Frjáls verslun - 01.03.1995, Blaðsíða 62
FOLK
ARNRÚN KRISTINSDÓTTIR, BORBIFYRIR TVO
„Mér fannst vera þörf
fyrir verslun af þessu tagi,
þar sem verslað er með lit-
ríkan og líflegan borðbúnað,
og fann vöru að mínum
smekk í Frakklandi, Þýska-
landi, Englandi og á Ítalíu.
Þegar borðaður er góður
matur skiptir máli hvernig
lagt er á borð og fólk hefur
gaman af að breyta til og fá
sér nýja línu inn á heimilið,“
segir Arnrún Kristinsdóttir
eigandi verslunarinnar Borð
fyrir tvo í Kringlunni.
Arnrún er 36 ára og tók
gagnfræðapróf frá Voga-
skóla. Að því búnu fór hún í
Húsmæðraskóla Suður-
lands að Laugarvatni og var
með síðustu nemendunum
sem voru þar í heilan vetur.
„Þegar ég var í skóla
vann ég öll sumur í Lands-
bankanum og í einn vetur að
TEXTI: ELÍSABET ÞORGEIRSDÓTTIR
loknum skóla. Síðan fór ég
að vinna við útstillingar í
Karnabæ og ákvað að læra
fagið. Það gerði ég með eins
vetrar námi í Kaupmanna-
höfn. Eftir að heim kom
urðu útstillingar fyrst auka-
vinna hjá mér þegar ég vann
á nokkrum stöðum, fyrst hjá
Ásbirni Ólafssyni, heild-
verslun, síðan hjá Fálkanum
við auglýsingar og loks hjá
Auglýsingaþjónustunni við
almannatengsl.“
Rúna bjó á Spáni á árun-
um 1985 til 1987 þar sem
maður hennar lék hand-
knattleik. Eftir að þau komu
heim urðu útstillingar aðal-
starf hennar og á tímabili
hafði hún eina manneskju í
vinnu. I nóvember 1991
stofnaði hún verslunina
Borð fyrir tvo í Borgar-
kringlunni ásamt Sigríði
Héðinsdóttur en hún seldi
sinn hlut fyrir um ári síðan. I
febrúar sl. flutti verslunin úr
Borgarkringlunni yfir í
Kringluna.
BfltTTU VIÐ NÁTTÚRULEGUM
SNYRTIVÖRUM
„Ég hef keypt inn vöru
sem mér finnst falleg og
vona að fleiri hafi sama
smekk,“ segir Rúna þegar
hún er spurð hvað einkenni
verslun hennar. „Búðin hef-
ur markað sér ákveðna sér-
stöðu og á tryggan hóp við-
skiptavina. Ég legg áherslu
á að halda þeim stíl, sem
markaður var í upphafi, og
segi stundum að ég sé með
vöru fyrir lrfslistamenn.
Verslunarrekstur hefur
verið eríiður sl. tvö ár og
vörur eins og ég hef á boð-
stólum eru eitt það fyrsta
sem fólk sparar þegar
kreppir að. En nú sýnist
mér málin vera að komast í
góðan farveg og er bjartsýn.
Reyndar ætlaði ég í upphafi
að hafa verslunina sem
aukastarf með útstillinga-
vinnunni en starfið var fljótt
að vinda upp á sig. Ef vel á
að ganga þarf að hugsa um
svona fyrirtæki eins og
barnið sitt.
Á sl. ári tókum við inn
nýja vörutegund þegar við
yfirtókum vörur úr verslun-
inni Bað og heilsa, sem var í
Borgarkringlunni. Það eru
náttúrulegar bað- og húð-
snyrtivörur frá Neal’s Yard í
London. Við hófum þá einn-
ig sölu á handklæðum og
baðherbergisvörum. “
AÐ ELDfl OG BORÐA MEÐ
GÓÐUM VINUM
Eiginmaður Rúnu er Ein-
ar Þorvarðarson, landsliðs-
þjálfari í handknattleik, og
eiga þau 14 ára dóttur og 5
ára son.
„Vegna þess hvað starfið
tekur mikinn tfma reyni ég
að gefa fjölskyldu og vinum
sem mest af frítímanum,"
segir Rúna aðspurð um
áhugamál og tómstundir.
„Ég hef áhuga á andlegum
málum, lestri og tónlist. Ég
er í hópi kvenna sem hittist
einu sinni í mánuði til að
ræða ýmis mál og fáum við
fyrirlesara til að fræða okk-
ur. Ég hef líka mjög gaman
af að elda mat og njóta þess
að borða hann með góðum
vinum. Við Einar höfum
ferðast töluvert og hann
kemur stundum með mér í
verslunarferðir. Það er svo
miklu skemmtilegra en að
vera einn að þvælast í út-
löndum," segir Rúna að lok-
um.
„Verslunin Borð fyrir tvo selur vörur fyrir lífslistamenn. Það skiptir máli að hafa
fallega hluti í kringum sig,“ segir Arnrún Kristinsdóttir.
62