Frjáls verslun - 01.01.1996, Blaðsíða 25
breytingar hafa verið gerðar hægt og
sígandi - og án þess að mikið fari fyrir
þeim. Þarf ekki annað en að skoða
nokkurra ára gömul blöð til að sjá
hvað munurinn er mikill.
ÖRAR FRAMFARIR
í PRENTTÆKNI
Örar framfarir í prenttækni hafa
gert kleift að setja efni Fijálsrar
verslunar fram á markvissari og
myndrænni hátt en áður, eins og með
gröfum, ljósmyndum og línuritum.
Litur hefur aukist stórlega í blaðinu
og fyrir vikið er það líflegra í útliti. Þá
má geta þess að flestar auglýsingar
eru núna í lit en fyrir um tíu árum voru
svart/hvítar auglýsingar áberandi.
Þótt útlit skipti vissulega miklu máli
er það engu að síður efni blaða og
tímarita sem ræður úrslitum um vin-
sældir þeirra.
BÓKIN100 STÆRSTU
Flaggskip Frjálsrar verslunar er
bókin 100 stærstu, listinn yfir stærstu
fyrirtæki landsins. í lauslegum könn-
unum ritstjómar nefna langflestir 100
stærstu þegar þeir em spurðir út í
hvað þeim detti fyrst í hug þegar þeir
heyri Frjálsa verslun nefnda. Þótt
listinn gangi undir heitinu 100 stærstu
eru birtar upplýsingar um á sjötta
hundrað fyrirtæki. Listinn hefur
löngu sannað gildi sitt og er tvímæla-
laust eitthvert mest lesna efni um
viðskipti hérlendis. Listinn kom
fýrst út árið 1977 og var þá unninn af
Guðmundi Magnússyni, prófessor í
hagfræði.
Frjáls verslun leggur mikla
vinnu í gerð listans. í upphafi sum-
ars eru send út eyðublöð til um
þúsund fyrirtækja og þau beðin
um upplýsingar úr rekstri sínum.
Tekist hefur sérlega góð sam-
vinna við fyrirtæki landsins um gerð
listans og em hér áréttaðar þakkir til
þeirra fyrir gott samstarf. Listinn yfir
stærstu fyrirtækin var fyrst gefin út í
bókarformi árið 1993 og mæltist sú
breyting mjög vel fyrir hjá lesendum.
KANNANIR 0G
MAÐUR ÁRSINS
Af öðm föstu árlegu efni í Fijálsri
tölublað °Frí?lára“
vel fvrir Dreyting mæist sérIega
er eitt vinsælasta
verslunar. igg
verslun má nefna skoðanakönnun
blaðsins um vinsælustu fyrirtækin,
könnun á tekjum einstaklinga og ein-
stakra tekjuhópa og útnefningu á
manni ársins í viðskiptalífinu í sam-
vinnu við Stöð 2. Um síðustu áramót
var Össur Kristinsson, stoðtækja-
fræðingur, uppfinningamaður og að-
aleigandi Össurar hf., útnefndur mað-
A SIÐASTA ARI
r&m+w.-í-um
Þab margborgar sig að gerast áskrifandi ab Frjálsri verslun:
HAGNAÐUR AF ÁSKRIFT
UM 2.700 KRÓNUR Á ÁRI
Það margborgar sig að gerast
áskrifandi að Fijálsri verslun í stað
þess að kaupa blaðið í
lausasölu. Hagnaðurinn
af áskriftinni nemur um
2.700 krónum á ári, það
er sá afsláttur sem
áskrifendur, er greiða
með greiðslukorti, fá á
ári.
Áskrift að Frjálsri
verslun kostar aðeins
rúmar 5.500 krónur á ári
sé greitt með korti. Inn-
ifalið í því verði eru 10
tölublöð á ári, þar af er
bókin 100 stærstu sem kostar 1.999
Hagstæðast er að
greiða með korti.
krónur í lausasölu. Það er því eftir
miklu að slægjast með áskrift.
Ef greitt er með korti
kostar Frjáls verslun
aðeins 2.605 krónur í
áskrift fyrri hluta ársins
en 2.984 krónur seinni
hlutann. Hærra áskrift-
arverð seinni hlutann er
vegna bókarinnar 100
stærstu.
Talnakönnun, nýr út-
gefandi Frjálsrar versl-
unar, mun á næstu mán-
uðum standa fyrir kröft-
ugu markaðsátaki.
25