Frjáls verslun - 01.08.1995, Blaðsíða 68
FOLK
ÞÓRUNN RAGNARSDÓTTIR, LANDSBANKA
tibú Landsbanka ís-
lands á Seltjamar-
nesi var opnað árið
1992. Reksturinn hefur vax-
ið hægt og sígandi en hér
voru öflugir bankar fyrir.
Viðskipti við einstaklinga er
uppistaðan í starfseminni og
hefur þjónusta við þá farið
vaxandi. Tilboði bankans
um greiðsludreifingu hefur
t.d. verið mjög vel tekið en
við hana nær fólk betri yfir-
sýn yfir fjármálin. Með því
að fá betri heildarmynd hef-
ur fólk skorið niður óþarfa
og jafnvel getað farið út í
reglulegan spamað, segir
Þórunn Ragnarsdóttir, úti-
bússtjóri Landsbanka ís-
lands á Seltjamarnesi.
Þórunn er 50 ára. Hún
lauk prófi frá Samvinnuskól-
anum á Bifröst 1966 en hafði
þá unnið í Samvinnubankan-
um í Bankastræti í nokkur
sumur. 1968 hóf hún aftur
störf í þeim banka og vann
þar til 1971 þegar hún tók
sér frí vegna bameignar.
„Ég kom aftur til starfa
1975 og vann í átta ár í útibúi
Samvinnubankans í Austur-
veri við Háaleitisbraut. Þá
tók ég mér frí í eitt ár, til að
sinna unglingunum á heimil-
inu, en 1984 varð ég deildar-
stjóri í útlánadeild Sam-
vinnubankans í Bankastræti
og var þar þegar bankarnir
sameinuðust 1990. Þegar
staða útibússtjóra í nýju úti-
búi á Seltjamarnesi var aug-
lýst, 1992, sótti ég um og
hef sinnt því starfi síðan,“
segir Þórunn.
ALLIR KOMA í
BANKANN Á SAMA TÍMA
Þórunn segir að starfið sé
krefjandi og skemmtilegt en
það útheimti mikla vinnu og
TEXTI: ELÍSABET ÞORGEIRSDÓTTIR
hún verði nú öðruvísi þreytt
• „Eg
en hún varð áður. „Lg var
búin að vinna lengi í höfuð-
stöðvum Samvinnubankans
og hafði þá dagleg samskipti
við yfirmenn bankans. Því
fylgir meiri einangrun að
MYNDIR: BRAGI P. JÓSEFSSON
vera í litlu útibúi og ég get
ekki fylgst eins vel með því
sem er að gerast í höfuð-
stöðvunum. Sem útibús-
stjóri tek ég daglegar
ákvarðanir sjálf og þarf að
standa og falla með þeim.
Þórunn Ragnarsdóttir vann í Samvinnubankanum á
þriðja áratug og gerðist útibússtjóri Landsbankans á
Seltjarnarnesi þegar það var stofnað.
Næsti yfirmaður minn er
svæðisstjóri, sem ég get
haft samband við þegar ég
vil, en ég hitti yfirmenn
bankans mun sjaldnar.
Hér vinnur gott starfsfólk
sem gerir útibúinu kleift að
sinna þeirri þjónustu sem
fólk vill fá þegar það kemur í
bankann. Flestir koma hing-
að um mánaðamót og þá
myndast örtröð en stefna
bankans er að dreifa álag-
inu. Hin nýja þjónusta, þar
sem fólk getur fært banka-
viðskipti sín í gegnum tölv-
ur, hefur lengi staðið fyrir-
tækjum til boða en er nú að
færast inn á heimilin einnig.
Landsbankinn leggur þó
áherslu á að fólk hætti ekki
að koma í bankann og fá
persónulega þjónustu,"
segir Þórunn.
TRJÁRÆKT í ÖLFUSINU
Eiginmaður Þórunnar er
Snorri Egilsson, markað-
stjóri hjá Bflanausti. Þau
eiga 28 og 27 ára dætur, 23
son og þrjú barnabörn.
í frístundum er dvöl í
sumarbústað fjölskyldunnar
í Ölfusi vinsælust en þar
dveljast þau nánast um
hverja helgi frá páskum og
fram í október. „Við höfum
unnið mikið að trjárækt í
sumarbústaðalandinu og hef
ég mikla ánægju af því,“
segir Þórunn. „Leikfimi er
einnig fastur liður á dag-
skránni; ég fer í eróbik
tvisvar til þrisvar í viku.
Söngstarf í kirkjukór Garða-
kirkju í Garðabæ er líka eitt
af áhugamálunum en kóræf-
ingar eru einu sinni í viku
yfir vetrartímann. Að öðru
leyti fer frítími minn mest í
að sinna fjölskyldunni," seg-
ir Þórunn.
68