Frjáls verslun - 01.01.1996, Blaðsíða 19
bls 19
Þrjú vinsælustu fyrirtækin
þessu sinni og útgerðarfélögin ÚA og
Samherji eru ekki langt undan.
Könnunin var gerð seinni hluta jan-
úar 1996 og byggð á 803 númera
handahófsúrtaki úr símanúmeraskrá.
Alls vildu 494 svara. Þátttakendur
voru 17 ára og eldri og dreifðust um
land allt. Síðast var byggt á þjóðskrár-
úrtaki sem var 1.200 manns. Það
virðist ekki hafa áhrif á niðurstöður
því vinsælasta fyrirtækið er með
mjög svipað hlutfall og sigurvegarar
undanfarin ár. Það kann að hafa áhrif
hvenær spurt er; fólk hafi stórmark-
aðina frekar í huga þegar jólainnkaup
eru að hefjast heldur en eftir áramót.
MiKLU FÆRRINEIKVÆÐIR
Rúmlega 5% segjast hafa neikvætt
viðhorf til Flugleiða og um 4% nefna
Eimskip. Þetta er svipað og undan-
farin ár. Bónus og Hagkaup eru í
3.-4. sæti á þessum lista en aðeins
um 2% segjast hafa neikvæð viðhorf
til þeirra. Áberandi var að á lands-
Bónus
Flugleiðir
r, d 1 Í !''
: I ■mmí r
.1 p 'wS'm 1
8 ú
■4
i É
mmmmé V-.
Eimskip
Þeir komast á verðlaunapall að þessu sinni - stjómendur vinsælustu fyrir-
tækjanna að mati almennings í landinu. Frá vinstri: Jóhannes Jónsson,
Bónus, Sigurður Helgason, Flugleiðum og Hörður Sigurgestsson, Eimskip.
Frjálsrar verslunar á vinsælustu fyrirtækjum landsins:
vinsælasta fyrirtæki landsins og skáka Bónus úrtoppsætinu í annað sætið.
Eimskip ogHagkaup eru ípriðja og fjórða sæti
byggðinni nefndu menn stórmarkað-
ina sem dæmi um fyrirtæki sem þeir
hefðu neikvæð viðhorf til. Þar heyrð-
ist það sjónarmið að markaðimir
tækju til sín verslun úr héraði.
ÚTGERÐIR SÆKJA Á
Það vekur athygli að þrjú útgerðar-
fyrirtæki, Útgerðarfélag Akureyr-
inga, Samheiji og Grandi, eru meðal
átta vinsælustu fyrirtækjanna. Þessi
fyrirtæki eru þau stærstu á sínu sviði
og þrátt fyrir mikla umræðu um að
kvótinn sé að safnast í hendur „sæ-
greifa“ þá virðast fyrirtækin ekki
skaðast á henni. Þvert á móti virðast
menn hrífast af því að þeim gangi vel
og að þau haldi uppi atvinnu og verð-
mætasköpun. Fleiri nefndu ÚA á
landsbyggðinni en bæði Samheiji og
Grandi virtust eiga fylgismenn jafnt
dreifða um landið. Ýmis fyrirtæki
tengd sjávarútvegi eru einnig á listan-
um: Sölufyrirtækin íslenskar sjávar-
afurðir eru í 13.-14. sæti, Sölumið-
stöð hraðfrystihúsanna í 20.-23. sæti
Marel í 8.-9. sæti , Sæplast í 13.-14.
sæti, Hampiðjan í 20.-23. sæti og
Slippstöðin Oddi í 24.-29. sæti. Mið-
að við fyrri ár eru flest þessi fyrirtæki
í sókn, einkum á landsbyggðinni.
HVERNIG FYRIRTÆKIERU VINSÆL?
Það vekur strax athygli hve sam-
göngufyrirtækin, Flugleiðir, Eimskip
og Samskip, koma vel út í einhverju af
sjö efstu sætunum. Þetta endur-
speglar mikilvægi þeirra víða um
land. Það vakti athygli að nokkrir
nefndu bæði Eimskip og Samskip
þrátt fyrir að um samkeppnisaðila sé
að ræða. íslandsflug kemst einnig á
listann að þessu sinni (að vísu neðar-
lega) en Atlanta dettur út, enda starf-
ar fyrirtækið fyrst og fremst erlendis.
Stórmarkaðirnir, Bónus og Hag-
kaup, eru í fremstu röð en Nóatún,
10-11 búðimar og Fjarðarkaup eru
19
sa