Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1989, Page 47

Frjáls verslun - 01.07.1989, Page 47
• BANDARÍSK FYRIRTÆKIGERA VEL VIÐ SITT FÓLK Samkvæmt könnun sem gerð hef- ur verið gera bandarísk fyrirtæki vel við starfsfólk sitt og láta það njóta þess, þegar vel gengur. Kemur það sér vel því almenn laun í flestum fyrir- tækjum og starfsgreinum eru ekki eins há og ýmsir halda. Meira en helmingur bandarískra fyrirtækja, eða 56%, greiðir starfs- mönnum sínum kaupauka í reiðufé eftir ýmiskonar reglum. Rösklega þriðja hvert fyrirtæki (37%) efnir til þakkarhátíða fyrir starfsfólk sitt og veita þar ýmiskonar verðlaun. í álíka mörgum fyrirtækjum er það siður að æðstu ráðamenn skrifi eða kalli starfsmenn á sinn fund til að þakka þeim persónulega vel unnin störf. Rúmlega fimmtungur bandarískra fyrirtækja (22%) gefur starfsfólki sínu gjafir fyrir vel unnin störf en 17 af hverjum 100 fyrirtækjum gefa starfs- mönnum sínum aukin frí fyrir vel unn- in störf og góðan árangur. Loks tíðkast það hjá um 12% fyrir- tækja að bjóða starfsmönnum sínum ýmis frí ferðalög þegar vel hefur gengið og til að hvetja þá til aukinna dáða. í sumum tilvikum eru slík ferða- lög milli landa og greiðir þá fyrirtækið bæði ferðalög og uppihaldskostnað og býður í dýrindis veislur og kynningar- ferðir. • SJÓNVARP Á HVERN FARÞEGA Nú mun þess skammt að bíða að allar kvikmyndir, sem sýndar eru í farþegaflugvélum, verði sýndar á skermum smásjónvarpstækja sem hver farþegi hefur fyrir sig. Á dögunum tók bandaríska flugfé- lagið Northwest Airlines í notkun Boeing 747 risaþotu þar sem sjón- varpstækjum með þriggja tommu skermi er komið fyrir í nokkrum stól- bökum bæði á 1. farrými og í almennu farþegarými. Á þessum skermum geta farþegar fengið að sjá að eigin vali kvikmyndir, íþróttaviðburði, flutning tónlistar, fréttaþætti eða kafla úr vinsælum sjónvarpsþáttum af myndböndum. Skermar þessara litlu sjónvarps- tækja eru gerðir úr fljótandi kristal og notendur verða að hafa heymartól til að nema tal og hljóð. Ymsir spá því að þessi litlu sjón- varpstæki verði orðin algeng í far- þegavélum stærri flugvéla snemma á næsta áratug. Með tilkomu þessara tækja gefst flugfarþegum kostur á að njóta sjón- varpsins að eigin vali. Það þurfa ekki allir að sjá sömu myndina og það þarf ekki að myrkva allt farþegarýmið. En það eru fleiri nýmæli á döfinni fyrir flugfélög. Kanadískt fyrirtæki er um það bil að senda á markaðinn tæki með litlum sjónvarpsskermi og er það áfast við eða innbyggt í bakka sem veitingar eru bomar fram á í flugvél- um. Á þessum skermum verður unnt að fara í ýmsa tölvuleiki. Vafalaust mun ýmsum finnast sem langar flug- ferðir styttist mjög með tilkomu slíkra leiktækja. • KARLMENN EYÐA MEIRU EN KONUR r ■■ IFOT Þegar einlileypt fólk fer í fataversl- un, hvort heldurðu að kaupi þá meira karlmaður eða kona? Samkvæmt könnunum sem gerðar hafa verið í Bandaríkjunum eru það karlmennimir. Karlmenn á aldrinum 55 til 64 ára skekkja niður- stöðurnar dák'tið því talsverður hluti af því fé, sem þeir eyða í fataverslun- um, fer í gjafir sem ætlaðir eru kon- um. „Karlmemi, 55-64 ára gamlir, keyptu að meðaltali fyrir 1128 dollara í fataverslunum veturinn 1984-’85 en konur á sama aldri keyptu að meðal- tali fyrir 682 dollara," segir í niður- stöðu könnunar sem tímaritið Ameri- can Demographios Magazine gerði og birt var nú nýlega. í öllum öðrum aldursflokkum keyptu konur meira af fatnaði en karl- ar. En þetta örlæti fullorðinna karl- manna nægði til þess að meðaleyðsla einhleypra karlmanna til fatakaupa varð 735 dollarar móti 657 hja konum. Stjómandi könnunarinnar segir, að fatnaður til gjafa hafi þarna ráðið úrslitum. Því er slegið föstu að einn fjórði hluti eða 25% alls fatnaðar sem einhleypir karlmenn kaupi sé ætlaður til gjafa en þegar konur eigi í hlut fari einungis 14% til gjafa. Stjómandi könnunarinnar er sérfræðingur í rannsóknum er lúta að eyðslu neytenda, en tímaritið sem bað um að könnunin yrði gerð er gefið út af Dow Jones & Co og fjallar um fólk og markaðsmál. Stjómandinn tekur fram að þó laun kvenna hafi hækkað á síðari árum vanti enn mikið á að þær hafi sömu laun og karlar í öllum aldursflokkum. Þess vegna sé eðlilegt að einhleypar konur eyði minna í einstaka vöru- flokka, en það sem þær eyði t.d. í fatnað sé þó tiltölulega hærri upphæð en karlar eyði miðað við laun þeirra. Kannanir sýna að einhleypar konur eyða stærri hluta launa sinna í neysluvaming, húsnæði, sjúkra- tryggingar, persónulega þjónustu og lestrarefni en einhleypir karlar. Karlmenn eyða hins vegar meiru í mat á veitingastöðum, áfengi, bfla eða önnur farartæki, skemmtanir, tóbak og áætlanir varðandi elliárin. Það er algengara að einhleypar bandarískar konur eigi íbúð en ein- hleypir karlar. Hlutfallið er 41% hjá konum en 29% hja karlmönnum. Ein- hleypar konur í Bandaríkjunum eru yfirleitt eldri en einhleypir karlmenn, eða 55 ára og eldri á móti 35 árum og þaðan af minna meðal karlmanna. Einhleypar konur vörðu helm- ingi meira fé en karlar í heilsugæslu, en karlmennirnir eyddu miklu meira í alls konar skemmtanir. „Kannski er það m.a. vegna þess að það er yfir- leitt karlmaðurinn sem borgar þegar hann á stefnumót við konu,“ segir stjórnandi könnunarinnar. 47

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.