Frjáls verslun - 01.03.1995, Blaðsíða 55
fólks þarf það ekki að þýða að það sé
óánægt og margir starfsmenn hafa
unnið hér árum saman og starfsand-
inn hér er góður.“
LÉK MEÐ LANDSLIÐINU í HANDBOLTA
Þegar Ami bíóbarón er ekki að
vinna sinnir hann áhugamálum sínum.
Meðal þeirra eru kvikmyndir en Ámi
sér allar kvikmyndir sem Sambíóin
taka til sýninga og hefur ekki aðeins
viðskiptalegan áhuga á kvikmyndum
heldur líka fagurfræðilegan, að sögn
kunnugra. Iþróttir vekja talsverðan
áhuga hans og hann fylgist nokkuð vel
með því sem fram fer í heimi íþrótt-
anna. Einkum er það þó handbolti
sem vekur spennu í blóðinu því Árni
var á sínum yngri árum liðtækur
handboltamaður. Ferill hans hófst
með Ármanni og þar lék hann sem
skytta og þótti bæði skotfastur og
markviss. Hann var nógu góður til
þess að vera valinn í fyrsta unglinga-
landslið Islands og komst síðan alla
leið í A-landsliðið og lék með því
nokkra leiki.
SYNDIR1000 METRA Á HVERJUM DEGI
Árni fer í sund á hverjum einasta
degi og syndir 1000 metra og gerir
heimatilbúnar leikfimiæfingar. Með
þessu móti hefur hann náð að halda
sér í hörkuformi og kunnugir segja að
hann sé mjög vel á sig kominn miðað
við aldur og starf sem oft fylgir mikið
álag en vinnudagur þess, sem rekur
kvikmyndahús, er yfirleitt frá 13:00 til
01:00 á næturnar alla daga vikunnar.
Þegar tómstundir gefast er þeim oft
eytt í að horfa á kvikmyndir. Kvik-
myndaáhuginn er mikill og það er sagt
að á árum áður, þegar hjónin Árni og
Guðný fóru saman á kvikmyndakaup-
stefnur hafi oft verið horft á kvik-
myndir frá 09:00-18:00 á daginn og
svo var skroppið í bíó eftir kvöldmat-
inn til að slaka á. Bíókóngurinn hefur
mikinn áhuga á laxveiði og stangveiði
og lærði til þeirra handbragða undir
augliti föður síns sem var mikill veiði-
maður. Árni dró sinn fyrsta lax 11 ára
gamall í Elliðaánum sem síðan hefur
alltaf verið vinsæll veiðistaður og
þangað fer hann á hverju ári en honum
hefur ekki tekist að kveikja veiði-
Jóhannes Jónsson í Bónus er einn af
bestu vinum Árna Samúelssonar.
áhugann í sonum sínum sem fóru
stundum með honum þegar þeir voru
yngri en segjast vera hættir. Helstu
veiðifélagar hans eru Pétur Stefáns-
son, mágur hans, og Sigurjón Jó-
hannsson sem er tæknimeistari Sam-
bíóanna, sér um vélar og hljóð. Árni
er félagi í Oddfellow og helsti félagi
hans í því er Valdimar Steinþórsson í
Texta hf. sem textar allar kvikmyndir
fyrir Sambíóin en hann rækir funda-
sókn þokkalega.
Meðal persónulegra vina Áma má
helst nefna Eggert Elíasson, fast-
eignasala í Eignasölunni, sem var fé-
lagi hans í barnaskóla og alla ævi síðan
og býr í næsta húsi við hann í Starra-
hólunum.
„Við fórum eins og aðrir strákar úr
Hlíðunum í Austurbæjarbíó á sunnu-
dögum og skiptumst á hasarblöðum
við aðra stráka. Þá hefði okkur fund-
ist það fjarlægur draumur að annar
okkar ætti eftir að eignast bíó,“ segir
Eggert. I vinahópnum má einnig finna
Sigurð Sigurjónsson lögfræðing sem
annast alla lagakróka fyrir Sam-veld-
ið, Guðmund Sigurðsson í Vogabæ í
Vogum og Jóhannes Jónsson kaup-
mann í Bónus svo nokkrir séu nefnd-
ir.
MiPasKRÁ
SJ^arfrc,ta
SKIPASKRÁ sjávarfrétta
NÚFÁANLEGÁ TÖLVUTÆKU FORMI
FRODI
urn jiærö
og gerö
cillre ízlerizkru
zkipíi áziirn i
úieirriilbföngurri,
zírriiinúrnerurn,
fíixriúrrierurri
og keririiiölum
úigeröe þeirm.
Armúla 18
Reykjavík
bóka & blaðaútgáfa Sími: 581 2300