Frjáls verslun - 01.08.1995, Qupperneq 30
MARKAÐSMAL
Kjartan Örn Kjartansson, McDonalds:
ENGINN VERTÍÐ ARBISN ESS
Kjartan Örn Kjartansson, eigandi
McDonalds á íslandi. Þad tók hann
þrjú ár að fá sérleyfissamning við
McDonalds í hús.
að er mikill misskilningur að
þessir sérleyfisaðilar hér séu
allir með útlendan rekstur og
séu þannig af hinu vonda. Þetta eru
allt íslensk fyrirtæki. Okkar heitir
Lyst hf. og er eins íslenskt og það
getur verið. Þetta er minn rekstur að
öllu leyti. Ég greiði gjald til McDon-
alds og fæ vörumerkið og þekkinguna
í staðinn, staðlaða uppskrift sem er
eins alls staðar í heiminum, segir
Kjartan Öm Kjartansson hjá McDon-
alds.
McDonalds er stærsta hamborg-
arakeðja í heimi og jafnframt ein
þekktasta skyndibitakeðjan. Þótti
aðeins spuming hvenær en ekki
hvort hún kæmi til landsins, með
McDonalds kæmi menningin loks til
íslands. Margir þekkja McDonalds
vísitöluna sem er verðssamanburður
á Big Mac í ýmsum löndum og þykir
gefa raunsannari lýsingu á raunvem-
legum kostnaði í löndunum en marg-
ar háfleygari vísitölur. í dag em
tveir McDonalds veitingastaðir í
Reykjavík.
Það tók Kjartan þrjú ár að fá sér-
leyfissamning við McDonalds í hús.
Hann segir þetta ekki einföld við-
skipti þótt lítinn tíma taki að afgreiða
máltíð á veitingastöðum hans.
„Það er í mörg hom að líta og
þetta er mun meiri vinna en mig
óraði fyrir. Þeir, sem ætla að kom-
ast í uppgrip á stuttum tíma, ættu að
snúa sér að einhverju öðru. Þetta er
enginn vertíðarbisness. Við vomm
eitt ár í skóla hjá McDonalds, sem
meðal annars fólst í að vinna á veit-
ingastöðum þeirra erlendis, eitt ár
fór í rannsóknir og undirbúning og
eitt ár í að koma þessu upp hér
heima. En viðtökumar hafa verið
mjög góðar og ég er ánægður með
hve vel hefur gengið."
leyfistaki fær leiðsögn og aðstoð frá
sérleyfisgjafa. Það er mjög mikilvægt
fyrir einstakling með litla reynslu og
kunnáttu af rekstri fyrirtækis. Sér-
leyfistaki fær þjálfun og kennslu sem
stuðlar að velgengni í rekstri. Sér-
leyfistaki er eigandi rekstursins en
sleppur við þá áhættu og vandamál
sem fylgja því að setja eigin rekstur á
fót. Lausnir á ýmsum vandamálum
liggja þegar fyrir hjá sérleyfisgjafan-
um. Loks nýtur sérleyfistaki góðs af
stærð sérleyfisnetsins með magninn-
kaupum á hagstæðum kjörum.
STRÖNG SKILYRÐI
Gallamir eru mun færri og þykja
veigalitlir samanborið við kosti sér-
leyfiskerfisins. Sérleyfistaki skapar
flest vandamál fyrir sérleyfisgjafa.
Honum eru sett ákveðin skilyrði sem
hann verður að ganga að en vandamál
geta orðið ef upp kemur ósætti milli
aðilanna eða ef vantraust skapast. Þá
er alltaf hætta á að sérleyfistaki standi
sig ekki í rekstrinum og skaði ímynd
eða orðspor sérleyfisins. í versta falli
verður að rifta samningi. Sérleyfis-
gjafi verður því að vanda valið á sér-
leyfistaka. Framtíð sérleyfisins er í
höndum þess síðamefnda og slæmt
val getur verið dýrkeypt.
Fyrir sérleyfistakann getur þótt
neikvætt að honum er sjaldnast leyft
að gera breytingar eða setja í fram-
kvæmd nýjar hugmyndir tengdar
rekstrinum. Sérleyfistaki er undir
eftirliti sérleyfisgjafa og skuldbundinn
til að fara að settum reglum og stöðl-
um. Allar breytingar eru háðar sam-
þykki sérleyfisgjafans og ekki má
selja reksturinn nema með leyfi sér-
leyfisgjafans.
30