Frjáls verslun - 01.03.1995, Blaðsíða 25
HHNIHHHHHHHnHHHHSSUBi
VONIN UM HAGNAÐ. Fyrirtæki úti í heimi hafa ekki síst tekið umhverfisvernd inn í stefnu sína til að
skapa aukin viðskipti. Hagnast. Hagnaðarvonin kveikir helst í stjórnendum til að taka af festu á
umhverfis- og gæðamálum.
mengunarslys. Tankbílar er búnir
mengunarvarnarbúnaði með mikilli
lekavörn ef óhapp skyldi eiga sér
stað. Raunar hefur nýlega reynt á
slíkan búnað í óhappi sem varð norður
í Þingeyjarsýslu. Þar sannaði búnað-
urinn sig.
UMHVERFISFÉLAG
ÍSLANDSBANKA
íslandsbanki er eitt þeirra fyrir-
tækja sem hefur sérstaka umhverfis-
stefnu og hefur látið þau mál til sín
taka í kynningu og markaðssetningu.
Mjög gott samstarf er á milli bankans
og starfsmanna um umhverfismál.
Það birtist ekki síst í því að árið 1993
stofnaði starfsmannafélagið sérstakt
Umliverfisfélag til að efla þekkingu og
vitund viðskiptavina, eigenda og
starfsmanna íslandsbanka, fjöl-
skyldna þeirra og annarra á umhverf-
ismálum.
Á meðal þess sem Umhverfisfélag
íslandsbanka hefur staðið fyrir á und-
anfömum fjórum árum er að halda
sérstakan skógræktardag bankans og
hafa starfsmenn gróðursett um 20
þúsund trjáplöntur á um 14 stöðum
víðs vegar um landið. íslandsbanki
hefur fengið verulega kynningu á
þessari starfsemi sinni í fjölmiðlum
auk þess sem bankinn hefur sjálfur
gefið út prentað efni um mikilvægi
umhverfismála þar sem stefna hans
er kynnt.
Þessi dæmi hér á undan um það
hvernig umhverfismál hafa verið sett
inn í markaðsstefnu og heildarstefnu
fyrirtækja eru ekki valin af handahófi
heldur til að sýna að þótt starfsemi
fyrirtækja sé gjörólík koma umhverf-
ismál við sögu í öllum fyrirtækjum.
Allir sjá strax mikilvægi þess að olíu-
félög sinni umhverfismálum en ein-
hver kynni að spyrja hvers vegna
banki láti þessi mál sig varða.
UMHVERFISVERND ÁÞREIFANLEG
í FRAMLEIÐSLUFYRIRTÆKJUM
Þarna blasir við einn af hornstein-
unum í umhverfisvernd. Hann er sá
að umhverfismál snerta öll fyrirtæki,
hvort heldur þau eru í framleiðslu eða
þjónustu. Umhverfisvemd hlýtur
samt ævinlega að vera óáþreifanlegri
í þjónustufyrirtæki en fyrirtæki í
framleiðslu þar sem hún er mjög
áþreifanleg.
Fyrirtæki í þjónustu geta lagt mál-
inu lið með alls kyns kynningu á nauð-
syn umhverfisverndar ásamt því að
nota vistvænar vörur til rekstursins.
Þannig geta þau sett inn í stefnu sína
að nota endurunninn pappír; að
ákveða hversu mikill pappír sé notað-
ur; að flokka úrgang; nota umhverfis-
væna tússpenna; að tæki, eins og
lyftarar, séu rafknúnir og mengi sem
minnst; að skipuleggja umferð bfla og
tækja á athafnasvæðum sínum og
þannig mætti lengi telja.
Flokka má umhverfisvernd í ís-
lensku atvinnulífi í þrjá flokka. Þau
fyrirtæki sem þegar hafa umhverfis-
mál í stefnu sinni. Þau sem eru að
byrja að vinna að þessum málum.
Loks eru það þau fyrirtæki sem ekki
eru farin að gera neitt. Sá flokkur er
því miður enn langfjölmennastur.
Ætla má að aðeins í kringum 15 til
l IÝIR TÍMAR * r IÝJA R t (RÖ >FU IR
SORPTÆKNI býður
fyrirtækjum og
sveitarfélögum lausn
á sorpfrágangi fyrir
ólíkar aðstæður.
SORPTÆKNIer
umboðsaðili fyrir þrjá
affremstu
framleiðendum
sorptætara,
pressugámaog
safnstöðva í Evrópu.
25