Frjáls verslun - 01.03.1995, Qupperneq 44
VINNUSTAÐURINN
Einmannakennd er einn af ókostum þess að vinna einn á
skrifstofu heima hjá sér. Vinnustaður er ekki bara
vinnustaður heldur líka samastaður vina og kunningja
sem ná árangri með hópvinnu.
ÓKOSTIR ÞESS AÐ VINNA HEIMA
A. Aukin hætta á vinnusýki og þreytu. Vinna og fjölskyldulíf
rennur saman í eitt.
B. Truflun að kvöldi og um helgar vegna gestagangs og
sjónvarps.
C. Einamanakennd. Farið á mis við félagsskap. Vinnustaður
er ekki bara vinnustaður heldur heldur líka samastaður
vina og kunningja sem ná árangri með hópvinnu.
D. Minni sköpunar- og hugmyndaauðgi. Samskipti
vinnufélaga eru oft uppspretta nýrra hugmynda. Það er
þó ekki algilt.
E. Að skipulagið fari úr böndum vegna ónógs sjálfsaga. Það
felst íþví ákveðinn agi að þurfa að mæta á ákveðnum
tíma til vinnu að morgni úti í bæ.
í viðskiptalífinu hérlendis hefur
stundum mátt greina bæði fordóma
og virðingu gagnvart þeim sem hafa
fullkomna skrifstofu heima hjá sér og
sinna viðskiptum þar. Þarna koma
bæði aldur og staða við sögu. Þeir,
sem eru ungir og segjast vinna á skrif-
stofu heima fyrir eru taldir vera „að
dunda“ við smávægileg verkefni og í
raun að bíða eftir að komast að í
„raunverulegri“ vinnu hjá fyrirtækj-
um úti í bæ. Komast í eitthvað ör-
uggt.
Hins vegar gætir virðingartóns ef
einhver, sem er í viðurkenndu hlut-
verki hjá stóru fyrirtæki; eins og
toppstjórnandi, stjómarmaður, eig-
andi eða sérfræðingur, segist vera
með fullkomna skrifstofu heima hjá
sér og sinna oft störfum sínum þaðan.
Hvað um það, þetta hefur breyst
verulega á undanförnum árum eftir að
ýmsir einyrkjar, sem voru með skrif-
stofu úti í bæ og gjarnan í tengslum
við fleiri einyrkja, hafa í auknum mæli
komið sér upp aðstöðu heima fyrir og
sparað þannig leigu skrifstofuhús-
næðis og mikla notkun á bíl.
GETUR LEITT TIL
VINNUSÝKIOG SÍÞREYTU
Eins og fram kom hér að framan
eru ýmsir ókostir við að vinna heima
mnmo Skjalaskápar
ár
Islendingar þekkja þá
s afgæðunum
s af verðinu
S afendingunni
Verð kr. m.vsk.
4 skúffu skápur 23.879,00
3 skúffu skápur 21.912,00
2 skúffu skápur 19.410,00
Fást bæöi í DIN A4
og folio stæröum
H. OLAFSSON & BERNHOFT
Sundaborg 9 - s. 812499
44