Frjáls verslun - 01.03.1995, Síða 46
HREYFANLEIKIVINNUAFLS
Hreyfanleiki vinnuafls er eitt af því sem kemur inn í umræðuna um sérstaka
skrifstofu heima. Fjarskiptatæknin eykur hreyfanleikann. Því meiri sem
hreyfanleikinn er þeim mun minna verður atvinnuleysið. Dæmi: íbúi í Hveragerði,
sem verður skyndilega atvinnulaus, getur hugsanlega fengið fljótt vinnu i Reykjavík
án þess að flytja til höfuðborgarinnar ef vinnan felst að mestu í að „vinna við tölvu
og tala ísíma“. Staðurinn þar sem verkið er framkvæmt skiptir þá ekki öllu máli.
Orð eins viðmælenda okkar um
einn af kostum þess að vinna heima
voru einmitt að geta blandað saman
vinnu og heimilislífi. Jafnframt gefi
það möguleika á að vinna heima á
launum í hlutastarfi samhliða bama-
uppeldi. Hægt sé þá að skipuleggja
tímann þannig að ákveðinn hluti dags-
ins fari í vinnu; skriftir við tölvu eða
sölumennsku í gegnum síma, og hinn
hlutinn í uppeldi barnanna. Eða þá að
hægt sé að grípa í vinnuna í frístund-
um sem myndist heima, nýta eyðurn-
ar. Sé það viðvarandi ástand má færa
rök fyrir því að togstreita myndist
smám saman á milli vinnunnar og fjöl-
skyldlífsins.
VINNUSTAÐUR ER
LÍKA FÉLAGSSKAPUR
En vinnustaður í fyrirtækjum úti í
bæ er auðvitað meira en bara vinnu-
staður. Hann veitir líka félagsskap.
Hann er samastaður vina og kunn-
ingja sem koma saman á degi hverjum
til að ná saman ákveðnum markmið-
um fyrirtækisins. Mörgum hentar alls
ekki að vinna einir heima heldur þríf-
ast fyrst og fremst í félagsskap. Mað-
urinn er einu sinni félagsvera. Stund-
um heyrist þetta með orðunum „að
komast út af heimilinu og vera á með-
al fólks“.
í öllum mannaflsfrekum fyrirtækj-
um, eins og verksmiðjum, verslunum
og þjónustufyrirtækjum sem byggja á
að starfsmenn séu til staðar, gengur
það náttúrlega illa upp að stór hluti
starfsmanna vinni heima hjá sér og sé
ekki við í fyrirtækinu til að sinna við-
skiptavinum.
SKRIFSTOFA MORGUNDAGSINS
En tímarnir breytast og mennirnir
með. í skrifstofu morgundagsins,
skrifstofu 21. aldarinnar, mun skrif-
stofan í heimahúsinu koma mjög við
. sögu. í stjórnun fer mikið fyrir orðun-
um upplýsingatækni og fjarskipti. í
fjarskiptum hafa orðið byltingar á
undanförnum áratugum og þær munu
halda áfram. Fjarskiptin eru forsend-
an fyrir skrifstofunni heima.
mita
CC-50
EEZIholl
HUSBONDA SINUM
MJOG TAKMARKAÐ MAGN
VERÐ ÁÐUR 119.520 KR
TILBOÐSVERÐ
89.950-%,
M50 blaða bakki fyrir A4 blöð.
'Ljósritar 10 síður á mínútu.
-Sérstök stilling til
að ljósrita ljósmyndir.
-Minnkun og stækkun 64% - 156%.
-Blaðastærð: Frumrit B4 og minna,
afrit A5 og A4.
ZEqiW Guttormsson-Fjölval hf.
Mörkin 1 • 128 Reykjavík • Símar: 581 2788 og 568 8650 • Bréfsími: 553 5821
Helstu söluaðilar: REYKJAVÍK, Penninn Hallarmúla - AKUREYRl, Bókval - SAUÐÁRKRÓKUR, Bókabúð Brynjars - ÍSAFJÖRÐUR, Slraumur.
46