Frjáls verslun - 01.03.1997, Blaðsíða 36
Danól er með umboð fyrir Kims. Þórey Bjarnadóttir
sölustjóri og Októ Einarsson markaðsstjóri: „Við
vitum að Kims selst mun meira en það mælist í könn-
unum.”
hald og snakkið en engu að síður er
fituinnihaldið í þeirri afurð ekki jafn
mikið í umræðunni og í snakkinu,”
segir Jón Axel.
Þórey Bjarnadóttir, sölustjóri hjá
Danól tekur í sama streng. „Gerð var
könnun á því hve mikil hörð fita væri í
snakki og niðurstaðan var mörgum
tegundum ekki í vil. Það virtist hins
vegar ekki hafa nein áhrif á söluna.
Erlendis sækja neytendur i ríkara mæli í
fitusnautt snakk,” segir Þórey.
EFSTA STIG LYSINGARORÐA
Það vakti athygli á sínum tíma
þegar slagorðið „Maarud, þær bestu í
bænum!” var kært til Samkeppnis-
stofiiunar. „Þessi kæra byggðist á
misskilningi. Það er bannað að nota
efsta stig lýsingarorða í auglýsingum.
En það virðist samt vera liðið af
sumum, til dæmis slagorð SS,
„Fremstir fyrir bragðið”. Við breytt-
um einfaldlega upphrópunarmerkinu í
spurningamerki og það hefur ekki
verið fundið að því,”
segir Jón Axel.
Kims kom með
andsvar við slagorði
Maaruds og notar
nú slagorðið „Þær
langbestu á land-
inu?” um Kims-
snakk. „Við erum
með þessu einfald-
lega að skjóta á
Maarud og slag-
orðið þeirra,” segir
Þórey Bjarnadóttir,
sölustjóri hjá Danól.
I neyslukönnun
Félagsvísinda-
stofnunar Háskóla
Islands er meðal
annars kannað við-
horf á meðal neyt-
enda til fjögurra
tegunda snakks,
Maarud, Kims,
Þykkvabæjar- og
Stjörnusnakki.
Könnunin var gerð
innan aldurshópsins
15-80 ára. Niður-
stöðurnar eru um
margt nokkuð sér-
stakar. Þeir, sem
borðuðu þessar
tegundir snakks, voru einnig spurðar
að því hvort þeir borðuðu oft skyndi-
bitafæði, tækju íslenskar afurðir fram
yfir aðrar, væru í
megrun, borð-
uðu heilsu-
saman mat,
leigðu sér oft
myndbandsspól-
ur, færu oft á
bíó, væru
aðhaldsamir í
fjármálum og
svo framvegis. í
ljós kom að þeir
áttu svolítið
meira sameigin-
legt en að kaupa
sömu tegund af
snakki.
Fylgni reyndist á milli þeirra sem
kaupa Þykkvabæjar-snakk og segjast
oft kaupa íslenskar afurðir og borða
hollan mat. Þeir sem borða Kims
flögur sögðust yfirleitt mikið fyrir
Eytt í snakkauglýsingar
tolur i milljonum krona
18,7
1994
1995
1996
Tæplega 19 milljónum var eytt
auglýsingar á snakki á síðasta ári.
skyndibitafæði og sækja kvikmynda-
hús eða fara á íþróttakappleiki.
Neytendur Stjörnusnakks sögðust
tíðum leigja sér myndbandsspólur og
fara á kaffihús. Ekki varð áberandi
vart mynsturs hjá þeim sem sækja í
Maarud-snakkið. Þeir sköruðust við
hina hópana þijá, voru eins konar
þverskurður af öllum.
KOMNIR TIL AÐ VERA
Ölgerðin Egill Skallagrímsson er
með snakktegundina Doritos á mark-
aðnum, en hún er frá fyrirtækinu
Pepsico Food International. Doritos
flögurnar, sem Egill Skallagrímsson
hefur verið með til sölu hérlendis, eru
keyptar frá Smiths í Hollandi sem er í
eigu Pepsico og General Mills.
Doritos hafa ekki verið lengi á
markaðnum hérlendis.
Jón Erling Ragnarsson er sölustjóri
hjá Agli Skallagrímssyni. „Það hefiir
verið mikill stígandi í sölunni hjá
okkur á Doritos snakki og við erum
smám saman að vinna okkur inn á
markaðinn. Síðan í desember hefur
verið mikill stígandi í sölunni. Við
tökum bara eitt skref í einu. Við hugs-
um fyrst og fremst um að koma okkur
fyrir á markaðnum áður en við eyðum
umtalsverðum fiármunum í auglýsing-
ar. Núna fæst Doritos víða í söluturn-
um, í 35 gramma pokum, og í stór-
mörkuðum sömuleiðis,” segir Jón
Erling.
- Margir sölu-
aðilar á snakk-
markaðnum telja
að hægt sé að
stækka mark-
aðinn töluvert
umfram það sem
nú er?
„Ég hef litla
trú á að hægt sé
að stækka
snakkmarkaðinn
að einhverju ráði
frá því sem nú er.
Það fer mikið
rými undir snakk
í verslunum og
það setur framboði tegunda nokkrar
skorður. Ég held að markaðurinn sé í
nokkru jafnvægi núna og að hann geti
vart stækkað nema í takt við aukinn
fólksfiölda og breyttar neysluvenjur.”
36