Frjáls verslun - 01.03.1997, Blaðsíða 65
í eigu þriggja þekktra kvikmyndaleikara
sem allir hafa orðið milljarðamæringar á
því að leika ósigrandi harðjaxla og
vöðvabúnt sem ekkert bítur á. Þetta eru
steramennin Arnold Schwarzenegger,
Sylvester Stallone og Bruce Willis. Þessi
lifandi tenging við skemmtanaiðnaðinn
gefur veitingastöðunum enn aukið gildi
og færir þá nær nútímanum.
Hugmyndin er sú að ljóminn, sem
stafar af stjörnunum .auglýsi staðinn og
laði fólk að. Stjarnan auglýsir staðinn og
staðurinn stjörnuna. Þetta hlýtur að vera
pottþétt.
Fleiri heimsfrægar stórstjörnur, sem
orðaðar hafa verið við rekstur skemmti-
staða, má nefna, eins og til dæmis Ron
Wood. gítarleikara Rolling Stones,
kvikmyndaleikarann Michael Caine og
fýrirsæturnar Naomi Campbell og
Claudiu Schiffer.
Þetta iýrirbæri rekur sig í rauninni
allt aftur til Parísar á síðustu öld þegar
hefðarfrúr kepptu um hver þeirra héldi
glæsilegasta saloninn og reyndu að laða
til sín fallegasta og ríkasta fólkið. Þegar
salonmenningin leið undir lok tóku
skemmtistaðir við þeirra hlutverki.
ÍSLENSKA ÚTGÁFAN
Hér á Islandi er ekki búið að opna
Planet Hollywood enn sem komið er
en íslenskir stéttarbræður þeirra
Stallones, Schwarzeneggers og Willis
hafa ekki látið sitt eftir liggja þótt með
smærra sniði sé en hjá fýrirmynd-
unum.
Þannig er einn efnilegasti leikari
landsins í dag, Baltasar Kormákur,
virkur þátttakandi í skemmtanalífinu á
fleiri sviðum en leiksviðinu. Hann á,
ásamt Ingvari Þórðarsyni Ijárfesti,
Kaffibarinn á Klapparstíg sem er vin-
sæll og eftirsóttur bar. Þangað hópast
leikarar, blaðamenn, popparar og
Baltasar Kormákur leikari, leikstjóri og hestamaður er trúlega þekktasti
skemmtistaðaeigandi í Reykjavík en Baltasar á hlut i Kaffibarnum. Meðal
félaga hans þar er Damon Albarn poppari og íslandsvinur úr bresku hljóm-
sveitinni Blur. FVmynd: Sigurjón Ragnar.
aðrir sem eru eða vilja vera hluti af
skemmtanaiðnaðinum. Kaffibarinn er
nefnilega, eins og Planet Hollywood,
hluti af skemmtanaiðnaðinum í fleiri
en einum skilningi. Baltasar á einnig
hlut í Loftkastalanum með öðrum en
þar er rekið leikhús með töluverðri
drift. Kaffibarinn treysti enn ítök sín í
skemmtanaiðnaðinum þegar Damon
Albarn, söngvari í bresku
hljómsveitinni Blur og rómaður Is-
landsvinur, gerðist hluthafi þar.
„Það er alltaf gott að eiga h'tinn bar,“
er sagt að Ingvar
Þórðarson hafi sagt
þegar hann var
spurður hvers vegna
hann og Baltasar
hefðu keypt barinn.
Ingvar á einnig helminginn í Hótel
Búðum og hlut í kaffihúsinu Einari
Ben í Veltusundi sem nýlega var
opnað.
HALLBJÖRN, RÚNAR JÚL OG HELGIBJÖRNS
En Baltasar og Damon eru ekki
einu stjörnurnar á Islandi sem hafa
áttað sig á því að það getur verið hap-
pasælt að standa í rekstri veitinga-
staða af einu eða öðru tagi. Popp-
söngvarinn Helgi Björnsson var einn
þeirra sem hleyptu veitingastaðnum
Astro í Austurstræti af stokkunum á
sínum tíma og tróð stundum upp þar
þótt hann hafi gert minna af því í
seinni tið. Félagi hans í því ævintýri
var framkvæmdastjórinn og barna-
stjarnan Hallur Helga-
son úr Hafnarfirði
sem allir unglingar
þekktu þegar hann
lék Andra í Punktur,
punktur, komma strik.
Hallur er einn aðstandenda
Loftkastalans. Þórarinn Ragnarsson
veitingamaður hefúr keypt þá Helga
og Hall út úr Astro og Helgi dvelur nú
TEXTI
Páll Ásgeir Ásgeirsson
65