Frjáls verslun - 01.01.1996, Blaðsíða 68
Síðustu árin höfum við haft
alveg nóg af umsækjendum
um lán og því höfum við ekki
þurft að auglýsa mikið. Aður
en lánin eru endanlega veitt
höfum þann sið að heim-
sækja alla umsækjendur
hvar sem er á landinu eða á
Grænlandi og í Færeyjum."
Steinar er sextugur að
aldri. Hann er kvæntur Sig-
urlínu Helgadóttur, gjald-
kera hjá Reykjavíkurborg
og eiga þau tvo uppkomna
syni. Hann segist eyða frí-
Steinar B. Jakobsson bjó og starfaði í Bandaríkjunum og Danmörku í 30 ár áður en
hann kom til Islands.
STEINAR B. JAKOBSSON,
LÁNASJÓÐIVESTUR-NORÐURLANDA
ánasjóðurinn er
stofnun sem veitir
lán til þróunarverk-
efna innan Vestur-Norður-
landa sem eru Færeyjar, ís-
land og Grænland. Sjóður-
inn tók til starfa í ársbyrjun
1988 og fór hægt af stað en
nú er mikið að gera. Lánin
eru flest til íslands í ýmis
verkefni. AðaUega í mat-
vælaiðnað, fiskverkun og
ferðaþjónustu," segir Stein-
ar B. Jakobsson, fram-
kvæmdastjóri Lánasjóðs
Vestur-Norðurlanda. Sjóð-
urinn er með skrifstofu við
Engjateig 3 og þar starfa
fjórir starfsmenn alls. Allir
eiga möguleika á að sækja
um lán úr sjóðnum, jafnt ein-
staklingar sem fyrirtæki.
Grunnur sjóðsins eru fjár-
veitingar frá öllum Norður-
löndunum, ásamt Færeyj-
um og Grænlandi, og situr
einn frá hverju hinna fimm
ríkja í stjóm sjóðsins, auk
fulltrúa Færeyinga og
Grænlendinga. Sjóðnum er
ætlað að standa undir sér og
skila arði til nýrra verkefna.
Þess vegna er krafist góðra
veða eða ábyrgða fyrir lán-
um og ekki lánað út á góða
hugmynd eingöngu. Steinar
segir að mikil vinna sé lögð í
að greina umsóknir.
„Við viljum sjá einhverja
nýsköpun og þar er t.d.
hugbúnaður mikilvægur.
Helst á verkefnið að vera tO
þess að auka útflutning eða
takmarka innflutning. Við
erum mjög ánægðir með að
fá inn á milli þróunarverk-
efni sem lofa góðu. Það vill
hins vegar brenna við að
góðir hugvitsmenn eiga lítið
fé og litlar tryggingar á bak
við sig og fá því synjun. Við
höfum þó mjög breitt lánstil-
boð og vextir eru með
lægsta móti.“
Steinar tók við fram-
kvæmdastjórastarfinu við
stofnun sjóðsins og hefur
því mótað allt hans starf.
Hann er menntaður raf-
eindaverkfræðingur frá
Þýskalandi en þangað fór
hann að loknu stúdents-
prófi. Hann bjó og starfaði í
Bandaríkjunum og Dan-
mörku í 30 ár áður en hann
kom til starfa á íslandi. Störf
hans á erlendri grund voru
af ýmsum toga, sem yfir-
verkfræðingur og stjórn-
andi stórra fyrirtækja.
„Ég er ekki dæmigerður
bankamaður og að mörgu
leyti ágætt að hafa þennan
bakgrunn því ég hef reynslu
í að greina vandamálin. Það
eru góðar hugmyndir í gangi
en þær mættu gjaman vera
fleiri og á víðari grundvelli.
stundum sínum í lestur og
að hlusta á tónlist. Þau hjón-
in sækja tónleika og eru
með áskriftarkort á tónleika
Sinfóníuhljómsveitar ís-
lands.
„Ég er ákaflega hrifinn af
Sinfóníuhljómsveitinni og
tel að þar sé unnið gott starf
og á heimsmælikvarða,"
segir Steinar. Aðspurður
segist hann lesa fræðibæk-
ur og skáldskap jöfnum
höndum á íslensku og er-
lendum málum. Þau hjónin
hafa einnig fasta miða í
Borgarleikhúsinu og Þjóð-
leikhúsinu.
„Reykjavík er mjög lifandi
borg og úr miklu að velja í
menningu. Hér er líka stutt
að sækja í góða listviðburði
og við höfum verið mjög
áhugasöm um listir og
menningu síðan við fluttum
heim.“
68