Frjáls verslun - 01.08.1995, Page 41
Gunnar Rafn ræðir hér við Elínu Hlíf Helgadóttur, starsmann innanlandsdeildar. Elín Hlíf hefur tekið við ófáum
fyrirspurnum um ísland á alnetinu. Ljóst er að ferðaskrifstofan hefur dottið niður á viðbótarmarkað.
fallegan og sölulegan vef, það verður
að tryggja að notendur Internetsins
eigi greiðan aðgang að vefnum og
fmni hann auðveldlega. Hermann
segir það skipta miklu máli að vera
vakinn og sofinn yfir því að koma upp-
lýsingunum fyrir á réttum stöðum.
„Við leggjum því mikla áherslu á að
koma lykilorðum vefanna í íslands-
gáttinni í sem flesta leitarorðabanka
Internetsins og gáttinni sjálfri inn á
sem flestar sérhæfðar gáttir vefs-
ins.“
Hermann segir að þessi vinna aug-
lýsingastofunnar hafi skilað þeim ár-
angri að nú opni allt að tíu þúsund
gestir íslandsgáttina í hverjum mán-
uði og skoði sig um. „Og gestunum
fjölgar, þannig að Gunnar Rafn má
búast við því að mun fleiri en sex
þúsund manns skoði vef Samvinnu-
ferða-Landsýnar á mánuði, þegar
fram líða stundir."
AFflR LÁGUR BIRTINGARKOSTNAÐUR
En hvað kostar að kynna sig á
þessum nýja miðli sem Internetið er.
Þeir Gunnar Rafn og Hermenn segja
að um ákveðið brautryðjendastarf
hafi verið að ræða hjá Samvinnuferð-
um-Landsýn; samstarf frekar en að
Auglýsingastofa Reykjavíkur hafi
beinlínis unnið verkið að beiðni fyrir-
tækisins, og verðlagning verkefnisins
hafi verið samkvæmt því. En Her-
mann bætti því við að auglýsingastof-
an tæki 6400 krónur fyrir uppsetn-
ingu hverrar síðu og miðað við um-
fang vefs Samvinnuferða-Landsýnar
hefði uppsetningin kostað liðlega eina
milljón króna. Geymslukostnaðurinn
á netinu, eiginlegur birtingakostnað-
ur, er hins vegar afar lágur, eða krón-
ur 200 fyrir hverja síðu á mánuði.
Miðað við það gjald kostar það Sam-
vinnuferðir-Landsýn á hverjum mán-
uði, kr. 32.000,- að vista vefinn á
Internetinu.
Gunnar Rafn segir ástæðuna fyrir
því að fyrirtækið kom sér fyrir á Int-
ernetinu fyrst og fremst þá að þeir
hafi viljað vera í fararbroddi, vera
skrefi á undan keppinautunum. „Við
seljum íslandsferðir, þá vöru sem við
framleiðum, fyrst og fremst til ferða-
heildsala erlendis, þeir sjá síðan um
að þjóna ferðaskrifstofunum í sínu
heimalandi. Þessi kynning á Internet-
inu er fyrst og fremst hugsuð sem
aðstoð við ferðaheildsalanna frekar
en að við séum að reyna að selja ferðir
beint til einstaklinga erlendis.“
Reyndar segir Gunnar að áhersla
sé lögð á að vísa öllum beinum
fyrirspurnum til ferðaheildsalana.
„Við svörum á rafrænu formi þeim
fyrirspurnum sem til okkar koma og
sendum yfirleitt gögn til baka í pósti.
En við leggjum megináherslu á að er-
lendir aðilar leiti til söluaðila í viðkom-
andi landi. Vefurinn okkar á netinu er
okkar framlag til að auðvelda söluaðil-
um ytra að selja íslandsferðir okkar
frekar en keppinautanna, við höfum
gert þær aðgengilegri og sýnilegri,
auk þess sem söluaðilarnir sjá með
vefnum að við erum lifandi og sívirkir í
því að koma upplýsingum á framfæri.
Þeir muna þá frekar eftir okkur en
öðrum sem ef til vill eru að selja ferðir
sem eru ekki ósvipaðar okkar ferðum
þegar grannt er skoðað.
Annað sem við höfum fundið fyrir
er að vera okkar á Internetinu hefur
orðið til þess að fleiri söluaðilar ytra
vilja okkar ferðir um ísland. Ég man
til að mynda eftir erlendum ferðasölu-
aðila sem leitaðist eftir því að fá að
selja fyrir okkur eftir að viðskiptavin-
ur hans leitaði til hans eftir upplýsing-
um um ákveðna íslandsferð sem hann
sá á vefnum okkar en viðkomandi
söluaðili gat ekki boðið upp á.
Það er því ljóst að við erum þegar
búinn að fá fyrir kostnaði við uppsetn-
ingu vefsins og vel það!“
Vef Samvinnuferða -Landsýnar má
frnna á íslandsgáttinni en vefslóð gátt-
arinnar er: http:www.artic.is
41