Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.1995, Blaðsíða 53

Frjáls verslun - 01.03.1995, Blaðsíða 53
síðasta ári. Hann hefur einnig verið orðaður við ýmsar tilraunir manna til þess að veita aukinni samkeppni inn í sjónvarpsrekstur á Islandi. Um tíma var hann í samstarfi með Frjálsri fjölmiðlun og fleirum í fyrirtækinu Sýn hf. KAPALSJÓNVARP í HAUST Þótt fyrirtæki Arna, SamFilm, sé 20 ára gamalt og hafi vakið verðskuld- aða athygli langt út fyrir landsteinana er ekki þar með sagt að hann og hans menn láti kyrrt liggja heldur er land- helgi vitundariðnaðarins stöðugt að færast út. í október í haust ætlar SamFilm að opna eigin kapalsjón- varpsstöð sem á að senda út á fjórum rásum. Innihaldið verður traust blanda af tónlist, kvikmyndum, íþróttum og fréttaefni án þess að rek- in verði sjálfstæð fréttastofa. Sent verður gegnum ljósleiðarakerfi Pósts og síma og stefnt að því að ná til 10 þúsund heimila í fyrstu atrennu en 80 þúsund fljótlega. Samkeppnin beinist fyrst og fremst gegn Stöð 2 og kunn- ugir segja að þarna sé í burðarliðnum næsta stórbylting á sviði afþreyingar á íslandi sem eigi eftir að færa ísland endanlega inn í nútí- mann í þessum efn- um. Ámi er í hugum margra tengdur við Keflavík og margir telja hann Keflvík- ing en svo er ekki. Hann fæddist í Reykjavík 12. júlí 1942 og ólst þar upp. Hann tók próf úr Verslunarskól- anum 1962 og starfaði við bankastörf í Keflavík 1964 til 1968 og tók við Nýja- bíói þar 1967. Hann stofnaði matvöru- verslunina Víkurbæ í Keflavík sem varð að keðju verslana sem seldi fleira en matvörur, s.s föt og hljóm- plötur. Víkurbær var í eigu Áma og fjölskyldu til 1982 þegar hann flutti sig yfir í bíórekstur eingöngu. Ami er fæddur 12. júlí og er því í merki Krabbans. Krabbafólk er sagt vera dular, lokaðar og tilfinninga- næmar manneskjur. Stundum er sagt um þetta fólk að það fari ekki beina leið að settu marki heldur gangi svo- lítið út á hlið líkt og einkennisdýr merkisins en komist alltaf að settu marki samt sem áður. Foreldrar Árna voru Samúel Torfason frá Kollsvík á Rauðasandi og Unnur Árnadóttir. Ámi telst því í föðurætt vera af hinni nafntoguðu Kollsvíkurætt sem em afkomendur vestfirskra bænda og sjóvíkinga með salt í skegginu. Unnur var dóttir Árna Jónssonar frá Varmá í Mosfellssveit og Branddísar Guðmundsdóttur frá Litlaholti í Dölum. Árni á tvær systur. Önnur er Hlíf Samúelsdóttir heildsali, gift Pétri Stefánssyni verkfræðingi, og Torfhildur Samúelsdóttir gift Guð- mundi Ágústssyni tæknifræðingi. Samúel faðir Áma fékkst við ýmsan sjálfstæðan atvinnurekstur og varð fyrstur íslendinga til þess að fram- leiða sellófanpoka í vélum og hóf þá framleiðslu 1947. Ámi kvæntist 14.11. 1964 Guðnýju Sigurlín Ásberg Björnsdóttur, dóttur Björns Snæbjömssonar forstjóra í Keflavík og Elísabetar Ásberg. Þarna er komin skýringin á því hvað dró Árna til Keflavíkur þegar prófi úr Verslunarskólanum lauk en samkvæmt bestu heimildum kynntust þau hjónin gegnum sameigin- legan íþróttaáhuga. Björn Snæbjörnsson starfaði við eigin at- vinnurekstur á Suðurnesjum og rak meðal annars Nýja-Bíó í Keflavík þar til Árni tók við því. Ámi og Guðný eiga þrjú börn. Þau eru Björn Ásberg f. 1965, Alfreð Ás- berg f. 1967 og Elísabet Ásberg f. 1967. Elísabet og Alfreð eru tvíburar. Börnin eru öll gift og hópur bama- bama fer stækkandi. RÍFUR AF MIÐUM 0G SELUR SÆLGÆTI Ámi fylgist grannt með fjölþættum rekstri kvikmyndahúsa sinna. Hann er með skrifstofu í húsakynnum Bíó- hallarinnar við Álfabakka en hikar ekki við að selja miða, rífa af miðum og afgreiða poppkorn og sælgæti þegar svo ber undir. Stundum reka menn upp stór augu þegar þeir sjá þekkt andlit hans fyrir innan sjoppu- borðið en þetta lýsir stjórnunarstíl hans vel. Hann er sagður vinnusamur og ákveðinn og gerir talsverðar kröf- ur til starfsfólks síns.Tíðar utanferðir tilheyra starfi bíóbarónsins og liggur leiðin oftast á kvikmyndakaupstefnur eða kvikmyndahátíðir bæði vestan hafs og austan. Við slík tækifæri um- gengst Árni iðulega misfrægar kvik- myndastjörnur og sumar svo frægar að margir öfunda hann leynt og ljóst af því af þessum sérstæðu starfshlunn- indum. Hægt væri hér að nefna nöfn eins og Arnold Schwarzenegger, Barböru Streisand, John Travolta og Sylvester Stallone en allt er þetta fólk sem Árni hefur hitt og haft samskipti við. Jon Voight er þekktur fyrir leik sinn í Midnight Cowboy og Coming Home en Voight hefur komið til ís- NÆRMYND Bíókóngurinn, Árni Óli Samúelsson, segir að margir hafi talið sig bandbrjál- aðan af bjartsýni er hann réðst í byggingu Bíóhallarinnar árið 1980. En hann lét allar úrtölur sem vind um eyru þjóta og getur nú litið um öxl og sagt með góðri samvisku að hann hafi haft rétt fyrir sér. 53
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.