Frjáls verslun - 01.03.1997, Side 45
FJARMAL
skynsemi í ijárfestingu þá ræðst það af afkomu búsins. Ég tel
almennt að gerðar séu of háar kröfur á íslandi til arðsemi fjár-
festinga. Mér finnst út í hött að ætlast til þess að framleiðslu-
réttur borgi sig upp á fáum árum eins og ég heyri menn tala
um. Mér finnst raunhæft að þessi íjárfesting borgi sig upp á
15-20 árum en varanlegri Ijárfestingar á mun lengri tima eða
50-80 árum.“
I ljósi þess hve verðið hefúr hækkað
hratt er þetta þá ekki gríðarleg góð ávöxtun?
„Þetta er vissulega góð ávöxtun. Þegar
ég var að byrja að kaupa þá fussuðu
úrtölumenn mikið og sögðu að rúmlega
100 krónur væru alltof mikið og ég væri að sprengja upp
verðið á kvótanum.
Um þetta gilda nákvæmlega sömu reglur og lögmál og
um annan markað. Þetta er hefðbundinn markaður sem á
að geta þróast eins og hver annar hlutabréfamarkaður. Það
fylgir því alltaf áhætta að kaupa hlutabréf. Verðið getur
farið úr 100 í 0 á augnabliki. Mér fannst ég ekki kaupa kvót-
ann á háu verði. Ég taldi að verðið myndi hækka sem hefur
reynst rétt. Ég var að kaupa af bænd-
um sem áttu 20-30 þúsund lítra og
voru að bregða búi. Þessum bændum
er að fækka jafnt og þétt og því mat ég
það svo að framboðið myndi minnka
þegar fram í sækti. Þá hækkar verðið
þar sem þetta er takmörkuð auðlind."
HEF TRÚ Á VÖRUNNI
Hvert er þitt álit á þeirri verðþróun
sem orðið hefur. Nú sýnist vera tölu-
vert framboð á kvóta um þessar
mundir. Mun verðið fara lækkandi
eftir þetta eða hækka enn frekar?
„Ég vil aðeins segja það að mín
ákvörðun byggði fyrst og fremst á
þeirri trú sem ég hef á framleiðslu-
vörunni sjálfri. Ég tel að okkar mjólk
hér á Islandi sé vara sem stendur
framar sambærilegri framleiðslu í
Evrópu og muni standast samkeppni í
framtíðinni. Þess vegna taldi ég þetta
góða íjárfestingu. Ég geri nákvæm-
lega sömu kröfur til þess, sem ég er
að gera hér, hvað varðar arðsemi og
afkomu eins og ég gerði þegar ég var
að kaupa hlutabréf fyrir hönd
bankans sem ég starfaði hjá.“
BÆNDUR EIGA AÐ KAUPA KVÓTA
„Hvað varðar verðþróun kvótans
þá er óhjákvæmilegt þegar verðið
hækkar að þá komi seljendur inn á
markaðinn. Það er einnig óhjákvæmi-
legt að verðið lækki aftur. Ég er samt
ekki viss um að verðið lækki strax. Sá
skattafrádráttur, sem bændur fá við
kvótakaup, ásamt reglum um bein-
greiðslur gera það að verkum að bú, sem skila hagnaði,
eiga tvímælalaust að auka við kvóta sinn. Sá, sem kaupir
t.d. 10 þúsund lítra, þarf ekki að framleiða nema 80% en fær
beingreiðslur á 100%. Þetta auðveldar þeim, sem geta
keypt, að stækka við sig. Þetta gerir það að verkum að eftir-
spurn eftir kvóta mun halda verðinu uppi enn um sinn.“
Jón segir að mjög margir bændur hafi
einfaldlega ekki áttað sig strax á því að við
núverandi aðstæður sé hagkvæmt að
stækka við sig en muni gera það við aukna
umræðu um málið.
„Það er dapurlegt að heyra bændur tala
um það í kjölfar kvótaviðskipta að það þurfi að koma í veg
fyrir að þau eigi sér stað. Slíkt væri alger firra og með því
væri verið að stíga skref mörg ár aftur á bak í tíma.
I fyrsta skipti í marga áratugi átta bændur sig á því að
þeir eru með verðmæti í höndunum önnur en fasteignir og
vélar. Verðmæti sem hægt er að kaupa og selja. Réttast
væri að láta Verðbréfaþingið taka við þessum viðskiptum
og gera þennan markað þannig skilvirkan og mynda rétt
Ykkar oriof
ESTHUS
Gesthús v/Engjaveg, 800 Selfoss
Sími: 482 3585, Fax: 482 2973
e-mail: guesthus@smarf.is
Gesthús eru hlýleg sumarhús á Selfossi. I hverju húsi
er gistirými fyrir 2-4, eldunaraðstaða og baðherbergi
með sturtu. í þjónustumíðstöð er framreiddur
morgunverður, kvöldverður og léttir ostaráttir auk léttvíns
og áfengs öls. Við miðstöðina eru tveir heitir pottar til
afnota tyrir gesti. Tjaldsvæðið er eitt það fallegasta á
landinu með stórt þjónustuhús, útigrill, salerni og
sturtur. Frá Selfossi er stutt til allra helstu
ferðamannastaða íslands.
Afþreying: Gönguferðir, hestaferðir, útsýnisflug, veiði,
sigling á bátum og kajak, jeppaferðir, fjósaskoðun,
söfn, sund og skoðunarferðir. ,
TEXTI
Páll Ásgeir Ásgeirsson
45