Frjáls verslun - 01.03.1995, Qupperneq 40
VINNUSTAÐURINN
skrifstofu úti í bæ að kvöldi til og
jafnvel fram eftir nóttu.
H. Fax og tölva heima gera kleift að
vera að kvöldi í sambandi við við-
skiptavini í Bandaríkjunum en þar er
þá enn dagur og viðskiptalífið í fullum
gangi.
I. Aukin tölvu- og faxvæðing gerir
kleift að senda gögn alla daga vikunn-
ar, hvenær sólarhrings sem er.
J. Hægt að nota dauðan tíma að
kvöldi í vinnu ef hugmyndir kvikna
skyndilega.
K. Hægt að vera
heima við í vinnu komi
upp veikindi á heimilinu.
Annars þyrfti viðkom-
andi að biðja atvinnu-
rekandann um frí.
GflLLAR VIÐ SKRIFSTOFU
HEIMfl
En víkjum þá að
ókostunum sem menn
sáu við að vera með
skrifstofu sína heima og
vinna þar:
A. Aukin hætta á
vinnusýki og þreytu.
Vinna og fjölskyldulíf
rennur saman í eitt. Slíkt
gengur ekki til lengdar.
B. Truflun að kvöldi
og um helgar vegna
gestagangs og sjónvarps. Erfiðara að
afmarka vinnuna og fjölskyldulífið.
Einnig slæmt að hafa heimilið sem
vinnuumhverfi.
C. Einamanakennd. Farið á mis við
félagsskap. Vinnustaður er ekki bara
vinnustaður heldur heldur líka sam-
astaður vina og kunningja sem ná ár-
angri með hópvinnu. A skrifstofu
heima þurfa menn að vera sjálfum sér
nógir.
D. Minni sköpunar- og hugmynda-
auðgi. Samskipti vinnufélaga eru oft
uppspretta nýrra hugmynda.
E. Að skipulagið fari úr böndum
vegna ónógs sjálfsaga. Það er tákn
um ákveðinn aga að þurfa að mæta á
ákveðnum tíma til vinnu að morgni úti
í bæ. Þess vegna verða þeir, sem
vinna heima, að brjóta upp mynstrið
og skipuleggja sig einkar vel.
Þetta mat okkar á kostum og göll-
um þess að vera með vinnuna heima
hjá sér er fremur lauslegt og byggist á
samtölum við nokkra stjórnendur í at-
vinnulífinu. Engu að síður er það
reyndin, bæði hér á íslandi og erlend-
is, að fólk í viðskiptalífinu vinnur í
auknum mæli á skrifstofunni heima.
Líklegast eru listamenn, eins og
rithöfundar, skáld og málarar, sú
stétt sem hefur hvað lengst verið
með vinnuna heima hjá sér og komið
sér upp góðri vinnuaðstöðu heima.
Engu að síður var nýkrýndur verð-
launarithöfundur, Einar Már Guð-
Þórunn Gestsdóttir, ritstjóri og blaðaútgefandi, er ein þeirra
sem sagði upp skrifstofuhúsnæði úti í bæ og flutti skrifstof-
una heim - og líkar það vel. Hún á uppkomin börn sem flest
eru flutt að heiman og fyrir vikið er mikið næði til að vinna
heima.
mundsson, spurður sérstaklega um
það í viðtali hvemig það kæmi heim
og saman að skrifa heima hjá sér og
sinna barnauppeldi í leiðinni. Hann
taldi bamauppeldið afar ánægjulega
truflun frá ritstörfunum.
STJORNAÐ AÐ HEIMAN
Þótt skrifstofa heima sé sífellt al-
gengari hjá fólki í viðskiptalífinu er
mjög misjafnt hvað stjómendur eiga
auðvelt með að stjórna að heiman.
Þannig er ljóst að skrifstofa hins
dæmigerða, daglega stjórnanda á
vinnustað getur vart verið annars
staðar en í fyrirtækjunum. Þeir geta
hins vegar unnið heima hjá sér dag og
dag, sérstaklega ef þeir þurfa að
sökkva sér í ákveðin verkefni og
þarfnast friðar frá fundum og símtöl-
um - og nóta bene; hafi þeir næði
heima. Margir stjórnendur líta einnig
á fullkomnu heimaskrifstofuna sem
hálfgert öryggistæki. Þeir vilja eiga
kost á að fá faxbréf heim til sín að
kvöldi, til dæmis frá útlöndum.
Skrifstofa - og fullkomin vinnuað-
staða heima - hlýtur að henta best í
þeim tilvikum viðskiptalífsins þar sem
stór hluti starfsins felst í að „vinna við
tölvu og tala í síma“. í þessu sam-
bandi má nefna störf sérfræðinga og
sölumanna. Auðvelt er að selja, gera
pantanir, ganga frá samningum og
þess háttar í tölvu og með aðstoð
síma og fjarskiptabúnað-
ar.
í stuttu máli er þuma-
lputtareglan sú að því
minna sem starfið felst í
að sinna viðskiptum
„augliti til auglitis“ því
meiri möguleikar eru á
að sinna starfinu á skrif-
stofu heima hjá sér.
Þannig er auðvelt að
beintengja símakerfi
fyrirtækis við vinnusíma
starfsmanna í heimahús-
um. Skiptiborðið í fyrir-
tækinu gefur þá samband
í heimahúsið í stað skrif-
stofunnar á vinnustað-
num. Símtæknin er orðin
stórkostleg. Og við-
skiptavinurinn verður
ekki var við neitt. Hann
heldur að verið sé að gefa línuna inn í
næsta herbergi á skrifstofunni.
HREYFANLEIKIVINNUAFLS
Hreyfanleiki vinnuafls er eitt af því
sem kemur inn í umræðuna um sér-
staka skrifstofu heima. Fjarskipta-
tæknin eykur hreyfanleikann. Því
meiri sem hreyfanleikinn er þeim
mun minna verður atvinnuleysið.
Dæmi: íbúi í Hveragerði, sem verður
skyndilega atvinnulaus, getur hugs-
anlega orðið sér fljótt úti um vinnu í
Reykjavík án þess að flytja til höfuð-
borgarinnar ef vinnan felst að mestu í
að „vinna við tölvu og tala í síma“.
Staðurinn þar sem verkið er fram-
kvæmt skiptir þá ekki öllu máli.
Við þetta má bæta að einstaklingur
getur hugsanlega fengið starf hjá
fyrirtæki vegna þess að hann er með
skrifstofu heima hjá sér og fullkominn
ljarskiptabúnað. Hugsum okkur ein-
40