Frjáls verslun - 01.01.1996, Blaðsíða 53
VEÐIB KRAFTAKVÆÐ
son er hann tók við útnefningunni sem maður ársins 1995 í viðskiþtalífinu
minni, Björgu Rafnar, og fjölskyldum
okkar.“
FORMÚLAN AÐ VELGENGNIER EKKI
TIL. EN HÉR ER NÁLGUN
„Ósjaldan er spurt hver sé formúl-
an að velgengninni. Formúlan er auð-
vitað ekki til. En ef maður reyndi ein-
hverja nálgun, sem gæti átt við okkar
fyrirtæki, þá liti hún kannski svona út:
1. Haldgóð grunnþekking á við-
fangsefninu. 2. Víðtæk aðferða- og
efnisþekking á því sviði sem fengist
er við. 3. Hæfileikaríkt samstarfs-
fólk. 4. Skemmtileg verkefni inn á
milli, — þau bæta starfsandann. 5.
Markviss markaðsvinna. Frá sölu-
Ólafur B. Ólafsson, for-
maður VSÍ, Pétur Guð-
mundarson, stjórnarfor-
maður Össurar hf. og Jó-
hann J. Ólafsson, stjómar-
maður í íslenska útvarps-
félaginu.
Þakkarræða Össurar vakti mikla
athygli og var honum fagnað inni-
lega.
vöru til markaðshlutdeildar er langur
vegur. 6. Stöðugar endurbætur á
söluvörunni. 7. Þjónusta og meiri
þjónusta við viðskiptavini. 8. Vinna
og aftur vinna — ásamt góðum
skammti af þrautseigju. 9. Síðast en
ekki síst: Ánægt starfsfólk sem fmnst
gaman að því sem það er að gera.“
Össur sagði að kveikjan að stöð-
ugri vöruþróun og uppfinningum
fyrirtækis síns hefði verið sú að hann
hefði ekki getað sætt sig við þá tækni
sem honum stóð til boða. „Mér fannst
að ég hlyti að geta gert betur fyrir
viðskiptavini mína og hóf fljótlega til-
raunir til þess. Það má því segja að
jarðvegurinn, sem þetta spratt úr,
hafi verið þörfin fyrir að gera betur,
gera Kf þeirra, sem til mín leituðu,
bærilegra."
MEGUM EKKIHUGSA SMÁTT
Þessu næst minntist Össur aftur á
kvæði Matthíasar og sagði: „Krafta-
kvæðið, eða Heilsu-minni Kristjáns
skálds, eins og segir í undirfyrirsögn,
var grín. Þetta hér er ekkert grín og
íslenskt viðskiptalíf er heldur ekki
neitt grín. Við vitum öll að þörfm á
nýsköpun, ásamt því að vinna betur
úr því sem við höfum, hefur sjaldan
verið meiri. Eins lítil og við erum
megum við samt ekki hugsa smátt.
Innanlandsmarkaðurinn er ekki nógu
stór til að skila þeim arði sem við
þurfum fyrir okkar vörur í framtíð-
inni.
Það þarf að festa fjármagn í stór-
huga markaðssóknum erlendis fyrir
íslenskar vörur og hugvit. Það eru til
margir vöruflokkar sem með hagræð-
ingu, betri framleiðsluaðferðum og
djörfung í markaðssókn væri hægt að
fá af góða framlegð. Sem betur fer er
nóg af framsæknu, ungu fólki í ís-
lensku þjóðfélagi. Þetta er vel mennt-
að fólk sem kannski er ekki óánægt
og reitt, eins og var í tísku í gamla
daga, en hefur hugmyndir og fram-
kvæmdavilja sem á eftir að verða ís-
lensku viðskiptalífi aflgjafi til frekari
sóknar inn í framtíðina. Það finnst
mér gott að vita.“
Lokaorð Össurar voru þessi:
„Með þessari útnefningu hefur mér
verið kveðið kraftakvæði, að vísu
undir öðrum bragarhætti en gaman-
ríman hans séra Matthíasar, en
kraftakvæði engu að síður. Ég þakka
Frjálsri verslun og íslenska útvarps-
félaginu, og þá sérstaklega frum-
kvöðlinum að þessum útnefningum
og formanni dómnefndar, Magnúsi
Hreggviðssyni."
y Pálsson,
rBaldursson,maðu
1992, Finnur lng
^viðskiptaráðherra
ignús Hreggviðsson,
,hur dómnefndar.
53