Frjáls verslun - 01.03.1995, Side 32
BÆKUR
Bókin The Warren Buffett Way:
FJÁRFESTIR
ALDARINNAR
Hjá Warren Buffett urðu 7þúsund krónur að 500 milljörðum á 40 árum. í
þessari bók er leyndarmálið að velgengninni gert oþinbert
Heiti bókar: The Warren Buffett
Way
Höfundur: RobertG. Hagstromjr.
Útgefandi og ár: John Wiley &
Sons — 1994
Lengd bókar: 274 bls.
Hvar fengin: Erlendis
Einkunn: Einstök lesning,
skemmtileg og fróðleg um snjall-
asta og ríkasta íjárfesti veraldar
VIÐFANGSEFNIÐ
Warren Buffett er mesta goðsögn
fjármálaheimsins. Hann er aðaleig-
andi eignarhaldsfélagsins Berkshire
Hathaway, sem metið er á tæplega
20 milljarða dala, eða um 1300-1400
milljarða íslenskra króna. Haustið
1993 birti Forbes viðskiptablaðið lista
yfir ríkustu menn Bandaríkjanna.
Samtals voru 69 einstaklingar og fjöl-
skyldur á listanum yfir þá sem eiga
meira en 1 milljarð dala. Efsta nafn á
listanum var Warren Buffett, með
hreina eign metna á 8.3 milljarða dali
(rúmlega 500 milljarða íslenskra
króna). Hann var eini maðurinn á list-
anum, sem hafði eingöngu auðgast á
hlutabréfum, en þar fjárfesti hann 100
dali árið 1956 og það sem síðan
fylgdi er sagan sem hér er sögð.
HVER ER MAÐURINN?
Warren Edward Buffett fædd-
ist 30. ágúst 1930 í Omaha í
Nebraskafylki. Eftir nám við há-
skólann í Nebraska fór hann í
framhaldsnám til New York við
hinn þekkta skóla Columbia Graduate
Business School, þar sem hann lauk
Master-prófi í hagfræði.
Business Week kallar hann:
„Frægasti fjárfestinn" og viðskipta-
blaðið Forbes: „Hann er ríkasti mað-
ur í Ameríku og fjárfestingaséni af
þeirri gráðu sem heimurinn fær sjald-
an séð“.
Aðrar lýsingar sem gefnar eru á
manninum eru allar á sama vegi að
hann sé ótrúlega greindur og jarð-
bundinn. Hann byggir fjárfestinga-
stefau sína á einföldum hlutum og
skiljanlegum, sem flækja ekki málin.
Hann er vel heima í öllum möguleik-
um sem fyrirfmnast á verðbréfamark-
aðnum, en lætur tölvur og tölvugeir-
ann alveg eiga sig af fyrmefadum
ástæðum. Hann greiðir sjálfum sér
aðeins $100.000 í árslaun og er lægst
launaði forstjóri á listanum yfir 500
aðalforstjóra Bandaríkjanna skv. við-
skiptablaðins Fortune. Hann þarf
ekki hærri laun þar sem hann á mikið
af hlutabréfum í fyrirtækjum, sem
gefa honum arðgreiðslur. „Gullkálf-
urinn“ Berkshire Hathaway greiðir
þó aldrei út arð. Hann er eini billjóna-
mæringur Bandaríkjanna sem gerir
skattaskýrsluna sína sjálfur!!!
HRÖÐ ÞRÓUN
Að loknu námi fór hann að vinna við
fjárfestingar og þegar hann var 25
ára, árið 1956, stofaaði hann ásamt
nokkrum öðrum fjárfestingarfélag
sem hann veitti forstöðu. Á næstu 13
árum tókst honum sem stjórnanda að
ná þeim frábæra árangri að ávaxta fé
með 29.5% ársvöxtum. Orðspor
hans fór víða og umsvif fyrirtækisins
óx hratt. Árið 1969 var auður hans
metinn á 25 milljónir dala. Hann hafði
frá árinu 1962 keypt reglulega hluta-
bréf í fyrirtækinu Berkshire Hath-
away og fór að stjóma þar 1965, en
hafði árið 1969 náð fallum yfirráðum
þar. Þá var búið að breyta fyrirtækinu
í öflugt trygginga- og fjárfestingafé-
lag. í dag er fyrirtækið fyrst og
fremst eignarhaldsfélag, sem á fjöl-
mörg fyrirtæki ólík að öllu leyti og
hluta í nokkrum öðmm.
Þegar hann tók við stjórninni í
fyrirtækinu, árið 1965, var eigið fé
þess metið á $ 22 milljónir og hann
setti sér það mark að auka arðsemi
þess um 15% á ári. Reynslan sýn-
ir, tæpum 30 árum síðar, að árleg
arðsemi hefur verið um 23%. Bók-
fært gengi (innra virði) hvers hlut-
ar í fyrirtækinu var $ 19 árið 1965
en árið 1994 var það $ 8.854!!!!
HÖFUNDURINN
Robert G. Hagstrom starfar hjá
Jón Snorri Snorrason,
aðstoðarframkvæmda-
stjóri Lýsingar og stunda-
kennari við Háskóla
íslands, skrifar reglulega
um viðskiptabækur í
Frjálsa verslun.
32