Frjáls verslun - 01.08.1995, Síða 63
Mitsubishi Pajero er einn vinsælasti lúxusjeppinn. Nýi bensínhreyfillinn er V6, 3,5 lítra. Nýi dísilhrevfillinn er 2,8 lítra, með forþjöppu og
millikæli. Verðið á lönguin Pajero er frá 3.050 þúsund krónum.
Liíxusjeppinn PAJERO
Mitsubishi Pajero hefur verið einn vinsælasti lúxusjepp-
inn hér á landi síðastlibin tíu ár, ekki hvað síst á meðal
stjórnenda í fyrirtækjum. Mest hefur verið selt af lengri
gerðinni. Verðið er frá 2.540 þúsund krónum á styttri gerð-
inni og 3.050 þúsund krónum á þeirri lengri.
„Pajero er hvort tveggja í senn, vandaður fólksbíll og
góður jeppi. Hann hefur öll þægindi dýrra fólksbíla í inn-
anbæjarakstri og getu góðra jeppa í akstri utan vega,“ seg-
ir Finnbogi Eyjólfsson, fulltrúi hjá Heklu, um vinsældir
Pajero-jeppans.
Mitsubishi L-300. Vinsæll af fyrirtækjum og til cinkanota. Verð frá
1.550 þúsund krónum.
L-300 er sendibill
„Mitsubishi L-300 er hvort tveggja í senn sendibíll og
farþegabíll. Hann er 8 manna og því góður vinnubíll fyrir
fyrirtæki og stofnanir, sem og fyrir stórar fjölskyldur. Þetta
er stærsti fólksbíllinn sem Hekla býður frá Mitsubishi og
er vinsæll til ferðalaga á fjöllum þar sem hann er búinn
tengjanlegu aldrifi og milligírkassa með háu og lágu niður-
færsluhlutfalli," segir Finnbogi. Verðið er frá 1.550 þúsund
krón um.
Um aðrar ástæður fyrir vinsældum Pajero, segir Finn-
bogi: „Bíllinn er ábúðarmikill og virðulegur í útliti en samt
sportlegur. Þetta hefur gert hann vinsælan um allan heim.
Utlitið dugir þó ekki eitt til; hann er tæknilega mjög vel bú-
inn og með aksturseiginleika sem hrífa ökumenn."
Pajero er með aldrifsbúnað sem eykur notagildi og ör-
yggi. Um er að ræða svokallaðan fjölvalsbúnað þar sem
velja má um hefðbundið eindrif (afturdriQ og sítengt aldríf
með seigjutengsli og millimismunadrifi sem hægt er að
læsa. Einnig er hægt að læsa afturdrifmu að fullu og að
sjálfsögðu er bæði hátt og lágt niðurfærsluhlutfall í milli-
gírkassa.
Tvær nýjar gerðir hreyfla eru í Pajero; bensín og dísil.
Nýi bensínhreyflllinn er V6, 3,5 lítra, 24 ventla með tvo
yfirliggjandi kambása. Nýi dísilhreyfillinn er 2,8 lítra með
forþjöppu og millikæli.
Rúmgóilir SPACE WAGON
„Mitsubishi Space Wagon er eiginlega sambland af
fólksbíl og jeppa þótt hann teljist í flokki fólksbíla. Eins og
nafnið bendir til er hann rúmgóður. Hann er 7 manna og
með sítengdu
aldrifi. Sífellt fleiri
gefa þessum bíl
gaum, meðal ann-
ars atvinnubíl-
stjórar,“ segir
Finnbogi. Verðið
er frá 2.350 þús-
und krónum.
Spaee Wagon, sambland af fólksbíl og
jeppa. Verð frá 2.350 þúsund krónum.
Laugavegi 172-174. Sími: 569 5500