Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.08.1995, Síða 50

Frjáls verslun - 01.08.1995, Síða 50
Gunnar er mikill áhugamaður um tónlist. Hann hefur verið varaformaður Styrktarfélags íslensku óperunnar frá 1988. Sjálfur lagði hann stund á píanónám í æsku og þótti nokkuð liðtækur píanónemandi. Hann var og virkur í Lúðrasveit Vesturbæjar og lék þar á túpu og vakti verðskuldaða athygli fyrir tök sín á þessu háværa og dimmradd- aða hljóðfæri. Síðar lék hann með Lúðrasveit Reykjavíkur í nokkur ár. stefnufastur. Hann mætir snemma á morgnana, jafnvel fyrir klukkan átta ef því er að skipta, vinnur afar vel og missir aldrei sjónar á langtímamark- miðum. Þannig mun hann hafa unnið að undirbúningi Stöðvar 3 í undanfarin tvö ár. Hann hefur góða yfirsýn yfir verk- efnin, sem fyrirtækið er að fást við hverju sinni, og sumir segja að hann sé eins og fíllinn, hann gleymi engu. Þetta kemur meðal annars fram í því að Gunnar er langrækinn. Hann hefur næma réttlætiskennd og ef henni er misboðið á einhvem hátt á hann erfitt með að fyrirgefa viðkomandi. Af þessum sökum hefur hann stundum lent í útistöðum við menn á ferli sín- um. Hin hliðin á Gunnari lýsir sér í því að verði hann þess áskynja að starfs- menn hans eigi í einhverjum pers- ónulegum erfiðleikum þá er hann afar nærgætinn og tillitssamur og hikar ekki við að gefa af sjálfum sér ef á þarf að halda og þetta hefur stundum kom- ið mönnum á óvart sem litu svo á að hann væri fyrst og fremst harður bisnessmaður. „Hann er feikilega marksækinn og stefnufastur og á auðvelt með að vinna að langtímamarkmiðum og koma sínum málum, sem hanntrúir á, í höfn og rífur fólk auðveldlega með sér,“ sagði Guðmundur Hannesson, markaðsstjóri Stöðvar 3, sem hefur starfað með Gunnari í Nýherja og IBM frá 1976. Gunnar Magnús var að mörgu leyti á undan sinni samtíð í ýmsum málum. Þannig var hann harður andstæðingur reykinga löngu áður en það varð al- mennt á vinnustöðum og var búinn að gera Nýheija að reyklausum vinnu- stað býsna löngu áður en slíkt komst í almenna umræðu. Hann lét innrétta íþróttaherbergi í húsnæði IBM við Skaftahlíð og koma þar fyrir líkams- ræktartækjum og sturtum áður en það varð algengt og hvatti starfsmenn sfna ákaft til þess að nota þessa að- stöðu. Gunnar heldur sjálfum sér í formi með því að fara á hestbak, stunda leikfimi og ennfremur með því að leggja stund á tennis. Hann þykir harður og óvæginn á tennisvellinum, ekki síst við sjálfan sig og er það tekið sem dæmi að hann hafi haldið áfram að leika löngu eftir að hann var kom- inn með tennisolnboga sem er ill- ræmdur íþróttakvilli og ákaflega sárs- aukafullur. Kunnugir segja að Gunnar Magnús sér mikill sælkeri og finnist fátt betra en að borða góðan mat og drekka gott vín með. Hann er mikill áhugamaður um léttvín og er sagður ótrúlega slyngur vínþekkjari. Þetta áhugamál mun hann hafa tileinkað sér til þegar hann dvaldist í Frakklandi í starfsþjálf- un hjá IBM. Þannig sýnir nærmyndin af Gunn- ari Magnúsi Hanssyni okkur samsett- an mann úr fáguðum sælkera, þolin- móðum vinnuhesti og hugsjónamanni og tónelskum menningarfrömuði. 50

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.