Frjáls verslun - 01.03.1995, Side 20
FORSIÐUGREIN
og seldust hlutabréf fyrir 50 milljónir
að nafnvirði, á genginu 1,6, á aðeins
einum og hálfum degi. Fyrir útboðið
höfðu Olís-menn gert ráð fyrir að það
tæki um tvo mánuði að selja bréfin.
FYRST FÉLAGA TIL SKRÁNINGAR
Á VERÐBRÉFAÞINGIÍSLANDS
Oh's og Landsbréf nýttu sér
strax þennan byr og komu með
annan hluta útboðsins aðeins
viku síðar, miðvikudaginn 27.
júní. Sagan endurtók sig hressi-
lega. Bréfin fóru á aðeins einum
og hálfum degi þrátt fyrir að
sölugengið hefði verið hækkað í
1,7 stig. í þessum tveimur út-
boðum fjölgaði hluthöfum í Olís
úr 31 í um 400 talsins. Salan á
síðasta áfanga útboðsins, 57
milljónunum, gekk einnig afar
vel. Olís var greinilega orðið
vinsælt hjá fjárfestum. Því hefði
enginn trúað aðeins einu ári
áður. Þess má geta að nokkrum mán-
uðum síðar, 1. október 1990, sam-
þykkti Verðbréfaþing íslands að skrá
bréf Olís og Fjárfestingafélags ís-
lands. Þar með var Olís skyndilega
orðið annað tveggja félaga sem fyrst
voru skráð á þinginu. Það var heiður
fyrir félagið.
Fyrir 157 milljóna króna hlutafjár-
útboð Olís voru stærstu hluthafarnir
þessir:
1. Sund hf. .... 325,0 mkr. ( 63,8%)
2. Texaco. 153,0 mkr. ( 30,0%)
3. Helga Ingim. 7,9 mkr. ( 1,5%)
4. Aðrir ....... 24,4 mkr. ( 4,7%)
Samtals... 510,3 mkr. (100,0%)
Eftir þetta 157 milljóna króna hluta-
fjárútboð Oh's, að nafnvirði, fór heild-
Afkoman árin 1987 til 1994
Afkoman hjá Olís hefur verið góð undanfarin
ár.
arhlutaféð í um 667 milljónir króna.
Litlar breytingar hafa orðið á því síð-
an. Síðustu tvö árin hefur hlutaféð
staðið fast í 670 milljónum að nafn-
virði. Félagið hefur ekki gefið út jöfn-
unarhlutabréf heldur lagt áherslu á að
greiða út arð. Ef þau Gunnþórunn og
Óli hefðu selt hlut sinn, 325 milljónir
króna, á þessum tíma á genginu 1,7
hefðu þau fengið að minnsta kosti um
550 milljónir í vasann. Launin fyrir að
bjarga fyrirtækinu út úr vandræðun-
um voru því rífleg.
Hvorki fyrirtæki þeirra Gunnþór-
unnar og Óla, Sund hf., né Texaco í
Danmörku, keyptu bréf í fyrrnefndu
157 milljóna útboði. Við það lækkaði
hlutur þeirra í félaginu. Hlutur Sunds
fór niður í um 49% og Texaco
niður í um 25,4%. Sund hf. seldi
síðar um 23 milljónir að nafnvirði
og við það fór hlutur félagsins í
Olís niður í 301,5 milljónir.
GUNNÞÓRUNN SELDIÁ
RÍFLEGA ÞREFÖLDU GENGI
Það var svo þetta 301,5 mill-
jóna króna hlutafé, 45,5% eign-
arhluti í Olís, sem Sund seldi á
dögunum til Olíufélagsins og
Texaco fyrir rúman 1 milljarð
króna. Það skiptist þannig að
Olíufélagið keypti 35% hlut og
Texaco 10%.
Þess má geta að eftir andlát
Kr. Sigurðssonar, í júlí 1992,
eignaðist Gunnþórunn ekki Sund hf.
að fullu. Synir Óla af fyrra hjónabandi,
Janus og Sigurður Óli, erfðu hluta í
fyrirtækinu. Aður en Gunnþórunn
seldi hlut Sunds í Oh's á dögunum
hafði hún keypt hlut bræðranna. Um
þau mál hefur staðið nokkur styr,
sem ekki verður vikið að frekar í
þessari fréttaskýringu, enda búið að
fjalla um það mál talsvert í öðrum
fjölmiðlum.
Óla
10 þekktustu konurnar í viöskiptalífinu
RAKEL
VILBORG
k\ dz m vmJf \ i B í - aSB Wf/ H 17 ^ mH M - v
& *M 14 mMl
\| u ,
Wjíji, -• ♦ vjgsi m' P w
JL' - J| Vk~'Æ m
|p®' k «
1'/ M
Gunnþórunn hefur verið áberandi í viðskiptalífinu eftir að Óli heitinn lést sviplega 9.
júlí 1992. I nóvember síðastliðnum valdi Frjáls verslun hana sem eina af tíu þekktustu
konum viðskiptalífsins.
FYRSTA FYRIRTÆKIÓLA
0G GUNNÞÓRUNNAR VAR
MÓAR HF.
Fyrr var minnst á það
að Gunnþórunn hafi hald-
ið sig baksviðs í rekstri
Sunds hf. en Óli verið í
eldlínunni. Þau hafa engu
að síður staðið þétt sam-
an í fyrirtækjarekstri frá
því þau hófu sambúð um
áramótin 1973 og 1974.
Fljótlega fóru þau að
stunda innflutning og hét
fyrsta fyrirtækið þeirra
Móar sf. Það flutti inn
sloppa. Síðar stofnuðu
þau Sænsk-fslenska
verslunarfélagið og fluttu
20