Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.1997, Blaðsíða 56

Frjáls verslun - 01.03.1997, Blaðsíða 56
FJÁRMÁL á skrifstofu fyrirtækisins og sjálfur vann hann nokkrar stundir til viðbótar þegar heim var komið. Hann ætlaðist til þess að fram kvæ m d as tj ó rar störfuðu á laugardagsmorgnum og fannst allt í lagi þótt fundir drægjust fram á kvöld á laugardögum. Hann bað meira segja Liz, konu sinnar, símleiðis. Hún heyrði er hann fletti dagatalinu til að athuga hvenær tími gæfist fyrir brúðkaupið. Taiið er að krafturinn í Charles, aginn, sem hann beitti sjálf- an sig og aðra, og óþolinmæði hans hafi gert ágreininginn við Bill verri. Árið 1968 bað Charles Bill, sem þá var í doktorsnámi í eðlisfræði við MIT, að setja á laggirnir lítinn sjóð fyrir fjöl- skylduna. Að sögn Charles gekk það illa og varð tapið 90 þúsund dollarar. Hann segir að Bill hafi ekki komið til vinnu á réttum tíma, hann hafi ekki komist fram úr rúminu. Það sem var verra, að mati Charles, var að Bill var ófær um að koma auga á þau aðal- atriði sem skera úr um hvort samn- ingur er góður eða ekki. Bill segir að hagnaðurinn af sjóðnum hafi verið viðunandi en bætir því við að hann hafi verið niðurdreginn á þessum tíma og hafi ekki haft neina viðskiptareynslu. Hann hafi á þessum tíma aðeins haft reynslu af störfum á búgörðum föður síns. Hlutirnir munu ekki hafa gengið betur fyrir sig þegar Bill hóf störf hjá Koch Industries á lítilli skrifstofu fyrirtækisins nálægt Boston árið 1975. Hann sneri sér að kolaviðskiptum en fór í taugarnar á framkvæmdastjórum vegna þess hversu óákveðinn hann var. Charles var ekki bara óánægður með að Bill vantaði kraft og hæfileika heldur sætti hann sig illa við löngun Bills í títla. SKYNDIÁRAS BILLS I lok áttunda áratugarins þénaði Bill nokkrar milljónir dollara á ári. En það var ekki nóg. Bill kvartaði undan því að ágóðinn væri lítill þar sem Charles. setti allt féð aftur inn í reksturinn. Og skömmu fyrir þakkagjörðarhátíðina 1980 gerði Bill skyndiárás. Með stuðningi Freddies og nokkurra utanaðkom- andi hluthafa fékk Bill yfirráð yfir meirihluta hlutabréfa Koch Indu- stries. Hann boðaði til sérstaks stjórnarfundar til þess að skipa nýja stjórnendur sem áttu að auka hagn- aðinn og draga úr áhrifum Charles yfir fyrirtækinu. David komst á snoð- ir um áætlunina nokkrum dögum fyrir fundinn og tókst að telja einum stuðningsmanna Bills hughvarf. Niðurstaða fundarins var sú að stjórnin ákvað að reka Bill. Arið 1983 vildu Bill, Freddie og nokkrir frændur þeirra fá meira reiðufé og seldu Charles og David hlutabréf sín. Bill var hæstánægður með það sem kom í hans hlut, 470 milljónir dollara. Ári seinna var honum greint frá því að Koch Industries, sem hafði tekið að láni tæpan milljarð dollara til að borga seljendur hlutabréfanna út, hefði borgað af láninu þrisv- ar sinnum hraðar en gert hafði verið ráð fyrir. Hann sakaði Charles og David um að hafa falið eignir fyrirtækisins og breytt bókhaldsaðferðum til þess að láta fyrirtækið líta út fyrir að vera minna virði en það hafi í raun verið. LEITAÐ TIL LEYNILÖGREGLUNNAR Fyrir átta árum leitaði Bill til leynilögreglumanna tíl að kanna sannleiksgildi orðróms um að Koch fyrirtækið stæli olíu með því að mæla rangt af ásettu ráði þá jarðolíu sem það keypti af sjálfstæðum framleiðendum. Hann hóf samstarf við nefnd öldungadeildar þingsins sem rannsakaði ásakanir um olíuþjófnað frá indíánum. Nefndin komst að þeirri niðurstöðu að Koch fyrirtækið hefði stolið olíu frá indíánum fyrir 31 milljón dollara á þriggja ára tímabili. Brestir þykja hafa verið í rannsókn nefndarinnar. Á því tímabili, sem svindlið á að hafa átt sér stað, keypti fyrirtækið olíu fyrir 12 milljarða króna. Það magn, sem Koch Industries er sakað um að hafa stolið, er innan eðlilegra skekkjumarka við olíumælingu í þessum bransa. Og í raun kom ekkert jarðolíunnar frá indíánum. Þrátt fyrir þessar ásakanir nýtur fyrirtækið trausts hjá mönnum í olíuiðnaðinum. „Við mælum okkar olíu daglega. Við myndum strax komast að því ef þeir stælu,” er haft eftir einum þeirra. Öldungadeildarnefndin afhenti ríkissaksóknara í Oklahomaborg niðurstöður sínar. Þremur árum seinna til- kynntu yfirvöld að rannsókn málsins yrði hætt. En Bill gafst ekki upp og höfðaði mál vegna meints olíuþjófnaðar Koch Industries frá indíánum og yfirvöldum. Hann kveðst ekki vilja að bræðurnir fari í fangelsi. „En ég er í stríði,” segir hann. BROGÐ BRÆÐRANNA „Brögð bræðranna hverra gegn öðrum hafa verið svo umfangsmikil að sagt er að J. R. Ewing kynni að líta á sig sem sigraðan í þeim efnum. ” 56
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.