Frjáls verslun - 01.03.1997, Page 52
Vidtökur fríkortsins voru langt í frá einróma
fagnadarlæti. Því mœtti háö og spott.
En aöstandendur kortsins létu ekki taka sig í
bólinu. Kortiö hefur náö sér á strik.
Páll Þór Ármann, framkvæmdastjóri Fríkorts ehf., flytur erindi um kortíð á
fundi ÍMARKS. Fvmynd: Geir Ólafsson.
Dbyrjun mars ultu þykk gul
umslög inn um bréfalúguna hjá
169.400 íslendingum. Fríkortíð,
sem valt, innan úr umslaginu var
glænýtt fyrirbæri sem sumir áttu erfitt
með að átta sig á tíl hvers væri eigin-
lega. Fríkortíð er svokallað „tryggða-
kort“ og fimm fyrirtæki, Hagkaup,
Húsasmiðjan, Skeljungur, Flugleiðir
og íslandsbanki, stóðu að því. Við
notkun kortsins fékk handhafi tíl-
tekinn íjölda punkta og gegn tíltekn-
um fjölda punkta óvæntan bónus í líki
leikhúsferðar, máltíðar á veitíngastað
eða utanlandsferðar.
Fríkortið kom flatt upp á flesta Is-
lendinga en undirbúningur hafði staðið
í tæp tvö ár og mikil áhersla var lögð á
að leynd hvfldi yfir honum. Astæðurnar
voru einkum þær að með þessu móti
næðist betur athygli aflra og ekki síður
vildu aðstandendur halda áætlunum
sínum leyndum fyrir samkeppn-
isaðilum. Leyndin var slík að aflt fram á
síðasta mánuð voru aðeins 4-5 starfs-
menn í hverju fyrirtæki sem vissu
nákvæmlega hvað til stóð.
Sérstakt fyrirtæki var stofnað tíl að
halda utan um og reka Fríkortið og er
það í eigu fyrirtækjanna fimm. Vegna
leyndarinnar var ekkert fyrirtækjanna
skráð eigandi og fyrirtækið hét
Framsýn en um þessar mundir er
verið að skipta um nafn og skíra það
Fríkort ehf.
„Við teljum að það leyndin hafi tek-
ist vel og náð tilgangi sínum,“ sagði
Páll Þór Ármann, framkvæmdastjóri
Fríkorts ehf.
52