Frjáls verslun - 01.03.1995, Blaðsíða 54
NÆRMYND
lands og verið gestur á heimili Áma. í
viðtölum hefur Árni sagt að fljótlega
fari mesti glansinn af því að umgang-
ast stórar stjömur og segir það ekki
stíga sér til höfuðs að hitta frægt fólk
sem í flestum tilvikum sé mjög líkt og
fólk er flest en meðal uppáhaldsleik-
ara Áma má nefna Harrison Ford og
Sean Connery.
Á ÍBÚÐ í LOS ANGELES
Starfið felur það í sér að Ámi
þarf að dvelja langdvölum er-
lendis og þau hjónin eiga íbúð í
Los Angeles og dvelja þar í vax-
andi mæli við að sinna viðskipta-
samböndum. Los Angeles er
meðal uppáhaldsstaða hans í
heiminum og þar á hann fjölda
vina og viðskiptafélaga og má
segja að það sé orðið hans annað
heimili.
„Hann fylgir einni meginstefnu í
viðskiptum og hún byggir á hans eigin
vinnusemi og hörku,“ segir maður
sem þekkir Áma mætavel gegnum
starfið.
Jóhannes Jónsson kaupmaður í
Bónus hefur þekkt Áma árum saman
bæði gegnum viðskiptin og einnig
persónulega.
„Ég kynntist honum fyrst þegar ég
keypti af honum plastpoka fyrir Slát-
urfélagið í gamla daga. Pabbi hans
framleiddi sellófanpoka, mikill
ágætismaður. Ámi er fyrst og fremst
hörkuduglegur og skemmtilegur fé-
lagi sem er laus við allt snobb."
„Ég kynntist Áma fyrst gegnum
Áramót. Mér sýnist hann vera harð-
snúinn bisnessmaður með yfirburða-
þekkingu á því sem hann er að fást
við. Sumir segja að hann sé frekur en
ég hefi ekki séð þá hlið á honum enda
höfum við alltaf setið sömu megin við
borðið,“ segir Þorgeir Baldursson
forstjóri prentsmiðjunnar Odda.
„Menn halda sjálfsagt að það þuríi
einhveija sérstaka hörku í þessu en
það er fyrst og fremst eljusemi og
þekking.“
MIKIÐ FJÖLSKYLDUFYRIRTÆKI
Ami stendur ekki einn í sínum
rekstri því synir hans, Björn og Al-
freð, taka virkan þátt í starfinu með
föður sínum. Það gerir reyndar eigin-
konan, Guðný, einnig en Elísabet,
dóttir Áma, er nú búsett í Banda-
ríkjunum, annars væri hún eflaust við
störf hjá fjölskyldufyrirtækinu. Alls
vinna ríflega 100 manns hjá SamFilm
og Sambíóunum, flestir reyndar
við bíóin.
Björn er titlaður fram-
kvæmdastjóri Sambíóanna en
Alfreð er markaðsstjóri. Þetta
eru alls ekki alfarið skrifstofust-
örf því oft stendur Björn í dyrum
í Bíóborginn og rífur af miðunum
meðan starfsvettvangur Alfreðs
er í Bíóhöllinni. Þannig nýtur
Ami þeirra forréttinda að vinnan
tekur ekki of mikinn tíma frá fjöl-
skyldunni því fjölskyldan er með
honum í vinnunni. En hvernig er
að vinnan undir stjórn pabba
gamla? Því svara þeir bræður Björn
og Albert sem hvergi hafa unnið ann-
ars staðar en í fyrirtækjum íjölskyld-
unnar og byrjuðu sem smápoOar í Vík-
urbæ í Keflavík að sinna ýmsum við-
vikum eins og að mala kaffibaunir fyrir
viðskiptavini eftir pöntun.
„Hann er frekar kröfuharður yfir-
maður bæði við okkur og aðra starfs-
menn. Það má segja að okkur finnist
hann harður en sanngjam,“ segja þeir
bræður. „Þó gerðar séu kröfur til
Ámi er í hugum margra Keflvíkingur. En svo
er ekki. Hann ólst upp í Hlíðunum í Reykjavík.
^TTri i i
HJ Electrolux
I mismunandi hceðum.
Einfaldir í uppsetningu.
Margir aukahlutir s.s.
venjulegar hillur, slá fyrir tromlur o.fl.
eenBTKueroK
r»aijcf\ Borgartúni 26, Reykjavík.
; Sími 91-622262. Símbréf 91-622203.
GALVANISERAÐIR
BRETTAREKKAR
54