Frjáls verslun - 01.09.1998, Blaðsíða 30
Restaurant Reykjavík er á besta staö í Prag, við Karlsgötu. Þegar Þórir er rœðismaður Islendinga i Tékklandi og hefur rekið mikinn áróður
mest lœtur á sumrin ganga á milli 50 til 60 þúsund manns eftir fyrir íslandsferðum.
götunni á hverri klukkustund.
ÞORIR BLOMSTRAR
EFTIR BYLTINGUNA
Þórir Gunnarsson veitingamaöur flutti út til
Tékklands eftir flauelsbyltinguna þarhaustiö 1989.
Hann rekur þar núna tvo veitingastaöi Auk þess
selur hann Island!
Bftir flauelsbyltinguna svokölluðu í
Tékkóslóvakíu á haustmánuðum
1989 urðu margvíslegar breyting-
ar í landinu. Ein þeirra var sú að útlending-
ar fengu leyfi til að gerast þar þátttakend-
ur í rekstri fyrirtækja, fyrst sem meðeig-
endur Tékka og síðar í eigin nafni. Einn
þeirra, sem hélt til Tékkóslóvakíu í kjölfar
TEXTIOG MYNDIR: FRÍÐA BJÖRNSDÓTTIR
þessara breytinga, var Þórir Gunnarsson
veitingamaður, sem meðal annars hafði
rekið Matstofu Austurbæjar og verið með
veitingarekstur uppi á Höfða í Reykjavík.
Hann og kona hans, Ingibjörg, eiga nú og
reka Restaurant Reykjavík við Karlsgötu í
Prag og Reykjavík Express rétt utan við
borgina.
Karlova, eða Karlsgata, er ein af sögu-
frægustu götum í miðborg Prag. Hún
liggur frá Gamla torginu svokallaða, að
Karlsbrú en þaðan liggur leiðin upp hæð-
ina handan Moldár og upp í kastalann þar
sem konungar og aðrir ráðamenn Tékka
hafa haft aðsetur allt fram til dagsins í dag.
Því má segja að Restaurant Reykjavík sé á
besta stað í borginni og sagt er að hver
einasti ferðamaður, sem kemur til Prag,
gangi að minnsta kosti tvisvar sinnum eft-
ir Karlsgötu og framhjá Reykjavík. Taln-
ing hefur einnig sýnt að þegar umferðin
er mest fara þarna um 62 þúsund manns á
klukkutíma.
ÍSLAND VARÐ EKKIVINSÆLT
Fyrst eftir að Þórir kom til Tékkósló-
vakiu hóf hann að reka veitingastað í fé-
lagi við annan. Staðurinn hlaut nafnið Is-
land og átti að minna á okkar ágæta land.
Því miður náði staðurinn ekki þeim vin-
sældum, sem reiknað hafði verið með,
og nafnið dró heldur ekki til sín ferða-
menn eins og til hafði verið ætlast. Flest-
ir hafa líklega ruglað því saman við orð-
ið island á ensku, sem þýðir eyja, og á
ekkert skylt við Island.
30