Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.1997, Blaðsíða 54

Frjáls verslun - 01.03.1997, Blaðsíða 54
itt helsta Ijölskyklustriðið í sögu viðskiptanna í Bandaríkjunum kann brátt að ná hámarki sínu í réttarsal á þessu ári. Stríðið er milli bræðranna sem erfðu fyrirtækið Koch Industries í Wichita og auðurinn, sem þeir deila um, er gífurlegur. Fyrir um það bil hálfri öld skrifaði Fred C. Koch ungum sonum sínum og bað þá að vera góða og göfuglynda hver við annan en þeir daufheyrðust við bón hans. Fred hafði byggt stórt fyrirtæki í olíuiðnaðinum og hagnast vel. Hann reyndi að kenna sonum sínum gildi siðferðis og vonaði að þeir gætu farið vel með arfinn þegar hann félli frá. Hann varaði drengina við því að auður þeirra gæti annaðhvort orðið þeim til blessunar eða bölvunar. Hann hafði rétt fyrir sér, um bölvunina. Synirnir heita Freddie, Charles, David og Bill. Freddie er elstur, 63 ára, og hann á kastala, villur og ýmsar aðrar fasteignir í Evrópu. Charles, sem er 61 árs, stofiiaði Cato stofnunina, sem er hugmyndabanki frjálshyggjumanna, og íhugaði alvarlega að kaupa Time eða Newsweek til þess að undirbúa jarðveg- inn fyrir stjórnmálabyltingu í Banda- ríkjunum. Tvíburarnir David og Bill eru 56 ára. Árið 1980 var David frambjóð- andi frjálshyggjumanna til varaforseta- embættisins. Fyrir tveimur árum keypti hann íbúð Jackie Onassis í New York. Bill vann Ameríkubikarinn í siglinga- keppni árið 1992. SKÁKA JAFVEL J.R. EWiNG Brögð bræðranna hverra gegn öðrum hafa verið svo umfangsmikil að sagt er að J.R. Ewing kynni að líta á sig sem sigraðan í þeim efnum. Bill hefur til dæmis sagt frá því að Charles hafi reynt að kúga Freddie með því að hóta að afhjúpa samkynhneigð hans til þess að fá hlutabréf Freddies á lágu verði. Charles vísar þessu harðlega á bug. Freddie var að hluta til gerður arflaus af * $EM SKAKA JAFNVEL J.R. EWING Stríð brœðranna pykir gott dæmi um pað sem getur farið úrskeiðis pegar faðir á einn uppáhaldsson sem tekur við stjórn fyrirtœkis að fóðurnum látnum. En pá fyrst byrjar oft ballið. Riftst er um arfinn. Deilt er um völd og peninga - og brögðum beitt. föður sínum vegna ágreinings um 700 dollara sem faðirinn saknaði. Og ekki bætti það samlyndið innan ljölskyldunn- ar þegar Bill lét stefna móður sinni í vitnastúku nokkrum mánuðum eftir að hún hafði fengið hjartaáfall. Það þykir ekki nein tilviljun að fáir hafi heyrt af Koch bræðrum. Þeir hata allir athygli nema Bill. Og margt að því, sem fyrirtækið Koch Industries fæst, við virðist lítið spennandi, eins og olíu- vinnsla, olíuflutningar og efnagerð. Auðurinn, sem fyrirtækið hefur skapað og nú er rifist um, er gífurlegur. Fyrir- tækið hagnast um 750 milljónir dollara á ári og er næstum eingöngu í eigu tveggja bræðranna. Olíuvinnslustöðvar fyrirtækisins eru tvær og risastórar. Olíuflutningaleiðslur fyrirtækisins eru 37 þúsund mílur að lengd og fyrirtækið á 450 þúsund ekrur af landi undir naut- griparækt. Koch Industries á meiri eignir en nokkurt annað fyrirtæki í einkaeigu að frátöldu Cargill fyrirtæk- inu. Talið er að Freddie og Bill eigi hvor um sig auðævi upp á 1 milljarð dollara. Eignir Charlies og Davids eru metnar á 2 milljarða dollara hvors fyrir sig. TELURSIG SVIKINN Deilan snýst í einföldu máli um það að Bill heldur því fram að Charies hafi árið 1983 gabbað sig til að selja hluta- bréf sín í fjölskyldufyrirtækinu hálfúm milljarði dollara undir raunvirði þeirra. Bill fékk aðeins 470 milljónir. Charles vísar ásökunum á bug. Hann kveðst hika við að ráðast á bróður sinn opinber- lega. Samt sem áður segir hann Bill full- an af græðgi, latan, óhæfan, taugaveikl- aðan og hefnigjarnan. Atökin milli Charles, sem rekur fjöl- skyldufyrirtækið <j)g leggur hart að sér, og Bills, sem er ístöðulaus, óöruggur og hafiiar yfirráðum og ákveðni Charles, að því er sagt er, hafa verið grimmileg. Þetta þykir dæmi um það sem getur farið úrskeiðis þegar faðir á einn uppáhaldsson og gerir ráð fyrir að hinum muni semja við hann. „Það var faðir minn sem sáði fræjum þessara hörmunga,” segir Bill. Hann heldur því fram að Charles sé svindlari og hann er ákveðinn í að sanna að hann sé í raun sífellt óheiðarlegur og þess vegna nógu siðlaus til þess að hafa af bróður sínum hálfan milljarð. Bill hefur einnig haldið því fram að Koch HARÐUR NAGLI Charles er sagður hafa staðið sig frábærlega sem stjórnandi Koch Industries. Charles er harður samningamaður og hann keyrir sjálfan sig og aðra áfram. Hann kom á 12 stunda vinnudegi á skrifstofu fyrirtækisins og sjálfur vann hann nokkrar stundir til viðbótar þegar heim var komið. Hann ætlaðist til þess að framkvæmdastjórar störfuðu á laugardagsmorgnum og fannst allt í lagi þótt fundir drægjust fram á kvöld á laugardögum. Hann bað meira að segja Liz, konu sinnar, símleiðis. Hún heyrði er hann fletti dagatalinu til að athuga hvenær tími gæfist fyrir brúðkaupið. 54
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.