Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1989, Side 65

Frjáls verslun - 01.07.1989, Side 65
Við opnun Sky sjónvarpsins á fjórum rásum var Murdoch spurður að því hvort áhorfendur fengju að sjá „innyflasjónvarp“ — eitthvað í stíl við dag- blaðið The Sun. Þetta hrærði viðkvæma strengi í brjósti Murdochs sem er hrifinn af blaði sínu og hann svaraði. „Ég er hreykinn af The Sun.“ Hann sagði einnig að Englendingar snobbuðu fyrir ríkjandi sjónvarpskerfi. Sjónvarpsþættir eins og America’s Most Wanted hafa náð gífurlegri horfun í Bandaríkjunum og slegið út efni frá stóru sjónvarpsnetunum. Hér sést einn af „fréttapönkurum“ Murdochs — John Walsh, krossfari gegn glæpum, að biðja áhorfendur um hjálp til að finna glæpamenn. Þátturinn er byggður á breskum sjónvarpsþáttum sem nefnast Crimewatch UK. En bandaríska gerðin er helmingi grófari og glæpirnir eru sviðsettir í sjónvarpinu með safaríku myndefni. er algeng þumalfingursregla í sjónvarps- iðnaðinum í Bandaríkjunum að sjón- varpsþáttur sem er sýndur í New York og Los Angeles — tveimur stærstu mörkuðunum — ber sig. Þegar efnið hefur verið mjólkað í Bandaríkjunum er það síðan selt til evrópskra sjónvarps- stöðva. Þetta er ástæðan fyrir því að Bandaríkin hafa náð slíkum yfirburðum í útflutningi á sjónvarpsefni. Önnur ríki komast ekki með tæmar þar sem þau hafa hælana í slíkum útflutningi. Mur- doch getur selt sjálfum sér sjónvarpsefni sem hann er þegar búinn að græða stór- fé á í Ameríku og sýnt það í Sky sjón- varpinu. Þegar Fox samsteypan fer að skila arði mun Sky sjónvarpið einnig skila arði. En það er ekki víst að dæmið gangi upp. Engum hefur áður tekist að breyta ríkjandi sjónvarpskerfi í Bandaríkjunum. Margir hafa reynt það en fjögur sjón- varpskerfi virðast ekki geta gengið. Murdoch hefur lagt út í gífurlegar fjár- festingar sem gætu riðið honum að fullu. Það er vitað að lánadrottnamir hanga yfir honum með hvassar klærnar úti. Dagblöð hans í Bretlandi, The Sun, News of the World, Today, The Times og The Sunday Times skila hámarks- gróða síðan Murdoch færði vinnslu þeirra til nútímalegra horfs. Fram að þeim tíma er hann færði öll blöðin í nýtt húsnæði í Wapping niður við ána Tha- mes í Lundúnum, hafði ímynd Murdochs verið sterk í Bretlandi. En þegar hann ákvað að reka um 5000 prentara sem áttu í stríði við hann í eitt og hálft ár fyrir utan víggirta bygginguna í Wapping beið írnynd hans stórkostlegan hnekk í Bret- landi. Margir eru honum þakklátir fyrir að hafa brotið prentarana á bak aftur þar sem þeir stóðu í vegi fyrir nauðsynleg- um framförum í prentiðnaðinum. Verka- lýðsfélag prentara í Bretlandi var eitt það sterkasta á Bretlandseyjum og Mur- doch vissi að hann myndi lenda í útistöð- um við þá. Getgátur hafa verið uppi um það af hverju ríkisstjóm Margaret Tha- tcher lánaði Murdoch 35 milljónir punda til að byggja Wapping húsnæðið en fréttaskýrendur hafa einfaldlega sagt að Thatcher hafi veðjað á réttan hest. Síðan Murdoch flutti sig um set frá Fleet Street til Wapping hafa flest dagblöðin í Bretlandi fetað í fótspor hans. Fox sjónvarpið og Sky ævintýrið hafa til þessa gleypt gróðann sem streymir út úr Wapping. Hreinn gróði af dagblaðar- ekstri Murdochs í Bretlandi var um 170 milljónir punda á síðasta ári — bæði sjónvarpsfyrirtækin standa höllum fæti og er reiknað með að Murdoch reyni að selja 308 milljón punda hlut sinn í Pear- son fyrirtækinu, sem gefur út dagblaðið Financial Times, til þess að borga lána- drottnum sínum í Bandaríkjunum. Ef langþráður draumur Murdochs um að láta sjónvarpsfyrirtækin skila gróða ræt- ist verður News Corporation Intema- tional eitt öflugasta fjölmiðlafyrirtæki í heimi. Murdoch hefur sýnt það að hann er reiðubúinn til þess að lyfta grettistök- um til að ná árangri. Hann er stálmaður með járnvilja en það er spurning hvort hann hefur ekki hætt of miklu í þetta skipti. 65

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.