Frjáls verslun - 01.03.1991, Side 43
með aðrar þarfir en t.d. Bandaríkja-
markaður.
Helsta nýjung Sharp í myndritum
er tæki sem kallast FO 5200. Þor-
valdur Birgisson, sölumaður hjá
Skrifbæ, segir tækið vera búið nýrri
tækni sem skili jafn miklum prent-
gæðum og laser prentari gerir. FO
5200 myndritinn er hannaður fyrir
venjulegan pappír. Tækið er búið
minni sem tekur viðstöðulaust við 10
blöðum og sér sjálft um að senda þau
þegar samband næst. Minni myndrit-
ans gerir notanda einnig kleift að
senda sama blaðið á 32 mismunandi
staði þó því sé aðeins rennt einu sinni
í gegn. Ef pappír myndritans klárast
geymir hann aðsend bréf í minninu og
rennir þeim sjálfkrafa út þegar pappír
hefur verið látinn í vélina aftur. Tækið
er einnig búið leyninúmerakerfi fyrir
trúnaðarmál og hægt er að stilla það á
sendingu fram í tímann.
Sharp fyrirtækið setti nýverið
tvær nýjar tegundir af ljósritunarvél-
um á markaðinn. Annars vegar
SF-9400, sem er hönnuð fyrir stærri
fyrirtæki, og hins vegar SF-7800 sem
hentar öllum meðalstórum skrifstof-
um.
SF-9400 er, að sögn Þorvaldar,
geysilega öflug vél sem tekur 50 ein-
tök á mínútu og raðar blöðum sjálf í
sett og heftar þau saman án þess að
mannshöndin komi nærri. Hún er
búin svokölluðu stilliminni sem vinnur
þannig að þó búið sé að mata vélina á
200 eintökum er hægt að stöðva ljós-
ritunina hvenær sem er og skjóta
öðru verkefni inn í og láta hana svo
halda áfram þar sem frá var horfið.
Vélin ljósritar báðum megin og snýr
bæði afriti og frumriti við sjálfkrafa.
SF-7800 ljósritunarvélin er fyrir-
ferðarlítil og segir Þorvaldur að hún
sé búin öllum nauðsynlegasta búnaði
fyrir meðalstóra skrifstofu. Hún gef-
ur m.a. möguleika á stækkun og
minnkun texta og raðar blöðum einnig
í sett.
Benedikt Lövdahl, sölustjóri Umfangs, stendur hér fyrir framan Konica
litaljósritunarvélina sem er sérlega fyrirferðarlítil.
UMFANG HF.
Umfang hf., er ungt fyrirtæki,
stofnað af fyrrverandi starfsmönnum
Skrifstofuvéla hf. KONICA heita
skrifstofutækin, sem Umfang flytur
inn, en enn sem komið er verslar
fyrirtækið aðeins með ljósritunarvél-
ar og myndrita. Að sögn Benedikts
Lövdahl, sölustjóra fyrirtækisins, er
ætlunin að flytja inn öll önnur skrif-
stofutæki en tölvur og ritföng í nán-
ustu framtíð.
Byltinguna í Konica ljósritunarvél-
um segir Benedikt vera nýju Konica
8028 vélina. Þetta er þriggja lita vél
sem ljósritar með sömu gæðum og
laserprentari. Litirnir eru svartur,
blár og rauður. Venjulegir áherslu-
pennar í sömu litum gera notandanum
kleift að ráða í hvaða litum textinn á að
ljósritast. Dugar að strika í eða í
kringum þann part af textanum sem á
að vera blár eða rauður, sama hvar á
blaðinu hann er staðsettur. Það er
einnig hægt að stilla vélina þannig að
hún þurrki út þann part af texta sem
strikað er í kringum.
Benedikt segir vélina vera sjálf-
virka að verulegu leyti sem gerir hana
mjög einfalda í notkun. Hvert blað fer
aðeins einu sinni í gegnum vélina þó
hún prenti á það í þremur litum sem
kemur í veg fyrir að blaðið verði
stökkt og verpist, sér í lagi sé um
endurunninn pappír að ræða.
Aðra nýjung í Konica ljósritunar-
vélum segir Benedikt vera meðal-
stóra vél sem heitir Konica 3035.
Vélin er fyrirferðarminni en hefur
áður tíðkast en er búin nýjustu tækni
sem völ er á fyrir meðalstóra skrif-
stofu. Pappírsbakkarnirerut.d. látnir
vera undir vélinni sem sparar pláss.
Af myndritum er Konica Fax 120
nýjastur. Þetta tæki segir Benedikt
vera lítið og nett með öllum þeim
möguleikum sem skrifstofa þarf á að
halda, svo sem 100 númera minni, 16
grátóna skala, sem gefur mjög skýra
mynd, frumritamatara, sjálfvirkri
endurhringingu o.fl.
EGILL GUTT0RMS-
S0N - FJÖLVAL HF
Fyrirtækið Egill Guttormsson-
Fjölval hf. flytur inn Riso fjölrita og
Mita ljósritunarvélar. Að sögn Sturlu
Eiríkssonar, forstjóra fyrirtækisins,
hefur orðið bylting í þróun fjölrita
undanfarin ár. Japanska fyrirtækið Ri-
so hóf framleiðslu fjölrita fyrir 40 ár-
um síðan og árið 1980 markaðssetti
það stafræna fjölrita sem gáfu mun
meiri myndgæði en áður hafði tíðk-
ast. Sturla segir þessa fjölrita gefa
ljósritunarvélum lítið eftir í prent-
gæðum í dag og að prentsvertusmit
úr þeim sé svo til úr sögunni.
43