Frjáls verslun - 01.07.1989, Side 39
Magnús Pétursson á skrifstofu sinni í Washington.
um kröfum er mjög mismunandi eftir
efnahag landanna. T.d. er hægt að
kaupa eitt hundrað dollara kröfu á
hendur Bólivíu fyrir 11 dollara. Kaup-
verðið er sem sagt í þessu tilfelli 11%
af nafnverði kröfunnar. Með þessum
hætti má kaupa skuldakröfur á hend-
ur Súdan fyrir 2% af nafnverði kröf-
unnar á hendur Perú fyrir 3% og á
hendur Panama fyrir 10%, svo dæmi
séu tekin. Bankarnir, sem selja kröf-
ur á þessu gengi, líta í raun á þær sem
tapaðar og eru fegnir að fá eitthvað
fyrir sinn snúð. Þetta lýsir í raun að
nokkru leyti skuldastöðunni hjá þess-
um ríkjum og fleirum sem svipað er
ástatt um.“
Þú nefndir áðan austantjaldsríki
sem eru aðilar að sjóðnum. Hvernig
famast þeim að eiga aðild að svo há-
kapitalískri stofnun?
,Já, það eru ekki síst málefni A-
Evrópuríkjanna sem eru áhugaverð
viðfangs. Þar er um að ræða hagkerfi
svo gerólík því sem við eigum að
venjast. Ungverjar hafa t.d. verið að
opna landamæri sín fyrir verslun með
vörur, þjónustu og gjaldeyri og virðist
ætla að takast nokkuð vel. Ég hef
einnig kynnst því í samskiptum mín-
um við Ungverja hér að þeir eru mjög
slyngir í viðskiptum og harðir banka-
menn, enda byggja þeir á langri hefð
sem efnahagslegt stórveldi í Evrópu
fyrr á árum. Júgóslavía hefur hins
vegar átt í verulegum erfiðleikum,
verðbólga rýkur upp og Júgóslövum
hefur reynst erfitt að hafa stjórn á
sínum efnahagsmálum. Allir þekkja
stöðu efnahagsmála í Póllandi.
Það hefur einnig verið nefnt að
Sovétríkin gerist aðili, án þess að séð
sé fyrir endann á þeim bollalegging-
um. Það er reyndar ákaflega athyglis-
vert mál, en til þess að Sovétmenn
geti orðið aðilar að sjóðnum þarf ým-
islegt að gerast. Þeir þurfa til dæmis
að opna allar sínar bækur um þróun
og stöðu efnahagsmála í Sovétríkjun-
um, enda byggist aðild eða „kvóti“
hvers ríkis á efnahagslegum styrk-
leika þess. Þeir yrðu því einnig að
gefa upplýsingar um gjaldeyrisvara-
sjóð sinn, t.d. gullforðann o.fl. o.fl.
Að þessum atriðum frágengnum
gætu þeir hugsanlega fengið aðild að
sjóðnum og notið fyrirgreiðslu hans.
Þó gætu fylgt aðildinni skilyrði, svo
sem varðandi umbætur í gengis- og
viðskiptamálum.
Þetta eru, enn sem komið er,
aðeins bollaleggingar og er aOs ekki
komið á formlegt umræðustig, en
engu að síður hlutir sem nefndir hafa
verið í almennri umræðu. Ef af yrði
myndu reyndar valdahlutföllin innan
Alþjóðagjaldeyrissjóðsins raskast
töluvert því þótt sovéskt efnahagslíf
sé kannske ekki kröftugt, þá fengju
þeir töluverð völd innan sjóðsins í
krafti stærðarinnar einnar.“
Hafa valdahlutföll hjá sjóðnum
breyst að einhverju leyti á síðustu
árum?
„Það sem hefur verið að gerast á
undanförnum misserum og árum er
sókn Japana á hinum alþjóðlega lána-
markaði. Nú stendur yfir endurskoð-
un á „kvóta“ aðildarríkja sjóðsins og
Japanir hafa sótt stíft að fá stærri
kvóta í sinn hlut. Ef það gengur eftir
gætu þeir orðið annar stærsti aðillinn
að sjóðnum í stað fimmta stærsta eins
og þeir eru nú. Staða efstu ríkjanna
myndi því væntanlega raskast eitt-
hvað og stærðinni fylgja áhrif eins og
allir þekkja. Ég get nefnt hér að Japan
hefur þegar tekið annað sætið á eftir
Bandaríkjunum í stjórn Alþjóðabank-
ans.
En Japanir hafa sótt í sig veðrið á
annan hátt, nefnilega með því að veita
„parallel" eða samhliða lán til ríkja
sem sjóðurinn veitir fyrirgreiðslu. Til
þessa ætla þeir á þessu ári um 6 millj-
arða dollara. Þeir hafa einnig stórauk-
ið framlög sín til þróunarmála á síð-
ustu árum, einkum í Asíu og Kyrra-
hafinu, og er það ein leiðin sem þeir
nota. Þetta er ekki ýkja vel séð meðal
þeirra ríkja sem fremst hafa staðið í
þessum málum, en peningarnir tala
sínu máli.“
FÆRT FÓLK
Hvemig blasir starf sjóðsins við
þér frá sjónarhóli þess sem kemur úr
starfi hagsýslustjóra á íslandi?
„Ég hef verið við störf hér í eitt og
hálft ár og vitanlega tók það nokkra
mánuði einfaldlega að öðlast innsýn í
gang mála, vinnubrögð og starfsað-
ferðir. Það sem e.t.v. kom mér mest
á óvart var hvílíkur óhemjufjöldi er
hér af færu starfsfólki. Hér eru um
2000 starfsmenn og hefur verið ákaf-
lega athyglisvert að fylgjast með því
hvernig vinnan hér gengur fyrir sig.
Viðfangsefnin eru einnig gífurlega
lærdómsrík. Maður sér auðvitað
efnahagsvanda annarra þjóða heims í
allt öðru ljósi en þegar maður situr í
Arnarhvoli. Sum lönd eiga við svo
stórkostlega mikil vandamál að etja
að vandinn heima fyrir verður smá-
vægilegur í samanburði við það Það
er líka gaman að fylgjast með þróun
þessara landa, fylgjast með breyting-
um sem gerðar eru á ýmsum sviðum
efnahagslífsins og afleiðingum sem
þeim fylgja.
39