Frjáls verslun - 01.03.1997, Blaðsíða 74
FOLK
Bryndís Hrafhkelsdóttir, fjármálastjóri Hagkaups, stærstu matvöruverslunar á íslandi.
FV-mynd: Kristín Bogadóttir.
og sækir enn kraft til æsku-
stöðvanna.
„Mér fannst ég ná
stórum áfanga í fyrra þegar
ég fékk að fara með föður
mínum og frændum undir
Látrabjarg að sækja egg.
Það var ekki álitið kven-
mannsverk en ég tók ekki í
mál að fara með í svona
leiðangur til þess eins að
hita kaffi og stjana við
karlpeninginn."
Bryndís býr í Þingholt-
unum með Asgeiri Einars-
syni lögfræðingi, sambýlis-
manni sínum. og fjögurra
ára syni. Hún segir að tóm-
BRYNDÍS HRAFNKELSDÓTTIR, HAGKAUP
itt starf er fjármála-
stjórn og ég ber
fyrir vikið ábyrgð á
skrifstofunni, þar sem við
sjáum um allt bókhald,
launabókhald, kostnaðar-
bókhald og innflutnings-
deild og höldum að auki
utan um áætlanagerð og
eftirfylgni með útgáfu
skýrslna. Hagkaup fylgist
mjög vel með öllum tölum í
sínum rekstri svo við vitum
alltaf nokkuð nákvæmlega
hvað er að gerast. Okkar
hlutverk er að útvega þessar
tölur auk fjármögnunar,
greiðslustýringar og setu í
ýmsum vinnuhópum," sagði
Bryndís Hrafnkelsdóttir,
fjármálastjóri Hagkaupa, í
samtali við Frjálsa verslun.
Hagkaup er stærsta mat-
vöruverslun á landinu og
hefur, samkvæmt nýlegri
áætlun Frjálsrar verslunar,
um 31% af veltunni á mat-
vörumarkaði höfuðborgar-
svæðisins og verið leiðandi
á þeim markaði árum
saman. Hagkaup hf. velti
tæplega 11 milljörðum árið
1995.
TEXTI: PÁLL ÁSGEIR ÁSGEIRSSON
74
GOn ÚTSÝNI
Á skrifstofú Bryndísar í
Skeifunni er sérstætt útsýni
því hún er staðsett beint fyrir
ofan mjólkurkælinn í búðinni
og hefur góða yfirsýn yfir
verslunina sem iðar af lífi.
„Mér finnst þetta
skemmtilegt útsýni. Það er
alveg sama hvernig veðrið
er, mitt útsýni er alltaf jafn
gott. Hagkaup er lifandi
vinnustaður. Hér er prýði-
legur andi og gott að vera.“
Þetta finnst fleirum en
Bryndísi því Hagkaup hefur
árum saman verið í hópi vin-
sælustu fyrirtækja landsins
og kemur það glöggt fram í
árlegri könnun sem Frjáls
verslun gerir á vinsældum
fyrirtækja og viðhorfi al-
mennings til þeirra.
Bryndís hóf störf sem
aðalbókari hjá Hofi sf. 1994
en við skipulagsbreytingar
sem gerðar voru 1996 færðist
hún til Hagkaupa sem fjár-
málastjóri. Það má segja að
náin kynni Bryndísar af Hag-
kaupum eigi sér lengri sögu
því árið 1990 hóf hún störf
hjá KPMG Endurskoðun hf.
og fékk fljótlega það verkefni
að sjá um Hagkaup.
Bryndís útskrifaðist úr
viðskiptafræði í Háskólanum
1989 og starfaði síðan í Ox-
ford sem nokkurs konar
skiptinemi í eitt ár áður en
hún fór til KPMG Endur-
skoðunar hf..
„Mér fannst mjög góður
skóli að vinna hjá KPMG og
er mjög ánægð með að hafa
aflað mér þeirrar þekkingar
sem ég hlaut þar. Eg stefndi
að því að verða löggiltur
endurskoðandi og fór þess
vegna aftur í Háskólann og
tók alla endurskoðunarkúrs-
ana sem ég hafði sleppt í
viðskiptafræðinni. Þegar ég
réðist síðan til starfa hjá Hofi
lagði ég á hilluna fyrri áform
mín um að verða löggiltur
endurskoðandi."
UNDIR LÁTRABJARGI
Þótt Bryndís sé innfædd-
ur Reykvíkingur dvaldi hún
mörg sumur í æsku sinni á
Látrum í Rauðasandshreppi
hjá Þórði Jónssyni, afa sín-
um. Hún lítur þess vegna á
sig sem Vestfirðing að hálfu
stundir gefist ekki ýkja
margar í annasömu ábyrgð-
arstarfi en hún reynir samt
að sinna ýmsum hugð-
arefnum.
„Eg reyni að halda mér
í þjálfun og skrepp í World
Class stöku sinnum í há-
deginu. Svo fer ég reglu-
lega í jógatíma í Heimsljós
sem mér finnast afar gagn-
legir og hjálpa mér til að
slaka vel á. Við sonur
minn förum stundum í
langar ferðir um Þing-
holtin, hann á þríhjólinu
og ég á fæti, og við ijöl-
skyldan förum saman á
skíði á veturna.“
Bryndís segist halda við
þekkingu sinni á fræðunum
með því að sækja endur-
menntunarnámskeið og
lesa bækur um það sem
nýtt er í faginu. Hún hefur
hugleitt framhaldsnám en
ekkert ákveðið enn.
„Mín skoðun er sú að
endurmenntun sé nauðsyn-
leg því viðskiptafræði
menntun úreldist á sjö til tíu
árum ef henni er ekki
haldið við.“