Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.1997, Síða 69

Frjáls verslun - 01.03.1997, Síða 69
VEITINGAHUS Piemonte búa. Þó svo að veitinga- mennirnir á La Primavera leiti fanga víða í eldamennskunni þá eru norður- ítölsku áhrifin hvað augljósust. La Primavera var um nokkurn tíma til húsa í Húsi verslunarinnar. Stað- urinn var á einhvern óskiljanlegan hátt út úr og því ekki nógu vel sóttur af íslenskum sælkerum. Nú er sem sagt Primavera flutt í miðbæ Reykjavíkur, nánar tiltekið í Austurstræti 9, á efri hæð í húsi verslunar Egils Jakobsen. Húsið er einstaklega skemmtilegt og hefur vel tekist til um hönnun veitinga- stofunnar. Spegill er í enda salarins og virðist hann því mun stærri en hann er í raun og veru. Gluggarnir eru stórir og er því þægileg birta í salnum. Gestirnir eiga hægt um vik að fylgjast með mannlífinu í Austurstræti. Leifur Kolbeinsson matreiðslu- meistari og lið hans hafa hlotið þjálfun sína á Italíu og fengið gesta- matreiðslumenn frá Italíu í heimsókn. Matseðillinn er ekki of fjölbreyttur og haganlega samansettur. I hádeginu er í boði ódýr matseðill, óvenjulega ódýr miðað við gæði. Hvað segið þið, lesendur góðir, um matarmikla linsu- súpu eða ferskt salat með ætiþistlum í forrétt? Og steiktan skötusel með rósapiparsósu eða kalkúnasmásteik með capers og hvítlauk í aðalrétt og salvíusmjöri, og grillað, ostafýllt ravíolí borið fram með tómatbasil- sósu. Pastaréttirnir kosta á bilinu 1270 til 1480 krónur. Fiskréttirnir eru flórir á seðlinum. Ofn- bökuð tindabikkja með capers og hvítlauk er afar bragðgóð og steiktur saltfiskur með gremolata og grilluðu polenta er hreint út sagt frábær. Fiskrétt- irnir kosta frá krón- um 1380 og upp í 1560 krónur. Kjötréttirnir eru fimm. Kálfasteik með sítrónu, jurtum og hvítvíni er hreint afbragð, sömuleiðis rósmarínkrydduð lambariijasteik, borin fram með ætiþistlum.. Því miður hefur greinahöfundur ekki bragðað á nautalund með kjúklingalifirarmousse og truflusósu, sem hlýtur að vera afar ljúffeng, en hún kostar 2.490 og er dýrasti kjötrétturinn á seðlinum, sá ódýrasti er á 1790 krónur. Eftirréttirnir eru ljórir. Þar á með- lega samansettur og eru þar nokkur ítölsk öndvegis vín. La Primavera er án efa einn af áhugaverðustu veitingastöðunum í Reykjavík í dag. Fyrst og fremst er hann öðruvísi en allir aðrir og þar er að finna ekta gott ítalskt eldhús. Það ætti því enginn að verða íýrir von- HJARTA REYKJAVÍKUR kotasælutertu í eftirrétt. Þetta allt á kr. 1240. Hægt er að velja á milli þriggja forrétta og þriggja aðalrétta. Meðal áhugaverðra forrétta á aðal- matseðli er steikt kálfalifur með rauð- lauk og marsalasósu og rauðvínsbætt fiskisúpa með fennel. Vinsæll forrétt- ur er hrátt nautakjöt „carpaccio” með fersku salati og Parmigiano osti. Verð á forréttunum er frá kr. 590 og upp í 1060. Tilvalið er að panta nokkra for- rétti í staðinn fýrir forrétt og aðalrétt. Á seðlinum eru nokkrir pastaréttir. Hægt er að mæla með kastaníufylltu ravíolí með reyktum Provolone osti og al hin fræga terta Tiramisu. Helsti gallinn við þennan annars svo ágæta matseðil er að það mætti hafa spenn- andi grænmetisrétt á meðal aðalrétt- anna. Af nógu er að taka í því sam- bandi í ítalska eldhúsinu. Og eftir- réttírnir mættu vera meira spenn- andi, þó svo að þeir, sem á seðlinum eru, séu ljómandi. Italir eru hrein- lega slíkir snillingar í gerð sætra eftírrétta. Helstu kostirnir við La Primavera er að verðlag er þar mjög hagstætt miðað við gæði. Matreiðslan er fagleg og fyrsta flokks. Vínseðillinn er hagan- brigðum að mæta vorinu kvöldstund á La Primavera við Austurstræti. Það er viss galli að ekki er bar á staðnum eða setustofa þar sem gestír gætu fengið sér fordrykk og beðið eftír borði. Því það er vel þess virði að doka við eftír borði á La Primavera. Það er þó bót í máli að eftir góða máltíð er hægt að fá bolla af góðu espressokaffi og glas af Grappa. La Primavera • Austurstræti 9 Sími: 561 85 55 69

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.