Frjáls verslun - 01.01.1996, Blaðsíða 56
SKILABOÐ TIL STJÓRNVALDA
ÁFRAM ÍSLAND!
Þeim þjóðum, sem senda leikmenn sína með haft á fótum, verður ekki ágengt
á alþjóðlegum leikvelli samkeþþninnar, segir Sverrir Bernhöft
□ fram ísland! Áfram ísland!.
Við erum stödd í Laugardals-
höll og erum að fylgjast með
spennandi landsleik í handbolta á milli
Islands og Suður - Kóreu. Það glymur
í höllinni er okkar menn skora sín
glæsilegustu mörk. Hversu oft höfum
við ekki heyrt þúsundir hvetja okkar
fólk til dáða í keppnum við lið annarra
þjóða? Áfram ísland! Áfram ísland!
Við hrópum okkur hás og sigur-
gleðin, sigurvonin fyllir okkur þjóð-
legum metnaði. Við getum þetta! Við
milljónaþjóðirnar segjum við: „Sex
menn hlaupa ekkert hraðar en einn.“
Á bak við liggur þjóðarstoltið og vonin
um að fá að njóta sigurgleðinnar eftfr
að við höfum lagt verðugan andstæð-
ing að velli í sanngjörnum leik þar sem
menn vinna á verðleikum sínum, á
jafnréttisgrundvelli. Við setjumst upp
í bílinn og kveikjum á útvarpinu. Þar
er enn verið að greina frá sigrinum.
Okkar maður er dynjandi hás og ræð-
ur sér vart fyrir gleði. ísland 24 -
Kórea 23. „Hér er æðisgengin
stemmning." Hann teygir á sigur-
stundinni. „Sjónvarpið mun sýna úr
leiknum eftir ellefufréttir í kvöld“
segir hann. Við drífum okkur heim og
veltum okkur enn upp úr spennunni.
Sofnum með bros á vör.
Það er morgunn og við veltum fyrir
okkur atburðum gærkvöldsins. Hvað
sáum við? Hvað er svona sérstakt við
SKILABOÐ
TIL STJÓRNVALDA
Sverrir Bernhöft
þessa spennu og leikinn hvemig sem
hann annars fer? Það, sem tryggir
okkur möguleikann á sigri fyrir utan
gott fólk, sem kann sitt fag í íþrótt-
inni, eru leikreglumar. Mjög öflug,
alþjóðleg samtök gæta þess með
hörku að þær séu haldnar. Það fólk,
sem þannig tryggir öllum þjóðum,
smáum sem stóram, jafnan aðgang að
sigrinum þegar á völlinn er komið, á
þakkir okkar skildar. Án samtaka og
samstöðu um að viðhalda sanngjöm-
um reglum, sem skulu yfir alla ganga
væri aðstaða, okkar sjálfsagt allt önn-
ur og verri. Við stæðum sjálfsagt og
spyrðum: „Af hverju getur ekki
íþróttaforystan eða alþjóðasambandið
komið sér saman um að búa svo um
hnútana að við getum tekið þátt án
þess að vera heftir af ósanngjörnum
leikreglum?" Lesandi góður, myndir
þú nenna á landsleik þar sem mótaðil-
inn fengi 5 mörk í forgjöf? Auðvitað
ekki.
Það er eins með keppnisreglur í
handbolta og keppni um viðskipti,
bæði innanlands og á alþjóðlegum
markaði. Leikreglurnar þurfa að vera
sem jafnastar. Enn í dag, þremur og
hálfum áratug eftir að Viðreisnar-
stjórnin tók við völdum, er íslenskt
viðskiptalíf að berjast við stjórnvöld
um að koma á sambærilegum leik-
reglum hjá okkur og önnur lönd hafa á
markaðnum. Berjast fyrir að fá tæki-
færi til að njóta sín, bera nýjar hug-
myndir undir markaðinn, bæði heima
og á alþjóðlegum markaði.
íslendingar verða að láta sér skilj-
ast að þótt djúpt haf skilji okkur frá
öðrum þjóðum þá ver það okkur ekki
frá veruleikanum. Það kostar t.d. tíu
sinnum meira að stofna fyrirtæki á
íslandi en á Bretlandi. Tekjuskattur á
lítil og meðalstór fyrirtæki er 25% í
Bretlandi en 33% á íslandi. Stór, al-
þjóðleg fyrirtæki láta hagsmuni hlut-
hafa sinna ráða og reka sín fyrirtæki
þar sem atvinnan ein og þekking
fólksins ræður en skattheimtu illa
rekinna ríkissjóða er einfaldlega ekki
ansað. Ekki má heldur gleyma því að
aukin atvinna og hagvöxtur eru um
allan heim tengd frumkvæði einstakl-
inganna sem stofna fyrirtæki og láta
hendur standa fram úr ermun. Um allt
land má sjá eigendur lítilla fyrirtækja
vinna myrkranna á milli til að koma
þeim á legg. Þegar vel tekst til ráða
EF MÓTHERJINN FENGI 5 MÖRK í FORGJÖF?
„Lesandi góður. Myndir þú nenna á landsleik þar sem mótherjinn fengi 5 mörk í
forgjöf? Auðvitað ekki. Það er eins með keppnisreglur í handbolta
og keppni um viðskipti bæði innanlands og á alþjóðlegum markaði; leikreglurnar
þurfa að vera sem jafnastar. “
MYNDIR: BRAGI P. JÓSEFSSON
56