Frjáls verslun - 01.08.1995, Side 24
MARKAÐSMÁL
JUKU VELTU SINA MEST ALLRA
Frjáls verslun ræðir við forráðamenn þeirra fjögurra fyrirtækja semjuku
veltu sína mest allra á síðasta ári. Hvað gerðist eiginlega hjáþeim?
í síðasta tölublaði Frjálsrar versl-
unar, bókinni 100 stærstu, var einn
listinn um þau fyrirtæki sem juku
veltu sína hlutfallslega mest á síðasta
ári. Fjögur efstu fyrirtækin á þessum
lista voru útgerðarfyrirtækið Njáll hf.
í Garðinum, BESTA í Kópavogi, út-
gerðarfyrirtækið ísleifur hf. í Vest-
mannaeyjum og BM Vallá-Vikurvör-
ur hf. í Reykjavík.
Mesta veltuaukningin
75% 79%
BM Vallá ísleifur
L------------------------
Velta þessara fjögurra fyrirtækja
jókst á bilinu frá 75% til 90% á milli
ára. Útgerðarfyrirtækið Njáll hf. í
Garðinum var efst á listanum, með
mesta veltuaukningu allra fyrirtækja.
Velta þess jókst um hvorki meira né
minna en 90% á milli ára.
Frjáls verslun ræddi við forráða-
menn þessara fyrirtækja og leitaði
skýringa á auknum umsvifum þeirra.
Njáll hf í Garðinum:
STÆKKUÐUM
FLOTANN
Útgerðarfyrirtækið Njáll hf. í
Garðinum var með mesta veltuaukn-
ingu eins fyrirtækis á íslandi á síðasta
ári. Velta þess jókst um 90% á milli
ára. Bergþór Baldvinsson, fram-
kvæmdastjóri Njáls hf., segir að
þessa aukningu megi fyrst og fremst
rekja til þess að bátafloti fyrirtækisins
hafi stækkað.
„Við keyptum 200 tonna bát, Berg
Vigfús, og þau kaup eru meginskýr-
ingin á því að við jukum veltu okkar
jafn mikið á síðasta ári og raun ber
vitni,“ segir Bergþór. Fyrirtækið
gerir nú út sex báta. Það hefur nýlega
keypt tvo báta til viðbótar, Sigga
Bjama og Keflvíking, og á sá síðar-
nefndi að koma í staðinn fyrir Berg
Vigfús sem verður úreltur.
Fyrirtækið Njáll hf. var stofnað ár-
ið 1986 af
Baldvini
Njálssyni og
fjölskyldu.
Sonur Baldv-
ins, Bergþór,
er fram-
kvæmdast-
jóri. Fjölskyldan á einnig fyrirtækið
Nesfisk hf. en það er eingöngu í fisk-
verkun. Síðastliðin vetur keypti fjöl-
skyldan fyrirtækið Eldey hf. eftir að
það hafði gengið í gegnum nauða-
samninga. Eldey á einn togara, Eld-
eyjarsúluna.
Þess má geta að samanlögð velta
Njáls hf. og Nesfisks hf. á síðasta ári
nam um 1,3 milljörðum króna.
BESTA í Kóþavogi:
VÍÐTÆKARI
DREIFING
„Meginbreytingin á rekstri okkar á
síðasta ári var sú að við byrjuðum á að
selja í smásöluverslanir en áður höfð-
um við eingöngu selt til stórra not-
enda hreinlætisvara. Þessi breyting
heppnaðist vel og er meginástæðan
fyrir aukinni sölu hjá okkur á síðasta
ári,“ segir Friðrik Hróbjartsson, eig-
andi fyrirtækisins BESTA í Kópa-
vogi. Fyrirtækið jók veltu sína næst-
mest allra fyrirtækja á síðasta ári, eða
um 88%.
Friðrik stofnaði BESTA árið 1987.
Fyrirtækið er dæmigert fjölskyldu-
fyrirtæki. Það er stofnað út firá
Burstagerðinni en það fyrirtæki
stofnaði faðir Friðriks, Hróbjartur
Ámason, árið 1930. Friðrik rak
Burstagerðina frá árinu 1962 eða
þangað til að hann stofnaði BESTA.
Synir Friðriks, þeir Böðvar og Friðrik
Ingi, eru nú framkvæmdastjórar
BESTA. Böðvar er yfir verslunar-
deildinni en
Friðrik Ingi
yfir tækni-
deildinni.
BESTA
selur hrein-
lætisvörur
sem og vélar
og tæki til
hreingeminga. Nefna má vörur eins
ogbón, sápur, bursta, klúta, moppur,
þvegla og ræstingavagna. Fyrirtækið
er með mjög sterka markaðsstöðu í
sölu á bóni á gólf og er meðal annars
með umboð frá tveimur þekktum
bandarískum fyrirtækjum, Butcher’s
og Minuteman.
m. kr. m. kr.
y 138
73 K
'93 '94
ísleifurhf,
Vestamannaeyjum:
LENGDUM
BÁTINN
Leifur Ársælsson, framkvæmda-
og útgerðarstjóri ísleifs hf. í Vest-
MYNDIR: BRAGI Þ. JÓSEFSS0N
24