Frjáls verslun - 01.01.1996, Blaðsíða 50
NÆRMYND
eftir. Þetta var um svipað leyti og
hann lagði reykingar á hilluna og gerði
ákveðnar endurbætur á líferni sínu
með tilliti til heilsufars.
Það er oft mannmargt á Einimel því
bamabömin sækja mikið til afa og
ömmu og börnin einnig. Margir heim-
ilisvinir eru þar gestir en traustustu
vinir þeirra hjóna munu vera Barði
Friðriksson og frú Þuríður Þorsteins-
dóttir og Guðmundur Benediktsson,
fyrrverandi ráðuneytisstjóri í forsæt-
isráðuneytinu, og frú Kristín Claes-
sen.
Sverrir er mikill áhugamaður um
bókmenntir og les mikið. íslendinga-
sögur og fornaldarsögur Norðurlanda
les hann mikið og íslensk skáld og
Ert þú
með lánshæfa
hugmynd til eflingar
atvinnulífi ?
Við veitum
góðri hugmynd
brautargengi!
Við veitum fúslega nánari upplýsingar
um lán til atvinnuskapandi verkefna
í öllum greinum.
LÁNASJÓÐUR
VESTUR -NORÐURLANDA
ENGJATEIG 3 • PÓSTHÓLF 5410 • 125 REYKJAVÍK
SÍMI: 560 5400 • FAX: 588 2904
rithöfunda, s.s. Halldór Laxness.
Hann les einnig mikið þjóðlegan fróð-
leik og sagnfræði og æviminningar
stjórnmálamanna njóta vaxandi vin-
sælda hjá honum. Sverrir er óhemju
fljótur að lesa og hefur fflsminni og
getur vitnað orðrétt til þess sem
hentar hverju sinni svo með ólíkind-
um þykir. Þrátt fyrir mikla ást á rituðu
máli og skáldskap hverskonar er ekki
vitað til þess að Sverrir fáist við slíkt
sjálfur utan að semja slyngar ræður
og heimildarmenn segja hann geta
sett saman vísur sem hann hafi látið
fljúga í þingveislum.
Hann heldur fornum matarvenjum
Vestfirðinga í heiðri með því að halda
skötuveislu einu sinni á ári, oftast
daginn fyrir messu heilags Þorláks.
Þar hittist fastur kjarni vina og kunn-
ingja og borðar kæsta skötu að vest-
firskum sið með bræddum hnoðmör
og einnig er boðið upp á skötustöppu
með hangifloti fyrir þá sem ekki
kunna að meta hnoðmörinn. Þar
svigna borð einnig undan Hólsfjalla-
hangikjöti, freðýsu og ýmsu þjóðlegu
góðgæti á borð við súra selshreifa. Sú
veisla er aðeins fyrir karlmenn og
meðal gesta þar má nefna son og
tengdasyni, þá vini og kunningja, sem
þegar hafa verið nefndir, en einnig
koma þangað Ámi og Matthías Math-
iesen, Helgi Þórðarson verkfræðing-
ur og Bjöm Bjömsson, yfirbflstjóri
Landsbankans.
„Hann Sverrir var eins og fiskur í
vatni í pólitík þar sem hann gat rifið
stólpakjaft á framboðsfundum og
skemmt fólki. Hann var oft í vondu
skapi þegar hann var ráðherra og þá
verður hann meinyrtur og fúll,“ segir
maður sem þekkt hefur Sverri um
árabil og unnið með honum.
Ema Ragnarsdóttir, tengdadóttir
Sverris og blaðamaður, segir hann
vera miklu meira ljúfmenni en ætla
mætti af ímynd fólks af honum.
„Ég sé hans rétta eðli þegar hann
tekur upp barnabörnin, sem hænast
mjög að honum, og böm sjá í gegnum
skrápinn á hverjum sem er.“
Þannig sýnir nærmyndin af Sverri
Hermannssyni nokkra menn. Einn er
íhugull náttúmunnandi og veiðimaður,
annar ófýrirleitinn og frekur stjómmál-
arefúr og sá þriðji ástríkur og blíðlyndur
heimilisfaðir og bókabéus.
50