Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.1997, Qupperneq 35

Frjáls verslun - 01.03.1997, Qupperneq 35
MARKAÐSMAL milljónum í auglýsingar í sjónvarpi, dagblöðum og tímaritum. Arið á undan var þessi tala miklu lægri, eða um 7,5 milljónir og aðeins um 4,9 milljónir árið 1994. Af 18,7 milljóna króna auglýsinga- kostnaði á snakki árið 1996 var Maarud með rúmar 4 milljónir, Kims með rúmar 3 milljónir, Pringles með tæpar 2 milljónir og Olw með tæpar 3,8 milljónir. Birtar hafa verið auglýsingatölur fyrstu þriggja mánaða ársins 1997 og hafa snakkfýrirtækin þegar eytt um 4.1 milljón króna í auglýsingar. Hæsta upphæðin er fyrir Pringles, um 1.2 milljónir, Maarud um 775 þúsund og Kims um 745 þúsund krónur. Mestum upphæðum hefur jafnan verið eytt í auglýsingar í kringum jól og áramót og því stefnir i að auglýst verði meira í ár en í íýrra. RÚMUR HÁLFUR MILLJARÐUR Talið er að neysla á snakki sé 2-2,5 kíló á mann á ári hérlendis.íslending- ar eru samt ekki hálfdrættingar á við Norðmenn og Bandaríkjamenn. I Noregi er ársneyslan á milli 4 og 5 kíló á mann og um 8 kíló á mann í Bandaríkjunum. „Utlendingar eru oft með aðrar neysluvenjur en við Islendingar því þeir borða oft flögur með mat, til dæmis í staðinn íýrir venjulegar kartöflur,” segir Jón Axel Pétursson. Engar tölur virðast vera til um stærð snakkmarkaðarins í krónum talið. Þó má sjá grófa heildarmynd út frá þessum tölum. I hveijum poka af snakki eru oftast 200-250 grömm. Því má gera ráð íýrir að hver íslendingur kaupi að meðaltali 10 poka á ári, gróft reiknað. Meðalverð á poka er um 200 krónur og því er meðaleyðslan um 2.000 krónur. Ef miðað er við að lands- menn séu um 270.000 talsins, þá eyða Islendingar um 540 milljónum króna í snakk á ári. Fyrir þá upphæð væri hægt að kaupa 30 glæsileg ein- býlishús. Til að ná sölu verða fyrirtækin að selja snakk á sem víðast, eins og í stórmörkuðum, myndbandaleigum, sölu- turnum og bensín- stöðvum. „Það eru ekki margar verslanir sem bjóða upp á allar eða nánast allar tegundir snakks sem eru á mark- aðnum. Það eru helst verslanir eins og 10-11 og Fjarðarkaup sem reyna að hafa á boðstólum mestallt snakkið. Mjmdbandaleigurnar eru yfirleitt aðeins með snakk frá einum fram- leiðanda. Það gerir mönn- um erfitt íýrir þegar verslun að binda sig við eina tegund. Afleiðing þessa er sú að undirboð eru mikil á markaðnum og snakkfyrirtækin kosta oft miklu til að koma sinni vöru að. „Fórnarkostnaðurinn er oft svo mikill að varan er seld á fjölmörgum stöðum án nokkurs hagnaðar vegna undirboða,” segir Októ Einarsson hjá Danól. Innflytjendur á erlendu snakki telja sig ekki standa jafnfætis íslenskum framleiðendum. „Það verður að taka tillit til þess að íslenska framleiðslan nýtur verndar gagnvart erlendri fram- leiðslu. Stóru erlendu íýrirtækin hafa mikla burði í vöruþróun og eru sífellt að koma með einhveijar nýjungar. En erlenda framleiðslan er tolluð veru- lega. Það eru 80% tollar á innflutta snakkinu. Með lægri tollum væri hægt að lækka verðið töluvert,” segir Jón Axel hjá Maarud. FITUSNAUTT GENGUR EKKI Ungt fólk eru helstu neytendur á snakki. ,Amma og afi eru ekkert að borða snakk. Slagurinn um fólkið sem borðar helst snakk, fólk á aldrinum 15- 45 ára, er auðvitað harður. En ég er ekkert viss um að hann sé harðari en til dæmis í kaffinu eða mestallri versl- un í dag. Að vísu var síðasta ár mjög viðburðaríkt í snakkinu vegna þess að inn komu nýjar tegundir. Ein ný tegund virðist hafa haslað sér völl á markaðnum, Pringles-flögur sem seld- ar eru í staukum. Astæðan gæti meðal annars verið sú að Pringles er að vissu leyti frábrugðið öðru snakki, ekki síst vegna umbúðanna,” segir Jón Axel. Landanum virðist ekki líka fitulítið snakk. „Fituinnihald snakks á Islandi fer hæst upp í 35% en er yfirleitt á bil- inu frá 20% upp í 35%. Ég held að það sé svipað fituinnihald hjá flestum framleiðendum. Það má benda á að skólaosturinn er með áþekkt fituinni- y Bjóðum allskonar lager- og hillukerfi fyrir vélvædd vörugeymsluhús sem minni lagera. Innkeyrslurekkar sem rúllurekkar. Aðeins vönduð vara úr sænsku gæðastáli. Mjög gott verð. Bjóðum einnig sérhæfð lyftitæki. Leitið ráða við skipulagningu og byggingu lagerrýma. Þjonusta - þekking - ráðgjöf. Áratuga reynsla. UMBOÐS- OG HEILDVERSLUN Stí&umur Sundaborg 1 • 104 Rvk • Sími 568 3300 • Fax 568 3305 Frá hvaða framleiöanda er það snakk sem keypt er á heimilinu? Könnun Hagvangs sem tekin var í endaðan janúar síðastliðinn, eða á svipuðum tíma og Gallup-könnunin. Þar er minni munur á milli Maarud og Þykkvabæjarsnakks. 35
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.