Frjáls verslun - 01.03.1995, Page 72
STJORNUN
VERTU ALLTAF STUNDVÍS. Það orð hefur lengi farið af íslendingum að þeir séu óstundvísir, meira að segja í
viðskiptaferðum þar sem mikið liggur undir. Um það hefur mátt lesa í erlendum bæklingum „að á íslandi
skulir þú ekki búast við því að gestgjafinn þinn komi á réttum tíma“. Mundu: Það er ekkert sem heitir
akademískt kortér og það er bannað að „tefjast aðeins" og koma hálftíma of seint.
myndir eru þið með? Á að bjóða upp á
Víkingaveislu, fara upp á jökul, í báts-
ferð, spila golf, aka um á jeppum um
hálendið, fara á gúmbát niður Hvítá
eða eitthvað annað?“
Miklu skiptir hvernig hópur gest-
anna er samsettur. Er um unga menn
að ræða, konur, miðaldra eða eldra
fólk? Þarfirnar eru mismunandi eftir
einstaklingum. Þumalputtareglan er
sú að því yngri sem gestirnir séu þeim
mun meira líf og íjör vilji þeir utan
hefðbundins fundatíma.
TAKU ALLTAF Á MÓTI
GESTUM ÞÍNUM Á FLUGVELLINUM
Allur undirbúningurinn skiptir máli.
Sumt er þó mikilvægara en annað. í
þeim efnum geta ráðleggingar ferða-
skrifstofanna reynst dýrmætar. Byrj-
um á sjálfri móttökunni úti á Keflavík-
urflugvelli. Tekur forstjórinn sjálfur á
móti gestum sínum og býður þá vel-
komna eða sendir hann bflstjóra til að
ná íþá? Gleymdu aldrei að fyrstu mín-
úturnar, fyrstu áhrifin, við komuna til
landsins ráða oft úrslitum um hvort
heimsóknin heppnast, viðskipta-
samningur næst.
Sé hægt að koma því við er best að
forstjóri fyrirtækisins mæti og taki á
móti gestum sínum eða aðrir hátt-
settir starfsmenn fyrirtækisins.
Þannig er gestunum sýnd virðing. Al-
gengt er að forstjórar aki gestunum
sjálfir í bæinn ef þeir eru fáir - tveir
eða þrír.
Þótt um hóp manna sé að ræða er
einnig best að forstjórinn mæti sjálfur
til að taka á móti gestum sínum. En
hafðu hugfast að því fleiri sem gest-
irnir eru því viturlegra er að undirbúa
komuna í samvinnu við ferðaskrif-
stofu. Þannig má ímynda sér að for-
stjórinn mæti út á flugvöll og taki á
móti hópnum en ferðaskrifstofan ann-
ist ferðina að hótelinu; sjái til dæmis
um hópferðabfl með leiðsögumanni
og túlki.
Nokkuð hefur færst í aukana að
gera strax eitthvað óvænt á leiðinni
Gjöf til vina
og viðskiptamanna
Við bjóðum eftirtalda möguleika-.
-Reyklan lax- heilt flak
-Graflax-fieilt flak
-þrjár tegundir af laxi,
tvær tegundir af síld
og graflaxsósu
Nýjar og glœsilegar gjafaumbúðir
í einangrunarkassa
Mið sjáum um að senda gjöfina beinl
til viðlakenda um allan heim sé þess óskað S
Hafið samband við okkur
og fáið allar nánari upptýsingar s
|
i
<
72