Frjáls verslun - 01.03.1997, Blaðsíða 70
Ragnar Sverrisson er klæðskeri og fatakaupmaður í JMJ
á Akureyri. Hann ræktar heilsuna og garðinn sinn í
fristundunum.
FV-mynd: Gunnar Sverrisson.
agnar Sverrisson,
kaupmaður í JMJ á
Akureyri, man tím-
ana tvenna í fataverslun
eftir rúmlega 30 ára starfs-
feril í faginu. JMJ er
upphaflega fangamark Jóns
M. Jónssonar klæðskera
sem haslaði sér völl í
fataverslun árið 1956.
„Eg vil því fullyrða að
þetta sé elsta fataverslun
landsins sem enn starfar,“
sagði Ragnar í samtali við
Frjálsa verslun. Ragnar
kom inn í fagið þegar hann
hóf nám sem klæðskeri hjá
Jóni, tengdaföður sínum.
„í þá daga létu allir
sauma á sig föt eftir máli.
Menn komu allt að þrisvar
sinnum til að máta og gáfu
sér góðan tíma. Þetta var
FÓLK
samtaka íslands. Kona
Ragnars heitir Guðný Jóns-
dóttír og þeirra börn eru
Jón M., Sverrir, Ragnar Þór,
Olafur og Hulda. Þegar
mikið er að gera er öll fjöl-
skyldan að vinna í búðinni
svo hér er um sannkallað
fjölskyldufyrirtæki að ræða.
Það hefur samt enginn
fetað í fótspor Ragnars með
því að læra klæðskurð.
„Eg er síðastí geirfuglinn
í faginu innan ijölskyldunn-
ar.“
KAUPMAÐURINN
í GARÐINUM
Ragnar segist ekki eiga
margar tómstundir því vinn-
an sé tímafrek. Þær tóm-
stundir sem gefast notar
hann tíl að dútla í garðinum.
RAGNAR SVERRISSON, JMi AKUREYRI
mjög skemmtilegt starf
sem er eftirsjá að en nú til
dags er þessi þáttur nær
alveg horfinn út starfinu."
Þegar umsvif JMJ voru
hvað mest var rekin
saumastofa sem hét
Burkni á Akureyri og þar
störfúðu 20-30 konur sem
saumuðu meirihlutann af
þeim fatnaði sem var seld-
ur í verslunum JMJ.
Lengst af voru tvær JMJ
verslanir á Akureyri, önn-
ur við Glerárgötu og hin
við Ráðhústorgið. Auk
þess var um nokkurra ára
skeið rekin JMJ verslun
við Laugaveg í Reykjavík.
Ragnar keypti verslanir
JMJ af Jóni, tengdaföður
sínum, 1984 og hefur síðan
rekið það sem fjölskyldu-
fyrirtæki. I dag eru reknar
tvær verslanir á vegum
JMJ. Önnur er JMJ herra-
fataverslun og hin er Joe’s
sem selur fatnað sem
TEXTI: PALL ÁSGEIR ÁSGEIRSSON
ætíaður er yngri herrum.
Báðar búðirnar eru tíl húsa
í Gránufélagsgötu 4.
„Við skiptum þessu með
okkur. Eg sé um eldri herr-
ana en Joe’s þá yngri. Joe’s er
í samvinnu við verslun með
sama nafiii í Kringlunni sem
Guðmundur Ólafsson á og
rekur. Þetta eru sömu vöru-
merki og sameiginleg inn-
kaup.“
ERUM SAMKEPPNISFÆRIR
VIÐ ÚTLÖND
Eins og aðrar verslanir
hvort sem er í fatnaði eða
öðru hefur JMJ þurft að
mæta aukinni samkeppni frá
verslunarferðum til útlanda.
„Fyrst í stað var þetta
dálítið áfall en svo fórum við
að mæta þessu eins og
hverri annarri samkeppni og
keppa við þessar ferðir. í dag
eru staðan sú að við erum
samkeppnisfærir í verðum
og gæðum. Stöðugt fleiri átta
sig nú á því að það er hægt að
gera jafn góð kaup hér
heima. Þannig hefur þetta í
raun orðið öllum til góðs,
bæði kaupmönnum og neyt-
endum.“
Ragnar nefnir sem dæmi
að fyrir um 10 árum hafi
tvíhneppt jakkaföt án vestis
kostað 25-40 þúsund í
búðinni hjá JMJ. í dag er
hægt að fá jakkaföt með
vestí hjá JMJ fyrir 17.900
krónur.
„Þetta eru fínustu föt
sem gefa ekkert eftír þeim
sem menn eru að kaupa í
Glasgow eða hvar sem er,
hvorki í verði né gæðum.
Þetta kemur mönnum
þægilega á óvart sem koma
hér inn í búðina og eru
kannski nýkomnir að utan.“
Ragnar er mjög virkur í
félagsstarfi fyrir kaupmenn
þar sem hann er formaður
Kaupmannafélags Akureyr-
ar og í stjórn Kaupmanna-
Þau hjónin eiga stóran og
fallegan garð við hús sitt á
Akureyri og með eftir-
gangsmunum viðurkennir
Ragnar að garðurinn hafi
verið verðlaunaður.
Ragnar hefur annað
áhugamál sem er líkams-
rækt og hreyfing. Hann er í
litlum skokkhóp sem fer á
hverjum morgni og skokk-
ar eða gengur 3-4 kílómetra
og fer í sund í Glerárlaug á
eftír.
„Þetta er harðsnúinn
hópur Þorpara og Þórsara
og mjög skemmtilegur fél-
agsskapur.”
Ekki er mjög langt síðan
Ragnar vaktí nokkra athygli
á Akureyri þegar hann hóf
mikið líkamsræktarátak og
léttist um tæp 30 kíló á
frekar skömmum tíma.
Harðfýlgi hans og ástundun
vöktu verðskuldaða athygli
og hefur hann haldið sínu
striki æ síðan.
70