEUA ARFTAKA Ég er ekkert viss um að bömin okkar kæri sig um að koma inn í reksturinn. Og það er spurning hvort ekki sé eðlilegra að þau sitji einungis í stjórn sem eigendur en komi að öðru leyti ekki nærri rekstrinum. Um þessar mundir er ekkert kappsmál fyrir mig persónulega að böm- in taki við af mér. En hugsanlega verður maður íhaldssam- ari með aldrinum. Þótt fyrirtækjasaga á Islandi sé mjög ung held ég að við höfum ágæta reynslu af fjölskyldufyrirtækjum hér. Hins vegar má segja að mörgum fjölskyldufyrirtækjum væri hollt að selja 50% hlutafjár til annarra aðila til þess að fjölskyldan hafi ekki hag af því að splundrast þegar meðlim- irnir eru orðnir margir. Víða erlendis eiga fjölskyldufyrir- tæki auðveldar uppdráttar einfaldlega vegna þess að þar gilda öðruvísi erfðalög. Sums staðar er nefnilega leyfilegt að gera afkomendum mishátt undir höfði og gera einn aðilann stekari innan fyrirtæksins en annan. Hér á íslandi má víst ekki gera afkomendum mishátt undir höfði og því ekki leyfilegt að velja sér arftaka eftir sinn dag. Þó að ég sé ekki að mæla því bót að gera upp á milli barna getur vel verið að ég myndi velja arftaka inn í fyrirtækið hefði ég til þess heimild,“ sagði Gunnar að lokum. 25
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.